Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Blaðsíða 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Blaðsíða 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005 Guðjón Friðriksson sagnfræðingur: Um ættir Hannesar Hafstein Blaðalaust spjall á fundi Ættfræðifélagsins Guðjón Friðriksson sagnfrœðingur rekur hér ættir og uppruna Hannesar Hafstein og skýrir frá tilgátum um tilurð og þróun Hafsteinsnafns- ins. Guðjón vinnur nú að œvisögu Hannesar og moðar þar úr miklum fjölda áður óbirtra og ónýttra heimilda. Eg hef nú ekki verið mikið í ættfræði sjálfur, alla- vega ekki hin síðari ár. Eg fékk svona dellu þegar ég var unglingur, 13 -14 ára fékk ég ættfræðidellu. Þetta var mitt aðaláhugamál í 2-3 ár, þegar ég var í menntaskóla. En ég hélt því leyndu, af því ég hélt ég fengi neikvæð viðbrögð í jafnaldrahópnum. Það var kannski einn vinur minn sem vissi af þessum áhuga mínum. Síðan snerist ég gegn ættfræði og fannst þetta hinn mesti hégómi, og var jafnákafur á móti ættfræðinni eins og ég hafði áður verið áhugasamur um hana. Þetta breyttist svo aftur er tímar liðu og á tímabili var ég í ættfræðigrúski, þótt það væri aldrei mikið. Eg hef aðallega fengist við að skrifa ævisögur og önnur sagnfræðirit, og undanfarið ár hef ég verið á kafi í að skrifa ævisögu Hannesar Hafstein. Mörgum þykir sjálfsagt dálítið skrítið að ég skuli vera að skrifa nýja ævisögu um Hannes Hafstein, því það er til þriggja binda saga um hann eftir Kristján Albertsson sem kom út fyrir u.þ.b. 40 árum. En tím- amir breytast, menn sjá hlutina í öðru Ijósi og áhuga- mál og áherslur eru aðrar en áður fyrr. Bæði hjá okk- ur og öðrum þjóðum er alltaf verið að skrifa nýjar ævisögur genginna manna. Bréfin sem aldrei voru brennd Ég ætla að skrifa nýja ævisögu, allt öðruvísi heldur en Kristján Albertsson gerði, hans ævisaga var bam síns tíma. Þar er gefin býsna upphafin mynd af Hannesi Hafstein. Það var allt gott sem Hannes gerði, en vont sem andstæðingamir gerðu, það var svart/hvít saga. Sumir andstæðingar Hannesar vom útmálaðir hálf- gerð ómenni. Það er nú ekki mín aðferð að skrifa svoleiðis ævisögur. Ég reyni heldur alltaf að skyggn- ast ofan í persónuna, reyni að finna út hver hún var í raun og vem, spegla bæði kosti hennar og galla. Þannig ætla ég að skrifa ævisögu Hannesar. Ég hef verið allt síðastliðið ár að grafast fyrir um heimildir um Hannes. Ég hef fundið og fengið upp í hendumar margt sem áður hefur ekki verið upp á borðinu. Það var einn afkomandi Hannesar sem kom til mín og tjáði mér að hann hefði undir höndum bréfasafn sem hefði fundist uppi á háalofti. Kristján Albertsson vissi ekki um þetta safn, en haldið var að því hefði verið brennt. Þetta bréfasafn, sem var í stórum kassa, inniheldur bréf Hannesar til móður sinnar. Kristján Albertsson hafði bréf hennar til hans. Þama em um sjötíu stórmerkileg bréf, skrifuð á tímabilinu 1880 til 1903. Þar að auki er á ýmsum söfnum, sérstaklega Handritadeild Landsbókasafns, gríðalega mikið af bréfasöfnum og dagbókum sent hafa komið þangað á undanfömum árum. Þetta eru meira og minna gögn sem Kristján Albertsson hafði ekki aðgang að á sínum tíma. Veðurbækurnar sem voru dagbækur Þarna er komið gríðarlegt efni, sem hægt er að moða úr. Sumt var nú reyndar til á dögum Kristjáns en hann hafði af einhverjum ástæðu ekki notaðst við það. Ég get nefnt sem dæmi dagbækur Sveins Þórar- inssonar, skrifara Péturs amtmanns á Möðruvöllum, föður Hannesar, en Sveinn er faðir rithöfundarins Nonna. Hann hélt mjög nákvæmar persónlegar dagbækur. Lýsir hann vel dögunum þegar Hannes er að alast upp á Möðruvöllum og daglegu lífi þar. Ég get líka nefnt, svo að dæmi sé tekið, svokallaðar Veðurbækur Jónasar Jónassens landlæknis sem einnig í reynd eru dagbækur. Sennilega hefur Kristján ekki áttað sig á að þetta væru dagbækur vegna nafnsins. Jónas var mágur Hannesar Hafstein, giftur Þórunni Hafstein, en hún var hálfsystir Hannesar. Þegar Hannes var við nám í Lærða skólanunt í Reykjavík, frá tólf ára aldri, átti hann sitt annað heimili hjá hálfsystur sinni og kemur því oft við sögu í Veðurbókunum. Ég hef einnig verið mikið í Kaupmannhöfn og farið yfir dönsk dagblöð frá ráðherratíð Hannesar og bréfasöfn á söfnum þar, bæði íslensk og dönsk, mörg mjög merki- leg. I Danmörku er skylt að koma bréfa- og skjalasöfn- um háttsettra embættis- og valdsmanna til Ríkisskjala- safnsins. Þar em því bréf og dagbækur danskra ráðherra, þingmanna og embættismanna frá tíma Hannesar, en málefni Islands voru oft á þeirra borði á heimastjómar- tímabilinu og margt að ftnna í þeim. Danskur íslendingur Ef litið er á ættir Hannesar Hafstein, þá var faðir hans Pétur Havstein amtmaður á Möðruvöllum, Islendingur í húð og hár, fæddur og uppalinn á Islandi og gekk í Bessastaðaskóla. Hinsvegar var ekki íslenskt blóðkom í æðum hans. Allar ættir sem að honum stóðu voru danskar. http://www.vortex.is/aett 3 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.