Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Blaðsíða 4
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
Hannes Hafstein (lengst t. v.) ásamt konu sinni Ragnheiði, Kristjönu móður sinni, Sigurði elsta syni sínum og Marínó
bróður sínum. Mvndin er tekin á Isafirði.
Gísli Brynjúlfsson, dósent í Kaupmannahöfn,
skrifaði grein um Pétur Havstein í Heimdall árið
1884. Þar segir hann að Hafsteinarnir séu að lang-
feðgatali komnir frá Heine Hafreka, sem var norskur
maður frá Sunnmæri. Heine Hafreki fór á báti frá
heimabyggð sinni og hrakti til Færeyja. Heine var
Jónsson, en Færeyingar kölluðu hann Heine Hafreka
af því hann kom rekandi af hafinu. Þessi Heine
Hafreka varð merkismaður í Færeyjum, prófastur og
varabiskup. Synir hans tveir urðu líka merkir menn.
Annar þeirra var Jón Heineson, lögmaður Færeyinga
og hinn var Magnús, meiriháttar sægarpur.
Sá síðarnefndi fór í leiðangra um Atlandshaf fyrir
Danakonung og varð sjóræningi. Hann var tekinn af
lífi 1589 í Kaupmannahöfn. Hann hefur því verið
samtímamaður Jóns biskups Arasonar. Og sjálfsagt
eru allir Færeyingar komnir út af þessurn mönnum.
Gísli Brynjúlfsson segir að Hafsteinar séu komnir af
þessum mönnum í ættir fram, en rökstyður það
ekkert nánar. Þegar Gísli skrifar þetta í Heimdall
1884 eru tvö börn Péturs í Kaupmannahöfn og fleiri
ættingjar þeirra. Vafalaust er þetta byggt á sögnum
þeirra og vitneskju. Síðan hefur þetta verið haft fyrir
satt og er endurtekið í mörgum bókum.
Hafstein á netinu
Eg fór inn á danskt net og leitaði að „Hafstein" á
leitarvefslóð. Síðan komst ég inn á ættarslóð sem
heitir anetavlen.dk. Þar er vettvangur danskrar ætt-
fræðirannsókna, þar getur maður flett upp ýmsu, sent
fyrirspurnir og fengið svör. Þar er meðal annars hægt
að fletta upp ættarnöfnum og þarna fann ég Haf-
steina. Eg fann tvo afkomendur þessarar ættar sem
hafa verið að grúska í sínum ættum. Annar er Henri
Wolbrandt afkomandi Marinós Hafstein, bróður
Hannesar. Hann hefur á þessari vefslóð
(anetavlen.dk) rakið karllegginn allt aftur til Heine
Hafreka og er bara einn veikur hlekkur á leiðinni.
Ættrakning hans er svona: 1. Heine Jónsson Haf-
reki, 2. sonur hans Jón Hafreki lögmaður Færeyja,
síðan 3. Heine Jónsson sonur Jóns, þá 4. Jón Heine-
son sem var fógeti á Austurey. Svo kemur veiki
hlekkurinn, meintur sonur hans er Níels Heineson í
Kaupmannahöfn, en hans sonur er Jakob Níelsson
Heineson, einnig í Kaupmannahöfn.
Arið 1738 sækir þessi 6. ættliður, Jakob Nielsson
Heineson, um borgarbréf í Kaupmannahöfn og fær
það. Þá er ekki nógu fínt að heita bara Jakob Níels-
son Heineson, svo hann sækir um borgarabréf undir
nafninu Jakob Níelsson Heineson-Havsteen. Líklega
er þama kominn uppruninn að Hafsteinsnafninu og
nafnið kannski dregið af dröngunum í Færeyjum.
Allavega tekur Jakob sér nafnið Heinesen-Havsteen.
Hann er öltappari í Kaupmannahöfn sem er auðvitað
ekkert annað en knæpueigandi.
Dönsk kjallaraknæpa
Þegar Jakob deyr er ekkjan hans skráð í St. Peters-
stræti, svo sennilega hefur þetta verið kjallaraknæpa
eins og var svo algengt í Kaupmannahöfn. Sonur
Jakobs heitir Níels Jakobsen, það er vafamál hvort
hann hefur notað Havsteens-nafnið. Hann fór í
siglingar sem ungur maður, komst til Indlands og
gerðist síðan skipasmiður í Hólminum í Kaupmanna-
höfn. Hann fær jafnframt leyfi til að verzla með syk-
ur og sýróp. Sennilega hafa það verið verzlunar-
http ://w w w. vortex. is/aett
4
aett@vortex.is