Litli Bergþór - 01.06.2007, Page 5
Hvað segirðu til?
Helstu tíðindi úr sveitinni frá mars til maí.
Síðustu mánuði vetrar viðraði vel en veðrið var
nokkuð óstöðugt. Hiti var oftast nærri frostmarki,
stundum nokkru lægri og oft nokkuð hærri. Úrkoma
var nokkur og nær alltaf í formi rigningar og snjór var
aðeins föl öðru hvoru, sem tók fljótt upp, og aðeins
hæsti hluti fjallanna hvítur að staðaldri. Vetur og
sumar frusu saman með milli 5 og 10° frosti aðfaranótt
sumardagsins fyrsta. Samkvæmt þjóðtrúnni á það að
boða gott sumar og að mjólkin úr kvíaánum verði feit.
Var til sú kenning að rjómaskánin á mjólkurfötunni
eftir mjaltir í kvíunum yrði jafn þykk og ísinn á pollum
að morgni sumardagsins fyrsta. í sumarbyrjun hlýnaði
og varð fljótt vorlegt en kólnaði nokkuð framan af maí
og var frost um sumar nætur fram yfir miðjan þann
mánuð. Síðari hluti maí var fremur kaldur, snjóaði í
fjöll og jörð varð stundum alhvít á láglendi í éljum.
Farfuglar komu sumir snemma í apríl og svo hver af
öðrum fram í byrjun maí.
Heldur virðist færast í vöxt að fuglar, sem litið hefur
verið á sem farfugla, hafi hér vetursetu. Einkum er
álftin áberandi hér um miðja og sunnanverða sveitina
og halda þær sig aðallega á ánum.
Gróður fór að lifna í fyrstu viku sumars svo sem
rabbarbari, hvönn og blástör. Um það leyti sást víða
grænn litur á túnum og blettum við hús. Birkið í
Fellsfjalli fór að lifna í byrjun maí og laufgaðist fyrir
lok mánaðarins.
Héraðsfundur Árnesprófastsdæmis var haldinn í
Úthlíð upp úr miðjum mars. Hófst hann með messu í
Úthlíðarkirkju, en fundurinn fór fram í Réttinni.
Björgunarsveit Biskupstungna hafði opið hús sitt að
Bjarkarbraut 1 síðasta sunnudag í mars. Þar var tekinn
í notkun klifurveggur félagsins og stofnuð sameiginleg
unglingadeild með björgunarsveitunum Ingunni á
Laugarvatni og Tintron í Grímsnesi og Grafningi.
Hlaut hún nafnið Greipur.
Hestamannafélagið Logi, Leikdeild
Ungmennafélagsins og Kvenfélagið héldu
sameiginlega árshátíð snemma í mars. Þar voru ýmis
skemmtiatriði, málsverður og dans.
Nýtt hús er risið í Austurhlíð, tvö á austanverðum
Laugarási og unnið er að frágangi íbúðarhúsa í
Reykholti. Frístundahús eru byggð á ýmsum stöðum í
sveitinni og hafa m. a. allmörg risið í Helludal á
síðustu mánuðum.
Ný gróðurhús er verið að reisa bæði í Gufuhlíð og á
Espiflöt. Einnig hafa gróðurhúsin í Birkilundi verið
gerð upp og hafin þar ræktun blóma af ýmsum
tegundum.
I Friðheimum er verið að útbúa aðstöðu til að sýna
ferðamönnum hesta og reiðlist.
Bændur hófu jarðvinnslu til undirbúnings kornræktar
og endurvinnslu túna síðast í apríl, en þá skófu
plógarnir víða jarðklakann, sem mun ekki hafa verið
yfir hálfur metri að þykkt.
Landgræðslufélag Biskupstungna fékk hæsta
styrkinn, 7,5 milljónir króna, sem úthlutað var úr
Pokasjóði verslunarinnar í maí til uppgræðslu
rofabarða og endurheimt landgæða í Biskupstungum.
