Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Qupperneq 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
Athugasemdir af ýmsum toga
Tilefni: Greinar í Fréttabréfinu í jan. 2005
i.
Forsetningar bæjarnafna o.fl.
Sbr. grein Magnúsar Ingvarssonar bls. 18.
Ritið Svarfdælingar (búendatal) kom út árið 1976.
Höfundur: Stefán Aðalsteinsson f. 1920 d. 1975. Dr.
Kristján Eldjárn, forseti Islands, ritaði inngangsorð.
Þar segir svo m.a.:
„Algengt er í bókum að ruglingur verði á
forsetningum í og á með bæjarnöfnum. Ógerningur er
nema þeim sem þaulkunnugur er að vita hvort heldur
er notað á hverjum stað. Stundum er þetta ekki heldur
tvímœlalaust meðal heimamanna sjálfra, og erþá ekki
við góðu að búast. Hér hefur verið reynt aðfara sem
nœst hinu rétta, en „rétt“ telst það sem almennt er
notað af innansveitarmönnum. En þess er nánast sagt
engin von, að hér verði ekki einhver ruglingur á,
sérstaklega þegar getið er bœja utan Eyjafjarðar-
sýslu, en jafnvel einnig þar sem verið er að tala um
bæina í Svarfaðardal sjálfum. Aðstandendur
bókarinnar vonast til þess að slíkt verði virt á betri
veg, þegar menn hugleiða eðli þessa máls “.
Við þetta er litlu að bæta. Það er betra að sleppa
forsetningum en að nota þær rangt. Forsetningar
bæjarnafna gefa engar upplýsingar en lengja málið.
Þá er það bóndinn Asbjöm. Hann var Jörinsson,
en ábýlisjörð hans var Bjamastaðir Selvogi. Þetta er
í samræmi við þátt minn í októberblaði Frétta-
bréfsins 2001, Aatal Hannesar Þorsteinssonar
þjóðskjalavarðar 29. gr. 6 bls. 15.
Aðalheimildin er Lögréttumannatal bls. 277 við
nafn Jóns Gíslasonar Hæringsstöðum.
n.
Jónar tveir Bjarnasynir
Sbr. grein Páls Lýðssonar: Um faðerni Margrétar
Jónsdóttur bls. 22 - 23.
Jón Bjarnason, bamsfaðir Þuríðar Eyleifsdóttur
(Borgf. æviskrár II. bls. 307), var enn vinnumaður
Hjálmholti við Manntal 2. febr. 1835. Árið 1824 kom
til Hraungerðissóknar Jón Bjamason. Ekki er þess getið
í prestsþjónustubókinni, til hvaða bæjar hann kom né
hvaðan hann kom. Enginn aldur greindur. Sennilega er
hér um fyrmefndan Jón Bjamason að ræða.
Jón Bjarnason, bóndasonur Tjörn Biskups-
tungum, var enn vinnumaður föður síns við Manntal
1835. Jón kvæntist 25. maí 1830 Margréti f. 1797
Egilsdóttur, bónda Bjarnastöðum Selvogi 1816,
Jónssonar. Jón og Margrét höfðu slitið samvistir
1835. Margrét var heima Bjarnastöðum það ár.
Jón Bjarnason var síðast próventumaður
Klausturhólum Grímsnesi. Hann dó 20. apr. 1852.
Guðmundur f. 1695 á lífi 1773, bóndi Kópsvatni,
var Þorsteinsson.
III.
Fyrirspurn Sigríðar Unu Eiríksdóttur
Bls. 17 í Fréttabréfinu. Um Guðrúnu Sigríði
Guðmundsdóttur er það vitað, að hún er dáin fyrir 1.
des. 1910. Hún er farin frá foreldrum 1902 og finnst
ekki með þeim eftir það. Foreldrar G.S.G. voru í
húsmennsku Svertingsstaðaseli Melstaðarsókn Hún.
1906 - 1909. Við Manntal l.des. 1910 voru þau í
húsmennsku Reynhólum Staðarbakkasókn Hún.,
heimili nr. 6546 í Manntali 1910 (tölvuunnið rit í
Þjóðskjalasafni). Við áðumefnt manntal telja hjónin
börn sín vera tvö á lífi, en fjögur dáin.
Guðjón Oskar Jónsson
Ættfræðibækur til sölu
MANNTAL Á ÍSLANDI 1801-3 BINDI
OG NAFNALYKILL AÐ ÞVÍ, MANNTAL Á ÍSLANDl
1816 - 5 BINDI (vantar 2. bindi), MANNTAL Á ÍSLANDI
1845-3 BINDI, MANNTAL Á ÍSLANDI 1910- 6 BINDI
ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR - 6 BINDI (Jón Guðnason),
FRAMÆTTIR ÍSLENDINGA (Sigurgeir Þorgrímsson),
25 ÆTTARTÖLUR (Dr. Ari Gíslason), BÆJARÆTTIN
(Ari Gislason), TRÖLLATUNGUÆTT - 4 BINDI,
PÁLSÆTT- 3 BINDI, NIÐJATAL: SÉRA HALLGRÍMS
PÉTURSSONAR OG GUÐRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR
- 2 BINDI í ÖSKJU
VESTUR ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR M/MYNDUM
(Jónas Thordarson),
NIÐJATAL : BENJAMÍNS JÓNSSONAR OG
KATRÍNAR MARKÚSDÓTTUR Á HRÓFBJARGAR-
STÖÐUM. NIÐJATAL : SÉRA JÓNS BENEDIKTS-
SONAR OG GUÐRÚNAR KORTSDÓTTUR, NIÐJA-
TAL : GUNNLAUGS BJÖRNSSONAR, BÓNDA Á
ÓSPAKSTÖÐUM í HRÚTAFIRÐI OG EIGINKVENNA
HANS:SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR OG GUÐRÚNAR
JÓNSDÓTTUR (Friðrik Theodór Ingþórsson), GUÐ-
FRÆÐINGATAL 1847-1976 (Björn Magnússon),
FRÆNDGARÐUR - (Bjöm Magnússon) - NIÐJATÖL
RÓSU BRYNJÓLFSD. - JÓNS SALÓMONSS. - ODDS
BJARNASONAR - SÓLRÚNAR ÞÓRÐARD.- SIGURÐ-
AR SIGURÐSS. m/ bókarauka eftir Bjarna Jónsson,
FRÆNDGARÐUR 11 - (Björn Magnússon), FRAM-
ÆTTIR CHARLOTTU JÓNSDÓTTUR OG BJÖRNS
MAGNÚSSONAR,
ÆTTARÞÆTriR FRÁ BIRNI SÆMUNDSS. HÓLI, -
GÍSLA HELGAS. NORÐUR REYKJUM - KJARTANI
JÓNSS. KRÓKI (Jóhann Eiríksson). BREIÐFIRZKIR
SJÓMENN I OG 11 (Jens Hermannson), DALAMENN
111. BINDI a og b (Ljósritað í gormabók),
VESTUR SKAFTFELLINGAR 1703-1966 (án kápu) Og
AUKA BÓK UM ÆTTIR SÍÐUPRESTA
Viðbætur og lagfæringar (Bjöm Magnússon)
Upplýsingar gefur: Kristín Gunnbjörnsdóttir sími 692 3129
http://www.vortex.is/aett
20
aett@vortex.is