Litli Bergþór - 01.06.2007, Blaðsíða 24
Afrit af bréfinu verður sent til Vegagerðarinnar,
umhverfisráðuneytis, menntamálaráðuneytis,
samgönguráðuneytis og Þingvallanefndar.
66. fundur byggðaráðs 27. mars 2007
Mœttir voru allir byggdaráðsmenn en Þórarinn
Þorfinnsson varamaður vegna fjarveru Sigrúnar
Lilju Einarsdóttur, einnig Valtýr Valtýsson,
sveitarstjóri, sem ritaði Jundargerð.
Samþvkktir og reglugerðir:
1. Endurskoðun samþykktar um hundahald í
Bláskógabyggð.
Drög að nýrri samþykkt um hundahald í
Bláskógabyggð kynnt og rædd. Samþykkt að vísa
henni til afgreiðslu hjá sveitarstjórn
Bláskógabyggðar.
2. Samþykkt um búfjárhald í Bláskógabyggð.
Drög að nýrri samþykkt um búfjárhald í
Bláskógabyggð kynnt og rædd. Samþykkt að vísa
henni til afgreiðslu hjá sveitarstjórn
Bláskógabyggðar.
Drög að menningarsamningi Suðurlands.
Oddviti kynnti fyrirliggjandi drög að
menningarsamningi Suðurlands og
samstarfssamningi milli sveitarfélaga á Suðurlandi.
Sveitarfélögin á Suðurlandi hafa unnið að gerð þessa
samnings undanfarin ár í samvinnu við
menntamálaráðuneytið. Æskilegt er að sveitarfélögin
undirriti samstarfssamning sín á milli á sama tíma og
menningarsamningurinn verður undirritaður.
Byggðaráð leggur til að menningarsamningurinn og
samstarfssamningurinn verði samþykktir og að
oddvita verði veitt umboð til að undirrita
samningana fyrir hönd Bláskógabyggðar.
Innsend bréf og erindi:
1. Bréf frá Guðmundi Guðmundssyni, dags. 28.
febrúar 2007.
I bréfinu kemur fram beiði um fjárstyrk, vegna
menningardags til minningar um Jónas frá Hriflu,
sem haldinn verður 9. júní 2007, allt að upphæð kr.
75.000.
Byggðaráð leggur til að veittur verði styrkur að
upphæð kr. 30.000 til verkefnisins.
2. Styrkbeiðni frá Skálholtskór, móttekin 20. mars
2007.
Byggðaráð leggur til að oddvita verði falið að ræða
við forsvarsmenn kórsins.
3. Styrkbeiðni frá Vísinda- og rannsóknarsjóði,
Fræðslunets Suðurlands, dags. 28. febrúar 2007.
Byggðaráð leggur til að styrkbeiðninni verði hafnað
vegna þess að ekki er rými innan fjárhagsáætlunar
ársins 2007.
4. Uppsögn samnings um leigu á landi til reksturs
tjaldsvæðis í Reykholti.
Leigutaki, Þórir Sigurðsson, hefur sagt upp upp
Litli Bergþór 24 _______________________________
samningi við Bláskógabyggð um rekstur tjaldsvæðis
í Reykholti, sem undirritaður var þann 16. maí 2006.
72. fundur sveitarstjórnar 3. apríl 2007
Mœttir voru allir sveitarstjórnarmenn en Jens Pétur
Jóhannsson sem varamaður Sigrúnar Lilju
Einarsdóttur einnig Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri,
sem ritaði fundargerð.
Samþvkktir:
1. Samþykkt fyrir hundahald í Bláskógabyggð.
Lögð fram drög að samþykkt fyrir hundahald í
Bláskógabyggð. Almennar umræður urðu um
fyrirliggjandi drög. Sveitarstjórn samþykkir
samhljóða fyrirliggjandi drög að samþykkt og felur
sveitarstjóra að senda hana til Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands til staðfestingar.
2. Samþykkt fyrir búfjárhald í Bláskógabyggð.
Lögð fram drög að samþykkt fyrir búfjárhald í
Bláskógabyggð, ásamt fylgiskjölum. Almennar
umræður urðu um fyrirliggjandi drög. Sveitarstjórn
samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og oddvita
að ljúka við endanlega uppsetningu á samþykktinni í
samræmi við umræður sveitarstjórnar og leggja fyrir
sveitarstjórn á næsta fundi.
Leigusamningur vegna húsa á Biskupstungnaafrétti.
Lögð fram tillaga að leigusamningi vegna gistiskála
á Biskupstungnaafrétti ásamt aðstöðu, skv. bókun
sveitarstjórnar 9. janúar 2007.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi
leigusamning, og felur sveitarstjóra að undirrita
samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
Samstarfssamningur sveitarfélaga í Uppsveitum
Arnessýslu.
Lögð fram drög að samningi um Laugaráshérað og
rekstrarfyrirkomulag sameiginlegra starfsmanna
Uppsveita Arnessýslu. Fyrirliggjandi samningur var
kynntur á ársfundi sveitarstjórna í Uppsveitum
Arnessýslu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggurtil að 12. grein
samningsins verði skoðuð sérstaklega og kannað
hvort hún geti staðist lagalega eins og hún er
varðandi úrsögn úr samstarfsverkefninu.
Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita að ljúka
frágangi og undirritun samningsins.
Rammaskipulag þéttbýlisins á Laugarvatni.
Lögð fram drög að rammaskipulagi þéttbýlisins á
Laugarvatni. Umræður urðu um fyrirliggjandi
hugmyndir að skipulagi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela
Landformi að vinna deiliskipulag að íbúðabyggð
neðan við Menntaskólatúnið sem fyrsta áfanga í
stækkun byggðar á Laugarvatni. Nauðsynlegt er að
flýta þessari vinnu sem kostur er.
Akvörðun um gjald vegna skólamáltíðar hjá grunn-
og leikskólum Bláskógabvggðar.