Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Blaðsíða 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
e/s/M 'J. '0<’/'/Wy/
BFA (Hons.) (Man.), BIPh (Iceland)
GENEALOGIST / ANTIQUARIAN
- ICELANDIC ANCESTRAL RESEARCH
- Eyrarbakki Icelandic Heritage centre
tfq</a /SuA/icatÖM& tfte&earcA
Box 925, Arborg
Manitoba, Canada
ROC OAO
Ph. (204) 378-2758
Ættfræðifélaginu hefur
borist eftirfarandi bréf frá
Nelson S Gerrard, þeim
mikla fræðimanni og
ættfræðingi í Kanada.
6. janúar 2005
Kæru Ættfræðifélags-
menn og konur,
Hér með sendi ég enn á
ný ársgjald mitt, sem ég
fékk tvésvar endursent - í fyrsta skipti sem
„undeliverable mail“ og í seinna skipti með endur-
senda ávísun mína, sem kvaðst ekki gilda á Islandi!!
Ég sendi því nú „International Money Order“
samkvæmt ábendingum og vona að þið fáið þetta.
Um leið vildi ég þakka Ættfræðifélaginu fyrir allt
gott og þar meðal annars fyrir Fréttabréfið dagsett
Mars 2004. Þar las ég með athygli um tvennt sem
vakti hjá mér áhuga. A annað borð var gamla myndin
af Vesturfarahjónunum Birni Jónassyni og Sigríði
Kristjánsdóttur sem fylgdi sögunni um Guðnýju
dóttur Jóns-Blinda. Bæði var það myndin sem ég
þekkti sem ljósmynd eftir Jón Blöndal frá Winnipeg
(sem fór nokkrum sinnum suður til North Dakoda til
að taka þar myndir, en hafði stofu sína í Winnipeg),
og svo var það saga Guðnýjar, sem ég kenni fáein
deili á. Ég er með dagbók sem Jón, sonur Kristjáns
Jónssonar, skrifaði á árunum 1883-1885, en hann
nefnir ekki Guðnýju. Þó getur hann þess að Kristján
faðir hans hafi fengið bréf frá Kristjáni í Úlfsbæ. En
svo kannaðist ég líka við það að Guðný hefði orðið
kona Askels Bergmanns, og átt nokkra syni, en
ljósmynd af Guðnýju og Áskatli er að finna á safninu
á Húsavík, svo og mynd af fjórum sonum þeirra
hjóna. Báðar myndir eru eftir Jón Blöndal frá
Winnipeg en voru teknar suður í Dakoda. Númerin á
þessum myndum eru 1635 /1-2 og 1635.
Svo fannst mér efnið um Stein Dofra áhugavert,
og hérmeð sendi ég ljósrit af tveimur bréfum sem ég
á eftir hann - annað héðan frá Manitoba og hitt
skrifað eftir heimför hans. Þar í finnst ýmislegt
fróðlegt um heimsviðhorf Steins. Eitthvað vantar af
öðru bréfi. Mér finnst merkilegt starf hans á árunum
hér vestra, en margar ættfræðilegar greinir eftir hann
birtust í tímaritinu Syipa sem gefið var út hér, ritstýrt
af Sigtryggi Jónassyni sem þá var á elliárum hans í
Árborg og Riverton.
Að lokum vildi ég nefna það, að ef menn eru að
leita að vissum bókum, gömlum, hvort sem er
kveðskapur, saga eða hvað sem er, eru þeir
velkomnir að hafa samband við mig með tölvupósti
á eyrarbakki@hotmail.com. Ymsar bækur á ég,
fleira en eitt eintak og væri til í að selja og koma því
heim til Islands.
Beztu þökk
Nelson Gerrard
„Þorbergur verður búinn
að kæfa hana í krökkum..
Hérfara á eftir brot úr tveim sendibréfum Steins
Dofra til œttingja sinna á Heklu eyju sem
Nelson Gerrard sendi Fréttabréfi Ættfræði-
félagsins. Hið fyrra er dagsett vestanhafs 16.
apríl 1928 og hið síðara í Reykjavík 11. október
1954.
Brot úrfyrra bréfinu:
Mrs B Kjartanson Hecla Po Man.
Kæra frændkona
Beztu þakkir fyrir bréf þitt frá 4. apríl s.l.
Það gladdi mig að sjá að þið eruð þó öll enn á
http://www.vortex.is/aett
18
aett@vortex.is