Litli Bergþór - 01.12.2008, Page 12

Litli Bergþór - 01.12.2008, Page 12
sitt. í reynd eru þau ægilega góðir vinir enda gengur þetta nú oft svona hjá börnum þó þau lendi ekki í svona skyndilegum breytingum en þetta var óneitanlega svolítið erfitt. Þegar það var svo orðið hægt að fara í glasafrjóvg- un hérna á Islandi, þá ákváðum við að reyna það og vorum svo heppin að fá eina stelpu út úr því en það er Ásta sem er fædd 1993. Síðan kom Sigrún alveg í bónus með gömlu góðu aðferðinni 1995. Ég átti mjög góða vinkonu og frænku sem hét Sigrún og bjó í Birtingaholti, hún dó ung, 22ja ára fórst hún í snjóflóði í Ingólfsfjalli ásamt unnusta sínum. Ég ætlaði alltaf að láta heita eftir henni en þegar Ásta kom þá var það svo sterkt í mér að hún ætti að heita Ásta þrátt fyrir þennan ásetning minn. En svo kom önnur stelpa tveim árum seinna þannig að hún fékk að sjálfsögðu nafnið Sigrún. Maður á nefnilega alltaf að fara eftir innsæinu. Þær eru núna í 8. og 10. bekk og þeim gengur mjög vel í skólanum, eru bara flottir unglingar. Jón Ágúst er með mikla bíla- og véladellu, og fær útrás fyrir hana því hann er með meirapróf og vinnur vélavinnu. Það er gott að hann skuli geta unnið við það sem hann hefur áhuga á. Hann býr ennþá hér heima. Osk á eftir að læra það sem hugurinn stendur til, því hún fór ung í sambúð og var aðeins 17 ára þegar hún eignaðist Sverri Örn sem er sjö ára núna. Svo eignaðist hún tvíbura fyrir tveimur árum, þeir heita Óðinn Logi og Isak Eldur, mjög athafna- miklir og efnilegir prakk- arar. Jón Ágúst á ársgamla dóttur, Guðrúnu Steinunni, sem býr hjá mömmu sinni í Reykholti og við fáum hana sem betur fer oft lánaða. Þannig að það streyma að okkur barnabörnin, við búum við mikið barnalán. Og svo er það eins og gengur í nútímaþjóðfélagi þar sem börn eiga oft ofgnótt af öfum og ömmum að það eru tvær litlar stelpur sem hafa kallað mig ömmu og gera reyndar enn þegar við hittumst en eru samt horfnar aftur út úr lífi mínu sem barnabörn. Þannig að það eru sex börn sem kalla mig ömmu en ekkert þeirra er blóðtengt mér. En það skiptir engu máli og þau eru öll yndisleg. Við höfum heilmikið passað þau, sérstak- lega strákana hennar Óskar og ekki síst núna því hún er orðin einstæð móðir og þarf á aðstoð að halda. Hún hefur verið mikið í söngnum, alin upp í barnakórnum hjá Hilmari og á honum mikið að þakka. Og svo sann- arlega vona ég að hún eigi eftir að læra meira og geti snúið sér í auknum mæli að söngnum. Áhugamálin eru margskonar Áhugamálin eru svo mörg að mér finnst stundum að ég sinni engu þeirra almennilega. Mér finnst það vera algjör forréttindi að fá að búa svona úti í náttúrunni og geta gengið út á morgnana í kyrrð og fegurð alla daga og ég get ekki hugsað mér að vera án þess. Ég er svo mikið náttúrubarn í mér að ég held ég myndi ekki þrífast í Reykjavík, en það hefur aldrei reynt á það. Allskyns útivera er mikið áhugamál hjá mér þó að ég hafi alltof lítið getað sinnt því. Ég vildi ganga miklu meira en ég hef gert en bæði hefur tímskortur hamlað því og svo hef ég ekki verið nógu góð í fótum síðustu 10 árin eða svo þó ég hafi skánað mikið. Ég er bara mjög fegin að geta gengið yfirleitt. Ég elska að ferðast um landið og langar að gera meira af því. Mér finnst líka gott að vera bara í rólegheitum og dunda mér inni heima hjá mér. Skammdegið fer afskaplega vel í mig og mér finnst gott að kveikja á kertum og hafa það gott og lesa bækur. Um þessar mundir er ég heltekin af Sudoku, ég sofna jafnvel út frá þeim á kvöldin ef ég er ekki að lesa. Ég hef líka gaman af handavinnu, bútasaumur finnst mér sérstaklega skemmtilegur, þegar ég fer í hann þá er hvorki ryksugað, eldað né gert nokkuð annað sem tefur mig frá honum. Ég fór einu sinni á námskeið í trésmíði fyrir konur hjá fræðslunetinu og síðan hef ég ætlað að snúa mér að því á fullu en það er eitthvað sem heitir tímaskort- ur sem að hrjáir mig. Ég fór líka á námskeið hjá Guðmundi Magnússyni sem heitir Lesið í skóginn og tálgað í tré. Fór meira að segja í tvígang. Við Maggý, mágkona mín, fórurn saman á fyrsta námskeiðið sem var haldið hérna upp í Haukadal. Þar var Ranka í Kotinu að byrja að læra að skera út fugla og hefur nú haldið heldur betur áfram síðan. Það fer minna fyrir því hjá mér. Seinna var ég svo í námi í Garðyrkjuskólanum sem heitir Grænni skógar og þar var þetta hluti af því og aftur upptendraðist ég af áhuga og ætlaði að fara að gera svo mikið en það er þessi tímaskortur. Kannski er þetta líka skipulagsleysi. Svo finnst mér frábært að fara í yoga og hef áhuga á ýmsum dulrænum málefnum. Einnig finnst mér gaman að rækta garðinn minn, sérstaklega matjurtir. Ég var með hesta og fór stundum á hestbak en hef ekkert farið síðustu tvö, þrjú árin. Fyrstu árin mín hérna held ég að ég hafi starfað í flestum félögum sem til voru. Ég var í Ungmenna- félaginu, Búnaðarfélaginu, einhverntíman var ég í Hestamannafélaginu og ég var meira að segja formaður sóknarnefndar á Torfastöðum um tíma. Ég var ekki tilbúin að fara í Kvenfélagið, fannst nóg af öðru. Fyrir ári síðan gekk ég í Landgræðslufélagið en ég hef nú afskaplega lítið starfað þar þó mig langi til þess. Þegar verið er að fara í landgræðsluferðir á sumrin þá erum við yfirleitt á kafi í heyskap og búskap og komumst ekki. Ég hef aldrei verið í Björgunarsveitinni og ekki í Lions. Þegar ég hætti í stjórn íþróttadeildarinnar kom tímabil þar sem ég var ekki í neinu, þá fór mér eiginle- ga að leiðast. Margir fara í vinnu og hitta fólk og njóta þess svo bara að vera heima hjá sér á kvöldin en ég var bara ein með kallinum allan daginn og meira að segja hætt að vera í félagsbúi, börnin voru í skólanum og við bara tvö ein. Ég er ekki að segja að Gunni sé leiðinle- gur en ég hafði þörf fyrir að fara að hitta fleira fólk og þá gekk ég í Kvenfélagið. Fyrir einu og hálfu ári síðan var ég kjörin ritari í Tvíburarnir. Litli Bergþór 12

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.