Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 22

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007 Eiríkur Þ. Einarsson formaður Ættfræðifélagsins: Ættfræðifélagið - aðalfundur Skýrsla stjórnar: Eftir síðasta aðalfundi var stjóm Ættfræðifélagsins þannig skipuð: Formaður: Eiríkur Þ. Einarsson, Varaformaður: Hörður Einarsson, Ritari: Anna K. Kristjánsdóttir, Gjaldkeri: Olgeir Möller Meðstjórnandi: Anna Guðrún Hafsteinsdóttir í varastjórn voru: Ólafur Pálsson og Valdimar Már Pétursson. Stjómin hélt 9 bókaða fundi á árinu. Eins og gengur í félögum, þá koma stjómarmenn og fara. Að þessu sinni eru það þau Anna K. Kristjánsdóttir og Olgeir Möller sem eiga skv. lögum að ganga úr stjórn félagsins og Valdimar Már Pétursson úr varastjórn, en öll eru þau kosinn er til tveggja ára. Allir fráfarandi stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu nema Anna K. Kristjánsdóttir. Eg vil þakka henni frábær störf á undanförnum árum, en þó að hún fari nú úr stjóm njótum við starfskrafta hennar vonandi áfram í öðrum störfum. Skuldlausir félagsmenn um síðustu áramót voru um 500, heiðursfélagar em 9 og erlendir félagar 6. Nokkrir nýir félagar bættust í hópinn á árinu og alltaf látast einhverjir í svo stóru og gömlu félagi sem Ætt- fræðifélagið er. Vil ég biðja fundarmenn um að rísa úr sætum og minnast þannig þeirra látnu. - Takk fyrir. Fjárhagur félagsins stendur nokkuð styrkum stoð- um. Hér á eftir gerir gjaldkeri grein fyrir reikningum félagsins. Ný hcimasíða Félagsfundir voru haldnir mánaðarlega yfir vetrarmánuðina. Meðal fyrirlesara voru Erla Hulda Haraldsdóttir sagnfræðingur, Hjalti Pálsson ritstjóri, Ólafur Oddsson menntaskólakennari og dr. Sturla Friðriksson. A félagsfundi mættu að jafnaði 15-30 manns og voru fundir haldnir í þessum fundarsal hér í Þjóðskjalasafninu. Við þökkum safninu kærlega fyrir gott samstarf, en við höfum ekki þurft að greiða fyrir afnot af salnum. Kristinn Kristjánsson hefur séð um veitingar á flestum félagsfundum. Eru honum hér með þökkuð frábær störf. A árinu voru gefin út fjögur tölublöð af Fréttabréfi Ættfræðifélagsins með fjölbreyttu efni. Ritstjóri Fréttabréfsins undanfarin ár hefur verið Guðfinna Ragnarsdóttir, en ritnefndina skipa, auk Guðfinnu, Ólafur H. Óskarsson og Ragnar Böðvarsson. Abyrgðarmaður er formaður félagsins, Eiríkur Þ. Einarsson. Unnið er að skönnun fréttabréfsins og væntanlega fara þau elstu á heimasíðu félagsins nú þegar hún hefur verið endumýjuð. Manntölin á bókamarkað A bókamarkaði í Perlunni í febrúar á sl. ári var ákveð- ið að bjóða manntölin til sölu og gafst það nokkuð vel. Manntöl seldust fyrir á annað hundrað þúsund. Áfram verða manntöl boðin til sölu á bókamarkaðnum. Opið hús er á skrifstofu félagsins í Ármúla 19, 2. hæð, einu sinni í viku, á miðvikudögum, yfir vetrartímann, frá byrjun september og fram í maí. Á Opið hús koma um 8-10 manns á hverjum miðvikudegi. Stjómarmenn og aðrir félagsmenn hafa skipst á að sjá um Opið hús. Á Opnu húsi geta félagsmenn litið í bækur, spjall. að og fræðst um leyndardóma ættfræðinnar. Ætt- fræðifélagið á marga hauka í horni sem hafa félagið jafnan í huga og færa því bókagjafir. Meðal gefenda á árinu var Hjalti Pálsson ritstjóri hjá Sögufélagi Skagfirðinga og niðjar Ingibjargar Olgu Hjaltadóttur sem gáfu ættfræðibækur úr bókasafni hennar. Ættfræðifélagið er að láta gera nýja heimasíðu, en heimasíðan hefur því miður ekki verið virk að undan- fömu. Unnið hefur verið að endurhönnun á síðunni og var hún opnuð í dag á léninu aett.is. Enn er unnið með Þjóðskjalasafni að undirbúningi að yfirlestri á manntölum sem til em tölvuskráð hjá safninu. Nokkrir sjálfboðaliðar skráðu sig á sínum tíma til að vinna þetta verk og er vonast til að þetta verkefni getið nú hafist. Útgáfustarf Ættfræðifélagsins Þó ekki hafi komið út neitt af manntölum á undan- fömum árum erum við ekki alveg af baki dottin. Enn er unnið að undirbúningi að útgáfu næstu binda af manntali 1910 í samvinnu við Erfðafræðinefnd. Ætlunin er að vinna ritið á svipaðan hátt og fyrri bindi en þau koma ekki endilega út í réttri bindaröð, heldur eftir því hvernig verkið vinnst. Getur því 15. bindi komið á undan 10. bindi ef verkið vinnst þannig. Áætlað er að Manntalið 1910 verði alls 16- 17 bindi ef ákveðið verður að gefa það út í prentuðu formi, sem við stefnum að, en það getur líka verið að það verði einungis gefið út sem tölvudiskur eða sett á Intemetið. Það fer algerlega eftir kostnaði og fjármögnun á verkinu og hvernig unnt er að vinna það á sem hagkvæmastan hátt. Að lokum vil ég þakka samstarfsmönnum mínum í stjóm frábært samstarf og þolinmæði á árinu og býð þau sem kjörin verða til stjómarstarfa þegar þar að kemur í dagskránni hér á eftir velkomin til starfa. http://www.ætt.is 22 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.