Litli Bergþór - 01.06.2007, Blaðsíða 8
Nemendafélag Grunnskóla
Bláskógabyggðar í Reykholti
í þessari grein ætlum við að greina frá því helsta sem við nemendur í Grunnskóla Bláskógabyggðar höfum verið að gera í félagslífinu í
vetur. Við ætlum að segja frá því sem Nemendafélagið hefur verið að gera svo og frá þeim viðburðum þar sem nemendur skólans hafa
verið að standa sig vel út á við í nafni skólans. Það er af mörgu að taka og of langt mál að telja alla hluti upp, en hér verður sagt frá því
helsta. Við byrjuðum haustið á því að kjósa stjóm Nemendafélagsins. Kosnir vora 7 nemendur úr 7-10 bekk. Kosið var innan hvers
bekkjar fyrir sig um fulltrúa í stjóm nemendafélags. Eftirtaldir vom kosnir og hafa þeir skipt með sér störfum:
Formaður: Auður Ýr Jónsdóttir (10. b.) Gjaldkeri: Sigurður Skúli Benediktsson (10. b.) Ritari: Katrín Ösp Jónasdóttir (9. b.)
Meðstjórnendur: Eyrún ída Guðjónsdóttir (9. b.), Karitas Róbertsdóttir (8. b.), Ástrún Sæland (8. b.) og Bjarni Sævarsson (7.b.).
Stjórn nemendafélagsins 2006-2007. Fremri röð f.v.: Sigurður
Skúli Benediktsson (10. b.) gjaldkeri, Auður Ýr Jónsdóttir (10.
b.) formaður, Karitas Róbertsdóttir (8. b.). Aftari röð f.v.: Bjarni
Sævarsson (7.b.), Eyrún fda Guðjónsdóttir (9. b.), Katrín Ösp
Jónasdóttir (9. b.) ritari, Ástrún Sæland (8. b.)
Haustball
Við héldum Halloween ball 2. nóvember fyrir 7.-10.
bekk í Reykholti, Laugarvatni, Flúðum, Stokkseyri og
Eyrarbakka. Það ball gekk mjög vel, enda mikið haft
fyrir því að skipuleggja, skreyta og gera þetta að
alvöru balli. Skólaband frá Flúðum hitaði upp og
hljómsveitin
Moonshine spilaði.
Það var auðvitað
beðið um að koma í
búningum og sem
betur fer komu
flestir í búningum.
Aron vann verðlaun fyrir flottasta
búninginn.
Guðrún Gígja að fíla sig í botn.
Flúðaball
Flúðaskóli bauð okkur á ball til sín 18. janúar. Það
söfnuðust allir saman í rútu og lögðum við svo af stað
til að fara að flippa á Flúðum. Öllum var heimilt að fá
sér pizzu, nammi og gos. Hljómsveitin Putas hitaði
upp og síðan tók Svitabandið við og þá var sko dansað
og allir ótrúlega þreyttir eftir ballið.
Nemendur úr 10. bekk.
Árshátíðin
Eins og venja er sá 9. bekkur um árshátíðina og stóðu
þau sig rosalega vel. Þetta var galaball og allir komu í
sínum bestu fötum. Ballið var 8. febrúar og gekk alveg
frábærlega. Boðið var upp á mat, skemmtiatriði og
auðvitað ballið sjálft. Veðurguðirnir spiluðu og héldu
stemmingunni uppi allan tímann. Töldu flestir að þetta
hefði verið skemmtilegasta ball sem þau höfðu farið á
á þessu ári.
Stærðfræðikeppni
Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi var haldin í
febrúar og við eignuðumst tvo meistara, Karólínu
Wakulowska sem lenti í 1. sæti í 8. bekk og Jón Hjalta
Eiríksson í 1. sæti í 10. bekk. Glæsilegur árangur.
Skólahreysti
Undankeppnin í Skólahreysti fyrir Suðurland fór fram
á Selfossi fimmtudaginn 22. febrúar s.l. Það er óhætt
að segja að Grunnskóli Bláskógabyggðar hafi staðið
sig með miklum sóma, því við lentum í 3. sæti eftir
æsispennandi keppni við Flúðaskóla og Vallaskóla.
Við vorum aðeins 4,5 stigi frá því að sigra í keppninni.
Litli Bergþór 8