Litli Bergþór - 01.12.2008, Page 8
félagsins. Um helgar var boðið upp á mat á undan sýning-
um í matsalnum, og var það vel nýtt.
Nú var farið að styttast í afmælisdaginn sjálfan, en það
er einfaldlega sumardagurinn fyrsti, óháð mánaðardögum,
þetta árið bar hann upp á 24. apríl.
An þess að gera sérstaklega grein fyrir undirbúningi
hátíðarinnar, þá var lagt upp með að íþróttadeildin stæði
að íþróttahátíð í íþróttahúsinu um miðjan daginn, en síðan
yrði afmælisveislan sjálf í Aratungu um kvöldið.
Íþróttahátíðin var feikna vel sótt bæði af þátttakendum
og áhorfendum. Jón Bjarnason, þaulvanur skemmtana-
stjóri, var fenginn til að keyra fjörið áfram, sem honum
tókst vel að vanda, en að öðru leyti sáu þeir Helgi
Kjartansson, íþróttakennari skólans, og Axel Sæland um
að stjórna samkomunni auk margra foreldra sem hjálpuðu
til. Þarna var mikil fjölbreytni í þeim sýnishornum af
íþróttagreinum sem var brugðið upp af börnum og ungl-
ingum fyrst og fremst, og stóðu þau sig öll frábærlega.
Um kvöldið var svo hátíðarsamkoman sjálf, og komu
þar hátt í 200 gestir. í síðasta blaði Litla-Bergþórs var
reyndar sagt frá þessari hátíð svo að um dálitla endur-
tekningu verður að ræða.
Formaður afmælisnefndar setti samkomuna og sá um
veislustjórn, en formaður Ungmennafélagsins, Guttormur
Bjarnason, flutti hátíðarræðu. Margrét Baldursdóttir flutti
ljóð sem hún nefndi „Á liðinni öld“ en það er einskonar
söguljóð, sem hún samdi að beiðni afmælisnefndar.
Mjög skemmtilegt ljóð, sem hefur verið birt hér í blaðinu.
Leikdeildin skellti á sviðið sýnishorni úr leikritinu
„Síldin kemur og síldin fer“, en Leikdeildin setti það upp
fyrir nokkrum árum. Stjórn Ungmennafélagsins notaði
tækifærið og veitti Leikdeildinni viðurkenningu fyrir sitt
öfluga starf, og einnig barst kveðja frá Bandalagi
íslenskra leikfélaga.
Heimasíða fyrir félagið var formlega opnuð, en hana
hefur Kristín Guðbjömsdóttir gert. Hún kynnti hana
þarna og afhenti félaginu að gjöf til minningar um
Egill í Hjarðarlandi, Hjalti á Kjóastöðum 2 og íris á Ekru á
Leynimel 13. Ljósmynd: Olafnr Oskar Egilsson.
Sönghópurinn.
ömmusystkini sín frá Drumboddsstöðum, þau Guðríði,
Þórarinn og Þorstein Þorsteinsbörn.
Þær Osk Gunnarsdóttir og Steinunn Bjarnadóttir fluttu
nokkur lög og Sigurður Erlendsson stjórnaði fjöldasöng
af mikilli röggsemi.
Stjórn Ungmennafélagsins heiðraði nokkra einstaklinga
á þessum tímamótum með því að gera þá að heiðurs-
félögum.
Þetta voru þau Sigurjón Kristinsson, Björn Sigurðsson,
Bjöm Bjarndal Jónsson, Margrét Sverrisdóttir, Róbert
Róbertsson, Sveinn A. Sæland og Bragi Þorsteinsson.
Við fengum marga góða gesti til okkar, m.a. frá
nágrannafélögum okkar og svo heildarsamtökum, sem
félagið á aðild að. Ymsir tóku til máls og fluttu félaginu
heillaóskir og einnig fékk það góðar gjafír, sem rétt er að
gera hér nokkra grein fyrir.
Fyrst af öllu skal nefna Kvenfélag Biskupstungna, sem
gaf félaginu veislukaffið með öllum tilheyrandi,
undirbúningi og vinnu.
Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ,
flutti hvatningarræðu og gaf félaginu bikar, sem það gæti
notað sem farandbikar eftir eigin ákvörðun.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFI, færði
félaginu áletraðan veggskjöld og blómvönd.
Ungmennafélagið Hvöt gaf einnig áletraðan skjöld og
félagsfána sinn.
Héraðssambandið Skaiphéðinn færði félaginu stóran
bikar og áletraða gestabók.
Ungmennafélag Laugdæla gaf stóran blómvönd ásamt
vönduðu 50 metra málbandi.
Ungmennafélag Skeiðamanna færði okkur tvær
skeiðklukkur og málband.
Frá Ungmennafélagi Gnúpverja fengum við blómvönd
og heillaóskir.
Eftirtaldir gáfu Ungmennafélaginu veglegar peninga-
gjafir og færðu því heillaóskir: Búnaðarfélag
Biskupstungna, Sveitarstjórn Bláskógabyggðar og
Hestamannafélagið Logi.
Nú var komið sumar og fór að nálgast næstu viðburði,
sem nefndin hafði sett á dagskrá, þ.e.a.s. gönguferðirnar,
Litli Bergþór 8