Litli Bergþór - 01.12.2001, Qupperneq 19
Sigríður og Sveinn í Bræðratungu frh....
verði. Ég held ég fari rétt með, að nú í ár séu allar jarðir
í Bræðratungutorfunni komnar í einkaeign.
L-B: Eg veit að búið er sórt, en hve stórt er það nú?
Sveinn: Ætli það sé ekki heyjað núna á um 150 ha
túns auk beitartúna. Við keyptum Hvítárbakkann af
Sævari, þegar Ingvar og Haukur fluttu þaðan um 1989
og eru túnin þar, um 30 ha, í þeirri tölu. Það var
eiginlega Gunnlaugur bróðir minn, sem hvatti mig til
þess að kaupa Hvítárbakkann. Það væri ekkert fýsilegt
að fá einhverja hestamenn hér í hlaðvarpann! Nú, hvað
bústærðina varðar, - ætli síðastliðinn vetur hafi ekki
verið um 760 vetrarfóðraðar kindur, um 50 kýr
mjólkandi og auk þess rúmlega annað eins af
geldneytum. Hausarnir í fjósinu eru því á bilinu 110-
115. Og svo er til þó nokkuð af hrossum. En áður fyrr,
meðan engjaheyskapur var stundaður, þurfti mörg hross
undir heyband og hefur hrossabúskapurinn haldist síðan.
L-B: Hvernig hefur uppbyggingin á húsakosti verið
hér í Tungu?
Sveinn: Ibúðarhúsið var byggt á árunum 1956 -58
og fluttum við í það 1958. Nú, allar aðrar byggingar,
gripahús og hlöður, voru meira og minna byggðar nýjar,
eða endurbyggðar á þessum árum eftir 1950. Fjárhús
voru byggð 1958 og fjós 1963.
L-B: Með svo stórtfjárbú hlýtur að þurfa talsverðan
mannskap ífjallferðir.
Sveinn: Jú, það fara í kringum 5-7 rnanns í fyrstu
leit á hverju ári. Ég fór fyrst til fjalls 1941, 14 ára
gamall, og oftast síðan. Síðast nú í haust, þegar ég átti
60 ára fjallafmæli! Ég hef farið tvisvar í 3. leit, annars
hef ég alltaf farið í 1. leit. í eftirsafn hef ég aldrei farið.
L-B: Kanntu einhverjar góðar sögur affjalli?
Sveinn: Það er þá helst að ég segi þér frá fyrstu
fjallferðinni minni, en hún er mér mjög fersk í minni.
Eins og ég sagði áðan var þetta fermingarárið mitt,
1941, en draumur margra fermingarstráka var þá að fá að
fara á fjall. Þegar fjallskilaseðillinn kom, leist mér ekki á
að ég fengi að fara, því pabba var gert að senda mann í
svokallaða undanleit.
Þá var nýlega hafin varsla á Kili vegna sauðfjárvarna
og því hætt að rétta inni á afrétti í Seyðisárrétt, þar sem fé
sunnan-og norðanmanna var áður dregið í sundur. Höfðu
10 menn alltaf verið sendir að sunnan að sækja féð og var
það rekið beint suður yfir afrétt á ótrúlega skömmum
tíma og komið með það í Tungnaréttir á miðjum
réttadegi.
Fyrstu árin á eftir að varsla hófst þurftu sunnanmenn
þó að smala lengra norður, það land, sem áður hafði verið
smalað til Seyðisárréttar, og var þetta ár, þegar ég fór
fyrst á fjall, síðasta árið, sem það var gert.
Ég fékk semsagt að fara og vorum við tíu saman
sendir af stað þremur dögum fyrr en þeir, sem fóru í
Gránunes. Þetta voru Ingvar og Kormákur sonur hans frá
Hvítárbakka, Guðmundur Egilsson frá Galtalæk,
Sigurfinnur frá Bergsstöðum, Þórður Benediktsson frá
Einholti, Albert Gunnlaugsson frá Gýgjarhóli, ættaður úr
Fljótunum og 3 menn frá Jörundi í Skálholti, þeir Skúli
Helgason frá Iðu, Sigurfinnur Einarsson frá Iðu 2 og
Hjálmar Tómasson frá Auðsholti.
Þarftu að byggja - Þarftu að breyta?
JH
J.H.vinnuvélarehf. hafagóðanvélakosttilmargvíslegra
verka, vana menn og býður fljóta og örugga þjónustu á
sanngjörnuverði.
v^.y
* v
Þarftuað:
-Jarðvegsskipta
-Leggjaveg
-Byggjahúsgrunn
- Leggja vatnsveitu fyrir
heitt eða kalt vatn
- Flytja hús t.d. sumarhús
-Setja niður rotþró og
leggjafráveitu
- Gera það ómögulega mögulegt
Vinnuvélar
Simi 852-7190
Leitaðu þá upplýsinga og tilboða
Við seljum hvers kyns jarðefni, rotþrær o.fl.
Ánægðirviðskiptavinireruokkarstolt!
J.H. vinnuvélar ehf. Efri-Brekku
e«
Símar: skrifst. 486 8626, verkst. 486 8624, GSM (Jóhannes) 892 7190, Jóhannes heima 486 8735,
Fax 486 8625, netfang: jh.velar@centrum.is
Litli - Bergþór 19