Litli Bergþór - 01.12.2008, Qupperneq 7
Afmælisárið 2008
Það mun hafa verið einhvern tíman um mitt ár 2007 sem
stjórn Ungmennafélags Biskupstungna fór þess á leit við
þau Matthildi Róbertsdóttur, Svein A. Sæland og Gunnar
Sverrisson, að þau tækju að sér að skipa afmælisnefnd til
að standa að og sjá um einhverja afmælisdagskrá og
einhverja þá viðburði sem nefndinni þætti við hæfi í tilefni
100 ára afmælis félagsins árið 2008.
Þar sem fyrrnefndir sveitungar eru allt saman gamlir
félagsmálajaskar úr starfi Ungmennafélagsins, rann þeim
blóðið til skyldunnar og tóku verkið að sér og hittust á
fyrsta formlega og bókaða fundi í Hrosshaga 3. september
2007.
Þau þurftu að sjálfsögðu fyrst að skipta með sér verk-
um, og varð úr að Gunnar Sverrisson yrði formaður
nefndarinnar og Matthildur Róbertsdóttir tæki að sér að
skrá fundargerðir. Síðan voru höfuð lögð í bleyti.
Á fyrsta fund nefndarinnar mættu einnig formaður vor,
Guttormur Bjarnason, og leikdeildarfólk, þau Guðný
Rósa Magnúsdóttir og Egill Jónasson, svo voru fulltrúar
íþróttadeildar, Helga María Jónsdóttir og Kristín
Guðbjömsdóttir, og Arnór Karlsson var svo frá útgáfu-
nefnd.
Á fundinum var farið yfir ýmsar hugmyndir sem félag-
ar tóku með sér í nestið til frekari skoðunar, en
Leikdeildin var þegar búin að ákveða að setja upp leikrit,
sem að sjálfsögðu yrði hluti af okkar afmælisdagskrá.
Til þess að gera vinnusögu afmælisnefndarinnar stutt
skil hélt hún sex formlega og bókaða fundi fram að
afmælishátíðinni sjálfri á sumardaginn fyrsta, en þessum
fundum eru gerð góð skil í fundargerðarbók afmælis-
nefndar.
Nefndin ákvað að byggja afmælisdagskrána upp á
nokkrum atburðum, sem dreift væri nokkuð um árið, en
mætti líta á sem táknræna fyrir starf félagsins á ýmsum
tímabilum, auk hátíðarsamkomunnar.
1. Íþróttahátíð og e.t.v. fleira sem íþróttadeild tók að
sér að sjá um.
2. Uppfærsla leikrits, en leiklistin verður að teljast ein
af skrautfjöðrum félagsins.
3. Kvöldvaka með sögulegu, listrænu og menningar-
legu ívafi, en ýmiss konar þannig samkomur voru talsvert
áberandi í starfi félagsins á vissum tímaskeiðum.
4. Gönguferðir, t.d. þrjár kvöldgöngur snemmsumars
þar sem fléttað yrði saman vettvangsferðum og fræðslu
um starf félagsins og fleira.
5. Sveitaball !!! Ungmennafélagið kom heilmikið að
dansiballahaldi hér áður fyrr og þótti afmælisnefndinni
vel við hæfi að halda eitt slíkt í Aratungu, en Aratunga
var eitt vinsælasta dansleikjahús landsins á árum áður.
Ennfremur yrði haldið áfram að safna saman gögnum
og heimildum um sögu og starf Ungmennafélagsins, en
það verk hefur einkum hvílt á Amóri Karlssyni undan-
farin ár, og mun hann áfram sinna því, en ekki hefur enn
sem komið er verið tekin ákvörðun um hvernig útgáfu-
málum verður liáttað.
Síðan hófumst við handa. í janúar sendum við út dreifi-
bréf þar sem við kynntum það sem á döfinni væri, en
fyrst á þeirri dagskrá var kvöldvaka í Aratungu 9. febrúar.
Gestir okkar það kvöld voru Bjarni Harðarson, alþingis-
maður og Tungnamaður, eins og hann kynnir sig sjálfur,
og Jón H. Sigurðsson frá Uthlíð, líffræðingur og kennari,
en Jón var einnig formaður Ungmennafélagsins á árum
áður.
Bjarni ræddi um mannlíf og sérstaka einstaklinga í
Biskupstungum fyrr á tímum á sinn skemmtilega hátt, en
Jón kom með myndband sem við kölluðum „Frá bæ til
bæjar“ en hann hafði í nokkur ár fengist við að mynda
bæi hér í Tungum frá ýmsum sjónarhornum og á ýmsum
árstímum. Jón tók því afskaplega ljúfmannlega þegar for-
Jón afhendir Sveini Sæland mynddiskinn.
maður afmælisnefndar, sem vissi af því hvað Jón átti í
fórum sínum, spurði hvort hann ætti nokkuð tilbúið til
sýningar. Svo var nú ekki, en Jón taldi það ekki málið,
bara drífa í þessu, sem hann og gerði og kom með þetta
bráðskemmtilega myndband og sýndi okkur. Hann hafði
orð á því að hann langaði að gera þetta alltsaman meir og
betur þegar tími gæfist til.
Því miður gat ekki orðið af því né heldur ýmsu öðru
sem Jón hugðist taka sér fyrir hendur því viku síðar varð
hann bráðkvaddur. Blessuð sé minning Jóns í Úthlíð.
Á kvöldvökunni flutti kvartett skipaður söngfólki úr
sveitinni mjög vandaða og skemmtilega dagskrá.
Sönghópinn skipuðu þau Aðalheiður Helgadóttir, Osk
Gunnarsdóttir, Gísli Guðmundsson og Karl Hallgrímsson.
I dagskrárhléi og að henni lokinni sátu gestir sem voru
um 80 talsins yfir kaffi og konfekti og nutu samverunnar,
og var ekki annað að heyra en fólki þætti þetta hin
ánægjulegasta kvöldstund.
Þá var komið að öðrum af hápunktum afmælis-
dagskrárinnar, frumsýningu á leikritinu Leynimel 13 eftir
Þrídrang, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar.
Skemmst er frá því að segja að þessi uppfærsla og sýn-
ingar leikhópsins voru enn eitt afrek þessa duglega leik-
deildarfólks, sem hefur hvað eftir annað undanfarin ár
glatt okkur með snilli sinni. Sýningar fengu góða aðsókn
og urðu alls 12 og gestir um 957.
Veggir í forstofu og sal voru skreyttir með vegg-
spjöldum, bæði gömlum og nýjum með myndum úr starfi
7 Litli Bergþór