Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Síða 8
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
fjársjóður. Munum því að spyrja, safna og skrá
meðan einhverjir eru til frásagnar, sagði Guðfinna að
lokum.
Ingibjörg Tönsberg tók undir orð Guðfinnu og
sagðist alltaf sjá eftir því að hafa ekki hlustað á orð
ömmu sinnar sem bað hana að skrá niður
ættarfróðleik. En ég var ung og áhugalaus og svo var
það orðið of seint.
Eiríkur Þ. Einarsson formaður tók einnig í sama
streng. Sagði að nú væri tími til korninn að glæða
ættrakningarnar lífi. Okkar gömlu, góðu frum-
kvöðlar hefðu með elju og ómældri vinnu og
nákvæmni lagt grunninn með ættrakningum sínum,
nú væri það okkar að bæta við og breikka
ættarfróðleikinn. Ábyrgðin væri okkar allra og það
væri ekki eftir neinu að bíða.
Auðunn Bragi Sveinsson flutti Ætt-
fræðifélaginu frumort ljóð í tilefni
afmælisins:
Ættfræðifélagið 60 ára
Ættvísi er elst affrœðum
Islendingsins, hvar semfer.
Einatt hana um við ræðum,
er við saman komum hér.
Þarna geymist þjóðarsaga;
þarnafæst við mörgu svar.
Ættvísin er alla daga
undirstaða menningar.
Lengst af, alltfrá landnámstíðum,
lifa ættartengslin sterk.
Ættvísin er ennþá lýðum
undirstaða heil og merk.
Sturlunganna öldin óða
ættarinnar sýndi mátt.
Islendingar, afhragð þjóða
ættvísina stunda þrátt.
Ættfræði við sýnum sóma;
svo mun einnig verða gert.
Okkarfélag er í hlóma;
allt er starfið mikils vert.
Sextíu við árin eigum
inni - geymd í minjasjóð.
Framtíðar svoför við greiðum
fyrir okkar land og þjóð.
Jón Valur Jensson flytur Auðunn Bragi Sveinsson
hátíðarávarp á 60 ára flytur Ættfræðifélaginu
afinælisfundinuin. frumort Ijóð.
Fundargestir skoða sýningu ættfræðigripa og skjala.
Ásgeir Svanbergsson setur upp ættardrambssvip að
vestan við mikinn fögnuð viðstaddra.
Þrír formenn, Halldór Halldórsson, Eiríkur Þ.
Einarsson og Jón Valur Jensson.
http://www.vortex.is/aett
8
aett@vortex.is