Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2005, Síða 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2005
Fréttabréfsins til margra ára er Guðfinna Ragnars-
dóttir, en ritnefndina skipa, auk Guðfinnu, Olafur H.
Oskarsson og Ragnar Böðvarsson. Abyrgðarmaður
er Eiríkur Þ. Einarsson.
Ættfræðifélagið heldur úti heimasíðu,
www.vortex.is/aett. Um heimasíðuna hefur Þóður
Tyrfingsson, gjaldkeri félgsins séð. Töluverð umferð
er á síðunni og hafa margar fyrirspurnir borist til
félagsins um spjallsíðuna. A síðunni birtast upplýs-
ingar um hvað er framundan í starfi félagsins, m.a.
um félagsfundi, opið hús o.s.frv.
I ár höldurn við upp á 60 ára afmæli Ættfræði-
félagsins. Samkvæmt gamalli fundargerðarbók var
fyrsti undirbúningsfundur undir stofnun mannfræða-
og ættfræðifélags haldinn 22. febrúar 1945 og skyldi
hann skoðast sem stofnfundur Ættfræðifélagsins.
Útgáfumál
Félagið hefur gefið út manntölin 1801, 1816, 1845
og útgáfa er hafin á manntalinu frá 1910 og þegar
hafa komið út 6 bindi. Ef við höldum áfram útgáfu á
því með sama hraða og verið hefur, verðum við yfir
30 ár að gefa það út. Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um að hætta útgáfunni og unnið verður
áfram að undirbúningi næstu binda. Hvort þau verða
síðan gefin út verður ekki ákveðið hér og nú, heldur
ræðst það af fjárhag félagsins og hvort styrkir til
útgáfunnar fáist. Þó er fullljóst að upplag verður ekki
nema hálft á við upplag þeirra binda sem þegar hafa
verið gefin út af því.
Unnið verður að því að koma félaginu á fjárlög
svo unnt verði að halda útgáfunni áfram, en það er
forsenda fyrir áframhaldandi bókaútgáfu á vegum
félagsins.
Látnir félagar á árinu 2004
Sigfinnur Sigurðsson f. 16. 2. 1937
Jón Ólafur Ólafsson f. 4.11.1932
Bjami M. Sigmundsson f. 2.3 1933
Guðmundur Friðgeir Magnússon f. 2.5.1927
Fyrirspurn
Eftirfarandi fyrirspum barst Ættfræðifélaginu
frá Carolyn Alberta í Kanada.
Við erum að leita að ættingjum Isfeld
fjölskyldunnar. Við höfum fundið Pál Eiríksson
Isfeld sem fæddur var í desember 1864. Ef
einhverjir hafa upplýsingar um foreldra hans eða
aðra ættingja værum við þakklát. Svar óskast
sent til jci@shaw.ca og Ættfræðifélagsins
aett@vortex.is
Framtíðin
Margir ákváðu að með íslendingabók mundi
ættfræðin leggjast af, búið væri að gera allt sem gert
verður í ættfræði þar með. En það virðist aldeilis
ekki vera. Fólk um allt land er enn að rekja ættir
sínar. Það má segja að tími sé kominn til að grúska
enn meira í ættfræðinni og dýpra, reyna að finna
söguna á bak við persónumar svo þær verði meira en
nöfn á blaði, ásamt fæðingardögum.
I alltof margar ættfræðibækur og þá sérstaklega
stéttatöl, vantar fæðingarstaði og dánarstaði. Það
gerir stundum erfitt fyrir um leit að uppruna fólks.
Einnig vantar menntun og starfssvið fólksins. Margir
voru auðvitað bændur og flestir reyndar fyrir
aldamótin 1900 og fyrr, en síðar hefur það breyst
mikið. Eitt af því sem stendur fyrir dyrurn er að gera
manntölin aðgengileg á netinu og er það vel og ekki
seinna vænna.
Manntöl á myndum
Nýlega birtist í sænsku ættfræðiblaði grein um
myndun á kirkjubókum með stafrænum hætti. Ungum
mönnum datt í hug að fara þessa leið, fengu leyfi hjá
skjalasöfnum til að mynda bækumar gegn því að
safnið fengi eintak endurgjaldslaust og síðan selja þeir
bækumar á geisladiskum við mjög sanngjömu verði.
Ef þetta yrði gert hér yrði ættfræðigrúsk enn auð-
veldara en það er nú, allar kirkjubækur og aðrar prests-
þjónustubækur á tölvutæku fonni ásamt manntölum og
allt í upprunalegri mynd, en bækumar sjálfar fengju
hvfld frá grúskurunum sem í tímans rás hafa sett kaffi-
og neftóbaksbletti á verðmætar bækumar sem auðvitað
yrðu myndaðir ásamt upplýsingunum á bókunum.
Þetta sænska verkefni er lýsandi fyrir hvað hægt er
að gera í þessa vem. Ljósmyndaðar em um 5000
blaðsíður á dag, en ég veit ekki hvað prestsþjónustu-
bækur hér em samtals margar blaðsíður, en þó held ég
að varla ætti að taka lengri tíma en eitt ár að gera þetta,
að undirbúningstíma loknum, fáist einhver til þess.
Franz Gíslason, ritstjóri hinnar nýútkomnu Grasaættar,
kynnti bókina á félagsfundi Ættfræöifélagsins og afhenti
félaginu eitt eintak. Grasaættin fjallar, eins og fram kom
í síðasta blaði, um niðja Þórunnar Gísladóttur Ijós-
móður og grasakonu og Filippusar Stefánssonar bónda
og silfursmiðs. Hér sést Eiríkur Þ. Einarsson formaður
Ættfræðifélagsins taka við gjöfinni.
http ://w w w. vortex .is/aett
22
aett@vortex.is