Bráðabirgðabrú hefur verið sett á Brúará fyrir vestan
Spóastaði til að taka við umferð um
Biskupstungnabraut meðan fyrri brú verður tvöfölduð.
Sparkvellir verða byggðir við Grunnskóla
Bláskógabyggðar bæði á Laugarvatni og í Reykholti í
sumar og hófust framkvæmdir við þá í maí.
Vorhátíð Skálholtskórsins var í Aratungu að kvöldi
síðasta vetrardags. Auk hans sungu þar Karlakór
Hreppamanna, Vörðukórinn, og hlutar kirkjukóra
Keflavíkurkirkju og Grafarvogssóknar. Þar voru
einnig ýmis skemmtiatriði og hljómsveit lék fyrir
dansi.
Þrítugsafmælis afgreiðslu Landsbankans í
Reykholti var minnst í byrjun maí. Hátíð sú hófst
með hlaupi 10-13 ára krakka, en síðan var samkoma í
Reykholtsskóla. Þarsýndu leikararog hljóðfæraleikari
„Brot úr sögu banka“, þar sem greint var frá 120 ára
sögu Landsbankans með leikrænum tilburðum.
Fyrsta ferming í prestakallinu í vor fór fram í
Torfastaðakirkju á sumardaginn fyrsta. Þá gekk fyrir
gafl Kristín Karólína Bjarnadóttir á Brautarhóli.
Annan sunnudag í sumri var Þórhildur Sigurðardóttir á
Kjóastöðum 3 fermd í Skálholtskirkju, Anna Karítas
Omarsdóttir í Heiðmörk var fermd í
Bræðratungukirkju 19. maí og Ólafur Aron Einarsson í
Haukadal 3 í Haukadalskirkju 20. maí. í
Skálholtskirkju voru Ásta Gunnarsdóttir, Hrosshaga 2,
Ástrún Sæland Skúladóttir í Reykholti 2, Freydís Halla
Friðriksdóttir í Vegatungu, Guðbjörn Bjarki
Brynjólfsson á Dalbrún 1, Guðrún Arna Loftsdóttir í
Vesturbyggð 1, Hallgrímur Davíð Egilsson í Skálholti,
Ida Bjarnadóttir á Kjóastöðum 2, Karítas Róbertsdóttir
á Bjarkarbraut 20, Lilja Ósk Geirsdóttir í Kistuholti 6,
Linda Rós Ragnarsdóttir í Tröðum, íris Ólafsdóttir á
Kirkjuvöllum 3 í Hafnarfirði og Stefán Geir Snorrason
á Litlu-Tjörn fermd á hvítasunnudag.
Gljásteinn ehf., sem Lofur Jónasson og Vilborg
Guðmundsdóttir í Myrkholti eiga, hefur tekið á leigu
sæluhúsin og önnur mannvirki í Fremstaveri, Árbúðum
og Svartárbotnum til að standa þar fyrir gestamóttöku.
Hörpukórinn, sem er hluti af Félagi eldri borgara á
Selfossi, söng á samkomu í Aratungu á
uppstigningardag. Þar var einnig einsöngur,
fjöldasöngur og veitingar. Samkoman var tileinkuð
minningu Ragnhildar Ingvarsdóttur frá Hvítárbakka og
í boði ekkils hennar, Hafsteins Þorvaldssonar á
Selfossi.
Sveinn Skúlason í Bræðratungu lést um miðjan mars.
Útför hans fór fram frá Skálholtskirkju en hann var
jarðsettur í Bræðratungu.
Guðmundur Óli Ólafsson, fyrrum sóknarprestur í
Skálholti, sem hefur verið búsettur í Reykjanesi í
Grímsnesi síðustu ár, andaðist rétt fyrir miðjan maí.
Hann var jarðsettur í Skálholti.
A. K.
__________________________________ 5 Litli Bergþór