Litli Bergþór - 01.06.2007, Blaðsíða 22
Hrepp snefndarfréttir
Úr fundargerðum sveitarstjórnar og byggðaráðs Biáskógabyggðar
65. fundur byggðaráðs 27. febrúar 2007
Mœttir voru allir byggðaráðsmenn en Pórarinn
Porfinnsson varamaður vegna fjarveru Sigrúnar
Lilju Einarsdóttur, einnig Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Pétur Ingi
Haraldsson, skipulagsfulltrúi uppsveita Arnessýslu,
sat fundinn undir liðum þar sem fjallað var um
skipulagsmál.
Safnvegaáætlun 2007- 2010.
Byggðaráð leggur til að kallað verði eftir
upplýsingum um forsendur framlagðrar áætlunar frá
fulltrúum Vegagerðarinnar, hvað varðar þá verkþætti
sem snúa að Bláskógabyggð.
Innsend bréf og erindi:
1. Bréf frá Böðvari Þór Unnarssyni, dags. 1. febrúar
2007.
I bréfinu er óskað eftir fjárstyrk vegna gerðar
sjónvarpsþáttar um fornleifarannsóknina í Skálholti.
Byggðaráð leggur til að umsókninni verði hafnað,
þar sem ekki er gert ráð fyrir kostnaðarlið sem
þessum í fjárhagsáætlun ársins.
2. Bréf frá Finnboga Kristjánssyni, f.h. Hannesar
Lentz, dags. 19. febrúar 2007.
I bréfinu óskar bréfritari eftir umsögn sveitarstjórnar
um stofnun lögbýlis á landspildu, 68 ha, úr Efra-
Apavatni II, sem nefnt verði Skógarhlíð.
Afstöðumynd fylgir erindinu.
Byggðaráð gerir engar athugasemdir við stofnun
þessa nýja lögbýlis.
3. Umsókn um byggingarlóð.
Lögð fram umsókn um iðnaðarlóðina Lindarskógur
9, Laugarvatni. Umsækjandi er Jón Þór Ragnarsson,
kt. 271249-4549. Lóðin var auglýst laus til
umsóknar síðast liðið vor. Byggðaráð samþykkir
fyrirliggjandi umsókn.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að ekki verða fleiri
byggingarlóðum úthlutað fyrr en ný gjaldskrá
gatnagerðargjalda hefur verið samþykkt.
Efni til kvnningar:
1. Undirskriftarlisti frá íbúum Bjarkarbrautar í
Reykholti.
Osk um úrbætur og frágang á Bjarkarbraut í
Reykholti.
2. Fyrstu drög að nýrri gjaldskrá gatnagerðargjalda
fyrir Bláskógabyggð.
Lögð fram frumdrög að nýrri gjaldskrá
gatnagerðargjalda fyrir Bláskógabyggð. Forsendur
gjaldskrárinnar ræddar.
70. fundur sveitarstjórnar 21. febrúar 2007
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn en Jens Pétur
Jóhannsson sem varamaður Sigrúnar Lilju
Einarsdóttur, einnig Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri,
sem ritaði fimdargerð.
Þriggja ára áætlun Bláskógabvggðar 2008 -2010
tsíðari umræða').
Valtýr gerði grein fyrir framlagðri þriggja ára áætlun
Bláskógabyggðar fyrir árin 2008 - 2010.
Helstu lykiltölur áætlunar fyrir samstæðureikning
eru í þúsundum króna:
2008 2009 2010
Tekjur: 674.913 702.840 731.156
Gjöld: 611.931 635.816 656.320
Rekstrarniðustaða: 27.913 34.383 44.760
Eignir: 671.849 674.667 683.507
Skuldir: 509.466 477.902 441.982
Eigið fé: 162.382 196.765 241.526
Fjárfestingar (nettó): 25.000 30.000 32.000
Ljóst er að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er þröng.
Ný lántaka að upphæð kr. 50 milljónir hefur verið
samþykkt og fyrir liggur að fresta verður greiðslum
af láninu allt kjörtímabilið. Langtímaskuldir
Bláskógabyggðar í lok árs 2007 eru áætlaðar 420
milljónir króna sem eru um 63% af áætluðum tekjum
ársins 2007.
Mikilvægt er að tekjur standi undir gjöldum en það
hefur sýnt sig að gatnagerðargjöld vegna
nýframkvæmda í gatnagerð eru langt undir kostnaði.
Lætur nærri að kostnaður sé 100% hærri en
gatnagerðargjöldin og eru þau því aðeins um
helmingur af því sem nýbygging gatna í þéttbýlunum
kostar. Sveitarstjórn er sammála um breyta þurfi
gatnagerðargjaldskrá og færa hana nær raunkostnaði
við framkvæmdir. Jafnframt þarf að endurskoða aðra
rekstrarþætti sveitarfélagsins með það að markmiði
að hagræða og nýta betur það fjármagn sem
innheimtist með þjónustugjöldum.
Litli Bergþór 22