Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Page 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007
FRETTABREF
5ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
© 588-2450
aett@aett.is
Heimasíða:
http://www.ætt.is
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Olafur H. Oskarsson
oho@internet.is
© 553-0871
Ragnar Böðvarsson
© 482-3728
bolholt@eyjar.is
Umsjónarmaður
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyrgðarmaður:
Eiríkur Þ. Einarsson
formaður Ættfræðifélagsins
lindasmari@simnet.is
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efrti sem óskast
birt í bladinu berist
umsjónarmanni á rafrœnu
formi (tölvupósturldisketta)
Prentun: Gutenberg
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 700
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 300 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Ný stjórn Ættfræðifélagsins: f.v. Hörður Einarsson, varaformaður,
Kristinn Kristjánsson ritari, Olgeir Möller gjaldkeri, Olafur Pálsson
varamaður, Valdimar Már Pétursson, varamaður, Anna Guðrún
Hafsteinsdóttir meðstjórnandi og Eiríkur Þ. Einarsson formaður.
Lyklun Fréttabréfsins
Karenina K. Chiodo nemandi í bókasafns- og upplýsingafræðum við
Háskóla íslands og félagi í Ættfræðifélaginu hefur hafið gerð efnislykils
að Fréttabréfi Ættfræðifélagsins. Karenina mun lykla fréttabréfið frá
byrjun og verður sú skrá væntanlega gerð aðgengileg öllum þegar
Karenina hefur lokið verkefninu. Þar verður hægt að finna einstakar
greinar eftir efni og höfundum. Hún gerir ráð fyrir að verkinu ljúki í vor
þar sem hún stefnir á að ljúka BA prófi í júní, en lyklunin á fréttabréfinu er
lokaverkefni hennar. Það er Ættfræðifélaginu mikið ánægjuefni að þessi
lyklun skuli verða að veruleika en oft hefur verið rætt um að hrinda slíku
verkefni í framkvæmd.
Karenina er af íslenskum ættum í móðurætt en af ítölskum í föðurætt.
Hún er fædd 7. des. 1973. Móðir hennar heitir Ágústa Valdís Svansdóttir,
fædd 31. júlí 1952 í Reykjavrk. Foreldrar hennar voru Málfríður Guðrún
Magnúsdóttir, fædd 17. júní 1912íReykjavíkogdó29.júní 1986íReykja-
vík og Svanur Jónsson, fæddur 15. júlí 1918 í Árbær í Holtahr., Rang. og
dó 26. maí 2002 í Reykjavík.
Faðir Kareninu er Frank Joseph Chiodo, fæddur 22. júlí 1946 í
Brooklyn, New York, Ameríku.
Karenina á einn albróður, Micheal Frank Rúnar Chiodo, fæddur 12.
september 1971 í Reykjavík og hálfsystir þeirra sammæðra heitir Rakel
Fríða Thoroddsen, fædd 14. júlí 1991 í Reykjavík.
Sonur Kareninu heitir Kristófer Marcus Guðmundsson, fæddur 5. júní
2003 í Reykjavík.
Ný heimasíða Ættfræðifélagsins
Ný heimasíða Ættfræðifélagsins er nú í vinnslu. Vefarinn okkar, Brynhildur
Pétursdóttir, hefur ofið forsíðuna, en enn vantar krækjur í undirsíður. Þær
verða settar upp eftir því sem þær verða tilbúnar.
Á síðunni verða allar nauðsynlegar upplýsingar um félagið, þar birtast
auglýsingar um félagsfundi og opið hús. Einnig verður gestabók sem
gestir geta notað til að koma skilaboðum til félagsins. Einnig verður hægt
að skrá sig í félagið á síðunni. Allar þessar krækjur eru í vinnslu og verða
nothæfar innan tíðar.
Lén Ættfræðifélagsins er http://www.aett.is og http://www,ætt.is
og verður hægt að nota hvort tveggja til að komast inn á síðuna.
Tölvupósturinn breytist í aett@aett.is.
http://www.aett.is
2
aett@aett.is