Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2004, Page 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2004
2. Helga Tómasdóttir (7. gr. 3)
~ Arni Gíslason.
3. Guðrún Árnadóttir (3. gr. 2)
~ Jón Olafsson.
4. Daði Jónsson (1. gr. 1)
~ Ragnhildur Torfadóttir.
5. Síra Halldór Daðason.
Biskupshjónin í Skálholti voru 4 ættliður frá
Helgu Sigurðardóttur en síra Halldór í Hruna 5
ættliður.
„Ef Davíð kæmi í Daða stað“ o.s.frv.“ segir í
erindinu hér að framan. Þess sjást merki, að Daði
Halldórsson ritaði nafn sitt Davið við bréfagerðir í
Skálholti.
Þótt Brynjólfur biskup hefði mætur á Daða, var
ekki ætlun hans, að Daði yrði dótturmaður hans.
Daði hafði ekki þann metnað, að „sigla upp á lær-
dóm“. Auðvitað átti biskupsdóttirin að giftast
hálærðum manni. Daða Halldórsson henti það „slys“
að eignast í lausaleik tvíbura með skólaþjónustu í
Skálholti, Guðbjörgu Sveinsdóttur að nafni. Þetta
skeði árið 1660. Bömin munu hafa dáið ung. En
Daði fékk uppreisn fyrir þessa hrösun og var eftir
sem áður einkakennari Ragnheiðar biskupsdóttur. í
ættartölum Jóns Espólíns er Guðbjörg ættfærð
þannig (reyndar nefnd Guðríður): Faðir hennar var
Sveinn, staðarráðsmaður Skálholti svo bóndi Mos-
tungum Eystrahreppi, Sverrisson Stefánssonar,
bónda Hörgslandi Síðu, Árnasonar. Samkvæmt þess-
ari ættfærslu voru Daði og Guðbjörg þremenningar,
sbr. áatal Halldóru Einarsdóttur I. grein. En Jón
Espólín nefnir einnig aðra ættfærslu: Sveinn í Mos-
tungum Sverrisson Guðmundssonar. Ovíst er hvor
ættfærslan er rétt.
í ljóðaflokknum Eiðnum segir svo:
„ Og deginum sœla sígur að
það sagði það allur lýður,
„er göfugur skari að Skálholtsstað.
í skrautlegum flokki ríður,
og fremstur er sveinn svo fríður".
Og hver mun ei óska afhjarta þá,
að hann vœri sveinninn prúði,
semfaðirinn göfgi og lánið Ijá
að leiða þá fögru brúði ?
Gísli Vigfússon frá Stórólfshvoli átti að verða
ektamaki Ragnheiðar Brynjólfsdóttur. Það var
algengt í þennan tíma, að hjónabönd væru ákveðin
meðan viðkomandi persónur vora á barnsaldri. Svo
var einnig hér.
Gísli Vigfússon var f. 1637. Hann var sonur
Vigfúsar f. 1608 d. 1647 rektors Skálholtsskóla svo
sýslum. Stórólfshvoli Gíslasonar, lögmanns Bræðra-
tungu, Hákonarsonar. Kona Vigfúsar sýslumanns og
Altaristaflan í kirkjunni í Bræðratungu.
móðir Gísla, var Katrín Erlendsdóttir, sýslumanns
Stórólfshvoli, Ásmundssonar.
Gísli Vigfússon varð stúdent frá Skálholtsskóla
1656. Hann nam við Hafnarháskóla en stundaði
einnig nám við háskóla í Hollandi, Þýskalandi og
Englandi. Gísli hefur verið einhver bezt menntaði
Islendingur af sinni kynslóð. Það var eflaust draumur
Brynjólfs biskups, að dótturmaður hans yrði
eftirmaður hans á Skálholtsstóli. Gísli Vigfússon var
rektor Hólaskóla í nokkur ár. Hann bjó á Hofi á
Höfðaströnd. Gísli varð skammlífur eins og þeir
frændur fleiri. Hann dó árið 1673. Kona hans var
Guðríður Gunnarsdóttir, prests Höskuldsstöðum,
Björnssonar.
Við eiðtöku Ragnheiðar Brynjólfsdóttur laugar-
daginn 11. maí 1661 voru flestir prestar Árnes-
prófastsdæmis viðstaddir.
I ljóðaflokknum Eiðnum segir svo um einn þeirra,
síra Jósep Loftsson:
Þá stendur Jósep sterki á Olafsvöllum
í stuttri hempu, sem er allt ofvíð;
hann syngur hœst, og auk þess bezt af öllum,
og óð í gaddi Hvítáforðum tíð;
og sjö marka ask hann svalg í boðaföllum
af sýru á eftir; hún var aðeins þíð.
En svo var miltið hreint og hraustur maginn,
að hann fékk aðeins kveisu rétt um daginn.
Daði Halldórsson vígðist aðstoðarprestur föður
síns 28. júlí 1661. Ragnheiður Brynjólfsdóttir dvaldi
í Bræðratungu veturinn 1661 - 1662 á heimili Helgu
Magnúsdóttur, ekkju Hákonar sýslumanns Gísla-
sonar lögmanns Hákonarsonar.
Ragnheiður biskupsdóttir ól son í Bræðratungu
hinn 15. febr. 1662 og lýsti föður síra Daða Halldórs-
son í Hruna. Helga Magnúsdóttir sendi eftir síra Torfa
Jónssyni Gaulverjabæ. Hann skyldi færa meistara
Brynjólfi tíðindin. Síra Torfi kvaddi til fylgdar með
sér frænda sinn, síra Þórð Þorleifsson á Torfastöðum.
Þeir síra Torfi og síra Þórður voru hálfbræðrasynir
Brynjólfs biskups. I skáldsögunni Skálholt eftir
Guðmund Kamban 2. bd. bls. 17 segir svo:
Þegar húsmóðirin er horfin inn, er öll Brœðra-
tunga á hlaðinu. Menn horfa á eftir prestunum. Þeir
ríða niður að Tungufljóti, fót fyrirfót, alla leið.
http://www.vortex.is/aett
7
aett@vortex.is