Litli Bergþór - 01.06.2007, Qupperneq 7

Litli Bergþór - 01.06.2007, Qupperneq 7
/ / Guðmundur Oli Olafsson Minning Guðmundur í ræðustól í Mosfellskirkju. Hann var fæddur í Reykjavík 5. desember 1927 og lést á heimili sínu í Reykjanesi í Grfmsnesi 12. maí sl. Foreldrar hans voru hjónin Hallfríður Bjarnadóttir frá Eskihlíð í Reykjavík og Ólafur Guðmundsson frá Ægis- síðu í Holtum. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 og lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1953 og var síðan tvö ár í framhaldsnámi í Noregi og Þýska- landi. Hann varð sóknarprestur í Skálholtsprestakalli 1. júní 1955 og gegndi því starfi í 42 og hálft ár. Hann var prófastur Arnesprófastsdæmis síðustu tvö prest- skparár sín. Kona hans var Anna Magnúsdóttir frá Ólafsvík á Snæfellsnesi, fædd 17. desember 1927, dáin 1. ágúst 1980. Þau bjuggu á Torfastöðum til 1963 en eftir það í Skálholti. Þegar hann lét af prestskap keypti hann jörðina Reykjanes í Grímsnesi ásamt félögum sínum í hrossaræktinni og byggði sér þar hús, sem hann bjó í til æviloka. Guðmundur byrjaði ungur að starfa í Kristilegu félagi ungra manna og hafði alla tíð mikinn áhuga á trúmálum, boðun fagnaðarerindisins og kirkjulegri tónlist. Hann hafði yndi af hestum, bæði hrossarækt og reið- mennsku, og var aðal hvatamaður að stofnun Hestamannafélagsins Loga og formaður þess fyrstu tíu árin. Guðmundur var málhagur og setti stundum saman leikþætti til flutnings á árshátíð Hestamannafélagsins. Hann var um skeið ritstjóri Kirkjuritsins og Hestsins okkar, rits Landssambands hestamanna, og skrifaði í þau greinar og viðtöl. í allmörg ár gaf hann út Skræðu, fjölritaðan bækling með ýmsu efni, aðallega frumsömdu, sem hann dreifði meðal sóknarbarna sinna og fleirri. Víða annars staðar birtust ritsmíðar eftir hann, bæði í bundnu og óbundnu máli, þýddar og frumsamdar. Árið 2005 kom út eftir hann söguleg skáldsaga, Haustgotasaga, undir dulnefninu Semingur. Þar fjallar hann m. a. um mátt kærleikans og hesta í Skálholti og nágrenni þess fyrr á tíð. Hann var drátthagur og hannaði merki bæði Loga og Ungmennafélags Biskupstungna. Einnig skreytti hann stundum rit sín með teikningum. A. K Raflagnir - Viðgerðir Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. Efnissala og varahlutaþjónusta. Fljót og góð vinna. Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki um öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum og lagningu raflagna. Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI HEIMASIMI 486 8845 Verkstæði sími 486 8984 GSM 893 7101 7 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.