Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.1997, Blaðsíða 13
samhliða aðalfundi í desember. En þær áætlanir
breyttust vegna heimsókna ættmenna okkar frá
Kanada. Þess í stað var haldið ijölmennt niðjamót
okkar í samkomusal Hallgrímskirkju þar sem Kanada-
menn voru gestir okkar laugardaginn 25. júní, 1996.
Fyrirhugað er að niðjatalið komi út á fyrri hluta árs
1998. Því hefur verið ákveðið að fresta niðjamóti og
aðalfundi, sem var ætlað að halda í desember 1997,
þar til ritið kemur út.
Um leið og við sendum þér kveðjur og góðar óskir
biðjum við þig að verða að liði með því að afla
félaginu nýrra meðlima og að kynna þessi mál fyrir
öðrum niðjum Richards Long.
F.h. stjómar Félags niðja Richards Long
Sýnishom af inntökubeiðni í
Félag niðja Richards Long.
FÉLAG NIÐJA RICHARDS LONG
INNTÖKUBEIÐNI
Nafn__________________________________
Kennitala_____________________________
Heimilisfang__________________________
Fæðingardagur og ár___________________
Atvinna_______________________________
Heimasimi_____________Vinnusími_______
Foreldrar___________________
Amma eða afi I Longætt________________
Frá hvaða bami Richards Long er þú komin(n)?
hinn 19
Eyþór Þórðarson
formaður
Inntökubeiðni sendist til Eyþórs Þórðarsonar,
Álftamýri 17, '108 Reykjavík. Sími 5680162.
-----------------------------------------;--------------------------n
Felagsmál!
Nú hefst vetrarstarfið með héraðsfundum á nýjum stað
í ARMÚLA 19, Glóeyjarhúsinu á annari hæð, (strætisvagn nr. 11).
Við ætlum að hafa samverustundir annan hvorn miðvikudag frá kl. 17.00 til 21.00.
Fyrsti fundurinn verður miðvikudaginn 22. október, umíjöllun Árnessýsla,
tilsjónarmenn: Guðjón Óskar Jónsson og Guðmar Magnússon.
Nú fer Manntalið 1910 Árnessýsla að koma út, má vera að við getum skoðað það á
fundinum.
Annar fundurinn verður miðvikudaginn 5. nóvember, umfjöllun Rangárvallasýsla og
Vestmannaeyjar, tilsjónarmenn: Isak Þorbjarnarson og Einar Torfason.
Þriðji fundur verður miðvikudaginn 19. nóvember umfjöllun Skaftafellssýsla,
tilsjónarmaður: Arngrímur Sigurðsson.
Fjórði fundurinn verður miðvikudaginn 3. desember, umfjöllun ísafjarðarsýsla
tilsjónarmenn: Ásgeir Svanbergsson og Gunnar Hvammdal.
Við vonum að sem flestir mæti til að bera saman bækur sínar og fletta upp í bókum sem
félagið á.
Drekka kaffi og spjalla saman, það hefur oft verið gaman.
V
r
Frá ritnefnd:
Stjórnin.
"fy
Enn er nokkurt efni frá félagsmönnum óbirt í Fréttabréfinu og eru þeir beðnir velvirðingar á því.
Reynt verður að koma því í næsta blað, sem væntanlega kemur út fyrir nóvember fundinn.
13