Litli Bergþór - 01.12.2008, Page 16
Gott að hafa í huga
á erfiðum tímum
Nokkur orð frá félagsþjónustunni
Eins og flest okkar vita þá hefur margt gerst í heim-
inum undanfarnar vikur og hafa íslendingar ekki farið
varhluta af þeim fjármálaáföllum sem dunið hafa yfir.
Staðreyndin er sú að fólk finnur mis mikið fyrir áhrifum
fjármálakreppunnar og sumir koma betur út úr henni en
aðrir.
Oft vill það gleymast að áföll og sorg tengjast ekki
bara slysum eða ástvinamissi því þó að áföll vegna fjár-
málakrísu og atvinnumissis séu af allt öðrum toga, þá
geta áhrifin í reynd verið lítið frábrugðin. Sama hvað
það er sem veldur áfalli hjá fólki, þá eru viðbrögðin,
bæði andleg og líkamleg, nánast þau sömu. Afall er
oftast gríðalega mikið álag á fólk þannig að ástandið
verður því ofviða og það ræður ekki við það. Helstu
einkenni eru þau að fólk getur fundið fyrir þreytu,
svima, svefnleysi, verkjum í líkama eins og í maga,
höfði eða brjósti. Fólk missir einbeitinguna og á erfitt
með að muna og að koma orðum að hlutum. í mjög
alvarlegum áföllum geta einnig komið fram einkenni
eins og skyndilegur kaldur sviti, skjálfti/krampi og
niðurgangur. Þunglyndi getur komið í kjölfar áfalls og
þá er áhugi fólks almennt minni á sem því sem það
gerir, matarlyst eykst eða minnkar, breytingar á svefn-
venjum, sjálfsásakanir og sektarkennd, óákveðni, óró-
leiki, löngun í áfengi og vímuefni, sjálfsvígshugsanir og
sjálfsvíg.
Enginn einstaklingur er eins og því nánast
ómögulegt að segja fyrir um hvernig hver og einn
bregst við. Fólk notar misjafnar aðferðir til að ná sér
upp úr áfalli og sorg. Ekki má heldur gleyma því að
fólk er ekki eitt um að hafa upplifað áfall. Það er
ekkert eins eðlilegt og að finna fyrir vanlíðan og sorg
eftir áfall. Flestir komast í gegnum það sjálfir, oft með
góðum stuðningi frá sínum nánustu hvort sem um er að
ræða fjölskyldu, vinum, samstarfsfélögum eða öðrum.
Það tekur fólk mis langan tíma að vinna úr sínum
málum og við megum ekki vanmeta kraft einstaklinga
til ná að jafna sig án aðstoðar fagfólks. Hins vegar ber
öllum að vera vakandi yfir því hvernig náunganum
líður. Ef fólk er enn með alvarleg einkenni áfalls eftir
nokkrar vikur er þó rétt að leita sér hjálpar. Einnig er
rétt að láta vita ef áhyggjur eru af öðrum. Hægt er að
tala við ættingja þeirra, vini eða aðra sem þekkja þá vel.
Ef ekki er um slíkt að ræða er sjálfsagt að láta lækni á
heilsugæslu vita af áhyggjum. Þessir einstaklingar
mega ekki gleymast og því skiptir gríðarlega miklu rnáli
fyrir alla að vera vakandi yfir líðan annarra.
Allir eiga kost á því að leita til félagsþjónustu í sínu
sveitarfélagi eftir aðstoð og ekki síst á tímum sem þess-
um. Hjá félagsþjónustunni starfa félagsráðgjafar sem
hafa háskólamenntun og sérþekkingu á félags- og heil-
brigðisþjónustu ásamt dóms- og menntakerfi.
Félagsráðgjafar geta því veitt félagslega ráðgjöf á mörg-
um sviðum og fólk getur því leitað eftir aðstoð til
dæmis vegna fjárhagsvandræða, atvinnu- og hús-
næðismála og andlegrar líðan. Ekki síst veita félags-
ráðgjafar einstaklings- og fjölskylduráðgjöf og þekkja
vel til áfallahjálpar.
Mikilvægt er að fólk hafi það í huga að nauðsynlegt
er að leita sér aðstoðar ef því reynist erfitt að vinna úr
sínum málum eða hefur þörf á að létta á áhyggjum
sínum og fá stuðning. Starfsmenn félagsþjónustunnar
eru ávallt boðnir og búnir til að aðstoða og leiðbeina
öllum þeim sem þess óska, óháð stöðu þeirra í þjóð-
félaginu.
Höfum líðan okkar sjálfra og þeirra sem standa
okkur næst ávallt í fyrsta sæti í forgangsröðinni, þar
sem það er dýrmætasta eign okkar allra.
F.h. Félagsþjónustu
uppsveita Árnessýslu og Flóa
Anulís Tómasdóttir, félagsráðgjafarnemi
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
GSM 899 9544
HEIMASÍMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 16