Litli Bergþór - 01.06.2007, Blaðsíða 6
Sveinn Skúlason
Minning
Sigríður og Sveinn í Bræðratungu.
Hann var fæddur í Bræðratungu 6. júlí 1927 og lést á
Sjúkrahúsi Suðurlands 14. mars sl.
Foreldrar hans voru hjónin Valgerður Pálsdóttir frá
Tungu í Fáskrúðsfirði og Skúli Gunnlaugsson frá
Kiðjabergi í Grímsnesi.
Sveinn átti alla ævi heima í Bræðratungu.
Hann stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni
1944 - 1946 og lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum
á Hvanneyri 1948. Hann hóf búskap á nýbýlinu
Bræðratungu 2, sem er helmingur Bræðratungunnar,
árið 1954 ásamt konu sinni, Sigríði Stefánsdóttur frá
Skipholti í Hrunamannahreppi. Þau nytjuðu alla jörð-
ina frá 1966 til 2000, er sonur þeirra tók við, en síðu-
stu 13 árin þar áður höfðu þeir feðgarnir búið þar
félagsbúi ásamt konum sínum.
Sveinn hafði brennandi áhuga á búskap og vildi búa
stórt og vel, enda lagði hann mikla áherslu á ræktun
bæði lands og búfjár.
Afrekshorn Búnaðarfélags Biskupstungna og
Búnaðarsambands Suðurlands hlaut hann fyrstur
manna árið 1986.
Hann tók mikinn þátt í félagsmálum; fyrst hjá
Ungmennafélaginu, þar sem hann var formaður í eitt ár
og gjaldkeri samtals í átta ár. Hann var í sveitarstjórn í
12 ár og formaður skólanefndar Reykholtsskóla í
nokkur ár og þá framkvæmdastjóri byggingar
Reykholtslaugar. Hann sat í stjórn Búnaðarsambands
Suðurlands á annan áratug, var formaður
Nautgriparæktarfélags Biskupstungna, deildarstjóri
Biskupstungnadeildar bæði Mjólkurbús Flóamanna og
Sláturfélags Suðurlands í áratugi. Þá var hann lengi
formaður Jarðanefndar Arnessýslu.
Hann beitti sér fyrir ýmsum framfaramálum, sem ekki
tengdust þessum störfum beint, svo sem byggingu
brúar á Tungufljót fyrir sunnan Krók og lagningu
hitaveitunnar, sem nefnd er Brúin.
Hann fór fyrst til fjalls 14 ára og var síðar fjallkóngur í
11 ár.
Sveinn hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og fylgdi
Sjálfstæðisflokknum að málum og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum á hans vegum.
Hann bar hag Bræðratungukirkju mjög fyrir brjósti og
var lengi formaður sóknarnefndar og meðhjálpari þar
frá 1966 til dauðadags.
Öll sín störf rækti Sveinn af miklum áhuga, sam-
viskusemi og dugnaði.
A. K.
Heimasímar:
Loftur: 486 8812
853 1289
VÉLAVERKSTÆOI
________Heimasímar:
Guðmundur: 486 8817
Helgi: 482 3182
IÐU • BISKUPSTUNGUM
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 490179-0549
Viðgerðir á búvélum og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta Olíusíur í bíla og dráttarvélar
Litli Bergþór 6