Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Síða 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
samböndin við Indland sem gera honum það kleift.
Hann er kvæntur konu sem hét Sidse Katrin hún var
dóttir knæpueiganda Iíka, sem hét Jóhann Berthold
Höwisch, af þýsku bergi brotinn eins og nafnið gefur
til kynna.
Þessi Sidse Katrín, sem giftist Níels Jakobsen, átti
bróður sem fór til Islands. Sá hét Jóhann Gotfried
Höwisch. Hann var verzlunarstjóri við konungs-
verzlunina við Hofsós, síðustu árin sem hún var við
lýði. Þegar henni var aflétt þá keypti hann Hofsós-
réttinn. Sama ár dó Níels mágur hans í Kaupmanna-
höfn. Þá tók Höwisch kaupmaður til sín tvo systur-
syni sína, syni téðs Níelsar og Sidse. Þeir hétu Dúi
og Jakob Havsteen og ólust upp frá því upp hjá
móðurbróður sínum á Hofsósi. Síðar fluttist móður-
bróðurinn til Kaupmannahafnar, en Jakob varð
faktor hans á Hafsósi og keypti verzlunina að lokum.
Dúi bróðir hans fór hins vegar snemma til Kaup-
mannahafnar eða um 1815. En Dúi og Jakob voru
kvæntir dönskum systrum, dætrum Birch beykis sem
síðast var á Akureyri.
Stórbóndi í Skagafirði
Þess skal getið að þrjár útgáfur eru af nafninu Haf-
stein. Fyrst var nafnið Havsteen allsráðandi en Pétur
amtmaður tók upp á því að íslenska nafn sitt og kall-
aði sig Havstein. Hannes sonur hans gekk enn lengra
og kallaði sig Hafstein og er það nú notað af öllum í
hinum íslenska legg ættarinnar.
Jakob kvæntist Maren Birch en Dúi og frú hans
fóru til Kaupmannahafnar. Sonur þeirra síðamefndu,
Níels Christian, varð þó eftir hjá Jakobi og er forfaðir
Knud Zimsen borgarstjóra. Þetta var á dögum
Napelónsstyrjaldarinnar og erfitt unt allar siglingar
svo Jakob Havsteen kaupmaður á Hofsósi greip til
þess ráðs, vegna þess hve verslunin var erfið að ger-
ast stórbóndi norður í Skagafirði. Hann keypti
Drangey, Höfða og Hof á Höfðaströnd og var með
stórbúskap og útgerð á þessum jörðum.
Jakob fékk orð fyrir að vera harður í hom að taka.
Það eru ekki allt falleg ummæli sem um hann hafa
verið látin falla. Hann mátti þó eiga eitt, hann var
ákaflega hjálpsamur við fátæka og hefur að mörgu
verið mannkostamaður þótt hann væri harður kaup-
maður og harður við jafningja sína.
Til marks um það eru fyrirmæli Jakobs áður en
hann dó, en hann var afskaplega feitur. Hann mælti
svo fyrir að 16 karlmenn, Höfðhverfingar, skyldu
bera kistu sína til Hofskirkju og taka í lrkmannskaup
eina komtunnu hver. Það var gott líkmannskaup og
sýndi umhyggju hans fyrir fátækum allt fram yfir
dauða hans. Kona hans var ennþá gjafmildari, því
hún fór líka á bak við húsbónda sinn. Hún tók fátæka
og faldi í fjósinu og fór með mat til þeirra þangað.
Geðveiki
Bæði voru þau Jakob og Maren Havsteen tæp á geði
á efri árum, það kemur fram í heimildum. Og geð-
veikina fær Pétur Hav-
stein sonur þeirra í ríkum
mæli. Dagbækur Sveins
Þórarinssonar sem ég not-
ast við, sýna geðveikina
vel og er það hrollvekj-
andi lesning með köflunt.
Pétur var meira og minna
geðveikur áram saman.
Það þurfti að vaka yfir
honum á nóttunni, vikum
og mánuðum saman og
stundum var hann með
háum hljóðum. Pétur
gerði sér sjálfur ljós þessi
veikindi sín, en það voru
fá úrræði. Hann reyndi
sjálfur allt til að fá bót
meina sinna. Það sýnir
hvað slík geðveiki var
erfið á þessum tímum.
Þetta er mikil sorgarsaga.
Ef hann hefði verið af
efnaminna fólki þá hefði
hann verið lokaður inni
einhvers staðar.
Meðal systkina Péturs
vom Níels Havstein, kaup-
maður á Hofsósi, svo var
Elín Havsteen, sem var gift
Lárusi Thorarensen, sýslu-
manni Skagfirðinga, amma
Jóhannesar Jóhannessonar
bæjarfógeta, sem var því Hafstein í ættir fram. En þeir
voru andstæðingar í pólitík Hannes og Jóhannes, Svo
var Jóhann Gottfreð Havsteen kaupmaður á Akureyri.
Hann var faðir Júlíusar Havsteen amtmanns og Jakobs
kaupmanns á Akureyri, sem var faðir Júlíusar sýslu-
manns á Húsavík. Svo var Katrin Havsteen sem var
kona Þórarins Thorarensen kaupmanns, bróður Lámsar
og Karen sem var kona Jakobs Hólms kaupmanns á
Skagaströnd.
Það er því mikil kaupmennska í Hafsteinsættinni.
Löðrungaljóð
Pétur Havstein var einveldissinni og ekki mjög hlið-
hollur nýjum straumum í þjóðfrelsismálum, en
merkur maður og leiðtogi Norðlendinga í ýmsum
málum, meðal annars fjárkláðamálinu. En fjárkláð-
inn var aðallega fyrir sunnan. Norðlendingar brugð-
ust við með því að skera niður og loka Norðurlandið
af. Pétur sem var foringi í því máli fór fram með
mikilli atorku. En stjórnvöld voru á öðru máli. Þar
voru Pétur og Jón Sigurðsson forseti andstæðingar,
en þeir höfðu verið herbergisfélagar í Kaupmann-
höfn á námsámm sínum. Pétur var mjög dáður af
mörgum Norðlendingum. Enda stóðu þeir yfirleitt
með honum á hverju sem gekk.
Pétur Havstein faðir
Hannesar Hafstein.
Kristjana Havstein
(Katrín Kristjana Gunn-
arsdóttir), 3. kona Péturs
Havstein og móðir Hann-
esar Hafstein.
http://www.vortex.is/aett
5
aett@vortex.is