Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Qupperneq 16
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
Við ganila Næfurholt. Hekla í baksýn (Ljósmynd Björn
Jónsson)
hirðusamir - lögðu það svo út að heimför hans hefði
verið sú að bjarga jámkallinum. Síðan reið hann til
kirkju og hafði messu sem aðrir.
Bjarni var dökkur á allan hárslit. Olesandi, en
skrifaði þó læsilega nafn sitt, þá með þurfti, undir
ýmsa gjörninga sem hann átti hlut að, því á þeim
árum var hann hreppstjóri á Rangárvöllum. Ég hygg
að eiginhönd Bjama Halldórss. (og Halldórs sonar
hans) sé á Visitasiu á Keldum frá 1. maí 1745..
Nafn hans verðskuldar að taka það upp í ættina,
stæla höndina eða ljósletra. Það bendir fremur til að
hann hafi skrifað fleirra. Jafnvel nú á tímum munu
mörg nöfn ver og ólæsilegar skrifuð bæði af lærðum
og ólærðum. Sama er að segja um Stefán Bjarnason
sem sagður er óskrifandi en skrifaði ekki síður læsi-
lega hönd en faðir hans. Hann mun einn þeirra
manna er skrifar undir manntalið að Keldum 4. sept.
1762....
1775, 5. sept. er Stefán B bóndi á Keldum einn af
þeim (8 með 8 innsiglum), er skrifa undir skiptingu
þess fjár, er konungur gaf til Rangárvalla-
hrepps....eptir fjárkláða niðurskurðinn fyrri 1773 til
léttis fátækustu bændum, til að eignast viðkomu
aftur.
Og hvað hér er sagt um Bjama þá var kona hans,
Guðríður, honum samfara í sínu standi. Að Víkings-
læk fluttu þau sig frá Rauðnefsstöðum, hvar þau
munu hafa búið hér um bil 25 ár, og deyðu þar bæði
á áttunda tug síns aldurs. Auk lausafjár sem böm
þeirra 12 að tölu erfðu eftir þaug, fengu þau í
fasteign, að jafnaðarskiptunr hér nefndar jarðir:
1. Víkingslæk hálfan
2. Keldur, partur úr þeim
3. Kirkjulækur, partur úr þeim
4. Tjörfastaðir
5. Holtið
6. Selið
7. Foss
8. Bjallinn
Bjarni dó skammt eptir veturnætur 1757, en
Guðríður kona hans litlu fyrir sumarmál 1756, og
liggja við suðurenda kórgaflsins í Keldna kirkju-
garði, jarðsungin af sr. Ormi Snorrasyni. Yfir leiði
þeirra liggur (af sama presti) klappaður legsteinn
nteð þessari yfirskrift: (Rétt lesið):
Hér hvíla siðprúð sanrdahjón, sálugi Bjarni
Halldórsson, góð dæmin öðrum gáfu af sér og
Guðríður sæl Eyjólfsdotter.
(Hér kemur viðamikil upptalning og upplýsingar
um börn þeirra hjóna. Innskot ritstjóra)
Endast hér svo tal unr foreldra og systkin Stefáns.
En nú kemur til um hann ætt nokkuð að tala“.
Stefán Bjamason er fæddur á Rauðnefsstöðum á
Rangárvöllum mánudaginn annan í Góu 1722........
Stefán var skírður af sr. Gottskálk Þórðarsyni, á sama
bæ og hann var fæddur, hver í þeirri ferð varð
veðurteptur í 3 nætur í kafaldsfjúkbil. Þá hann var 8
ára gamall flutti hann með foreldrum sínum frá
Rauðnefsstöðum að Víkingslæk...
A Víkingslæk var hann hjá foreldrum sínum í 25
ár. Þar numdi hann sinn kristindóm, sem á þeim tíma
voru kallaður biskupa spurningar sál. Mag. Jóns
Arasonar Skálholtsbiskups og svo til altaris tekinn af
sr. Ormi Snorrasyni, en ei var hann konfermeraður
því sú befalning var ei á Islandi komin eður auglýst
almenningi. 33 ára giptist hann Guðrúnu Jónsdóttir
Þórarins, nafnfrægs bónda í Bolholti og fram fór
opinber trúlofun þeirra í Bolholti 4. júní sem var
föstudagurinn í fardögum, sá næsti fyrir Hvítasunnu
árið 1756, en í hjónaband samanvígð 13. júní á
Trinitatishátíð Keldnakirkju í embættinu sem þá
tíðkaðist af sr Ormi Snorrasyni.
Reistu svo þessi hjón fyrst bú á Heiði á
Rangárvöllum, þá stóð á þriðja stað, því sá bær
hefur 4 sinnum eyðilagst af sandfoki og stendur nú
á þeim fimmta. Þar græddu þau og urðu vel
megandi. Var hjá honum kölluð líklegasta vist á
Rangárvöllum. Þau voru veitingasöm við alla sem
til þeirra leytuðu.
Um allan þeirra þarveru tíma voru þau talin með
bestu bændum þeirrar sveitar. Börn áttu þau ei utan
tvo syni, er báðir eru á Heiði fæddir, nefnilega A
Brynjólfur f. laugardag 23. júní 1759. Hann er nú
giftur Helgu Jónsdóttur Jónssonar af Hvammsætt í
Landmannahrepp, víst 10 barna faðir. Býr á sinni
eignarjörð V. Kirkjubæ á Rangárvöllum, kallaður þar
merkismaður og talinn með betri bændum að efnum
og góðgerðum.
B Bjami, f. á mánud. 13. júlí 1761, nú giftur
Margréti Eiríksdóttur Jónssonar áður bónda í
Bolholti, og eru þau hjón systkinabörn. Hann býr og
á eignarjörð sinni Arbæ í Rangárv. Og tók þar við
búsumráðum á næstliðnu vori, - eptir foreldra sína,
þar faðir hans var látinn, en móðir hans nærri áttræð
og gaf frá sér alla búskaparsýslan og umhyggju.
Hann er nú ekki eins reyndur í bóndastétt sem bróðir
hans. Þó er hann líkur fyrir að verða honum jafn að
http://www.vortex.is/aett
16
aett@vortex.is