Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Blaðsíða 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
Um Sigurlaugu Magnúsdóttur
á Stóru-Laugum
Hjörtur Arnórsson á Akureyri hefur sent Frétta-
hréfintt eftirfarandi upplýsingar sem ef til vill
geta nýst Stefáni Friðbjarnarsyni, Gullsmára 11
Kópavogi sem óskaði eftir upplýsingum um
þessa langömmu sína.
Fyrirspurn í janúarblaði 2005 merkt „Aðstoð
vantar" kemur mér af stað til að ljósrita blað sem ég
fann hjá tengdafólki mínu. Þar er hvorki ártal né
undirskrift, en grúskarar gætu borið skriftina saman
við önnur skjöl komin úr Fnjóskadal eða nágrenni.
Kona mín er í báðar ættir afkomandi Flugrúnar
Arngrímsdóttur og ég svo afkontandi Sigurlaugar
systur hennar í báðar ættir.
í Mt. 1703 eru þrjár Hugrúnar í S. Þing. Og munu
þær allar systkinadætur frá Hróarsstöðum í Fnjóska-
dal og bera nafn einhverrar þeim nákominnar. Ef
Hugrún Halldórsdóttir var til hefur hún dáið fyrir
1690 (sjá síðar), áður en hinar eldri af systkina-
dætrunum voru skírðar.
Hugrún Jónsdóttir á Melunt 1703, er trúlega sú
sem býr á Halldórsstöðum í Laxárdal 1740 og síðan
á Bimingsstöðum, sjá bókina Laxdælir, og álít ég
hana ekkju Magnúsar, sem sögnum og heimildum
ber saman um að væri sunnlenskur.
Hann hlýtur að vera í Mt 1703 einhvers staðar
sunnanlands.
Sigurlaugarnafnið gæti verið úr hans ætt því það
er lítið um það nyrðra í manntalinu. Arið 1708 flutti
Magnús Markússon frá Laufási, þá rektor Skálholts-
skóla, norður í Grenjaðarstað, þá ókvæntur, svo hann
hefur varla verið með mikla búslóð. Hann gæti hafa
verið með fylgdarlið og jafnvel gæti hann hafa síðar
fengið til sín pilta að sunnan. Etv. eru til skrár um
nemendur í Skálholti frá síðustu tíð Magnúsar
rektors þar, hugsanlega er einhver Magnús þar.
Skuggabjörg og Laufás eiga lönd saman og því
má ætla að Hugrún frá Skuggabjörgum réðist vinnu-
kona í Grenjaðarstað og næði þar í mannsefni, og
presturinn hafði ráð á jarðnæði á nokkrum jörðum.
Þótt gamla blaðið segi dætur Magnúsar og Hugrúnar
þrjár, gefur það aðeins nafn á Sigurlaugu, aðrar
hugsanlegar dætur þeirra eru Kristín, fermd 18 vetra
1747 að Þverá í Laxárdal og Steinunn sem giftist 30.
júní 1767 Þorgrími Finnbogasyni (kirkjubók
Grenjaðarstaðar).
Espólín telur á bls. 5545 upp börn Halldórs á
Hróastöðum og nefnir þar Hugrúnu, en ruglar henni
saman við alnöfnu, f. 1787, sjá Svalbarðsstrandar-
bók, 233. gr.
I fyrirspurninni kemur fram að Sigurlaug
Magnúsdóttir deyr 1762. í bændatali það ár sést að
hún er 40 ára og þá á lífi, en hvaðan er það komið að
hún hafi dáið á því ári? I fardögunr 1769 er Magnús
sonur Hallberu mállausu hálfs árs (skírður 19. 9.
1768) á Lómatjörn, án móður sinnar. Þar er einnig
áttræð ekkja, Hallbera Pétursdóttir. Hún var 12 ára
ómagi á Hálshreppi 1703 og gæti tímans vegna verið
amma nöfnu sinnar.
ÚrLaufás kirkjubók 1780:
„Að kvöldi þess 13. ágúst fæddi Hallbera
Arnadóttir mállausa barn á Skuggabjargarhlaði sem
Skúli Olafsson frá Þverá skírði skemmri skím með
Guðrúnamafni og deyði á Þverá að kvöldi þess 14.
ágúst.“
„20. ágúst grafin Guðrún Hallberudóttir ungbarn
frá Þverá.“
Hér fer á eftir bréf það er Hjörtur Amórsson fann
í fórum tengdafólks síns:
Halldór á Hróarsstöðum var mjög kynsæll maður,
hann átti fjölda barna, eitt þeirra var Brotefa
Halldórsdóttir. Hún átti Jón Eiríksson á Skugga-
björgum.
Fyrsta barn Jóns og Brotefu: Flóvent, faðir
Vigdísar móður Olafs sem var í Uppibæ, föður
Þorsteins þar, sem var maður Sesselíu Davíðsdóttur.
Vóru það foreldrar Vigdísar konu Elíasar í Vík og
Sessilíu konu Hallgríms einhenta.
Annað barn Jóns og Brotefu: Þuríður, kona Jóns
Sigurðssonar á Draflastöðunr. Þeirra sonur var
Indriði á Sigríðarstöðum, hann var faðir Jóns
Indriðasonar er átti Hugrúnu. Þau bjuggu á Víði-
völlunr. B. þ: 1. Indriði faðir Jónatans í Leifshúsunr,
2. Sigurlaug móðir Bjargar í Tungu. 3. Sigurður í
Brekku í Kaupangssveit, faðir Sigurbjargar á Vetur-
liðastöðum og allra þeirra systkina. 4. Amgrímur á
Víðivöllum. Hans kona Margrét Jónsdóttir, þeirra
dóttir Jórunn á Vatnsleysu, kona Jóns Jónssonar.
Þeirra böm: Arngrímur og Halldóra. 5. Kristín.
Hennar fyrri maður Olafur á Skuggabjörgum. Þeirra
börn: Jón gamli Olafsson, hans kona Guðný
Indriðadóttir. Systir Jóns var Aðalbjörg Ólafsdóttir
kona Ólafs Jónssonar á Stokkahlöðum. Þ. b. Jón á
Einarsstöðum í Reykjadal og Kristín í Flögu. 6.
Hugrún, kona Einars Jónssonar, bjuggu á Hall-
gilsstöðum.
Þriðja barn Jóns og Brotefu á Skuggabjörgum var
Steinunn móðir Jóns Sigurðssonar föður Steinunnar
konu Guðmundar í Ystuvík. Þeirra synir: Jón eldri í
Kolgerði og Jón yngri í Ystuvík.
Framhald á hls. 17
http://www.vortex.is/aett
12
aett@vortex.is