Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 24

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 24
FRÉTTABRÉF ^^TTFRÆÐ IFÉ L AG SIN S Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is Netfang: aett@aett.is Þjóðskjalasafn íslands Safnið er opið: Mánudaga Þriðjudaga Miðvikudaga Fimmtudaga Föstudaga kl. 10:00-18:00 kl. 10:00 - 19:00 kl. 10:00-18:00 kl. 10:00-18:00 kl. 10:00-16:00 Afgreitt verður daglega úr skjalageymslum kl. 10.30, 13.30 og 15.30 Opið hús Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð. Allir eru velkomnir með spurningar og svör, áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og alltaf heitt á könnunni. Nýtið ykkur bókasafnið, það vex stöðugt! Komið og kíkið í nýjar ættfræðibækur. STÓRLÆKKAÐ VERÐ Á MANNTÖLUM Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin. Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki við ætt- fræðirannsóknir. Tilvalið að gefa börnunum eða góðum vinum í afmælis- gjöf! Verðskráin lítur svona út: Manntal 1910 1. bindi: V-Skaftafellssýsla, kr. 1000.- 2. bindi: Árnessýsla, kr. 2000,- 3. bindi: Rangárvallasýsla: 2000,- 4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, kr. 2000,- 5. bindi: Reykjavík 1 og 2, kr. 8000,- Manntal 1845 1.-3. bindi, kr. 1000.- hvert bindi Manntal 1816 6. hefti: kr. 500,- (allt sem til er) Manntal 1801: 3. bindi: Norður- og Austuramt (allt sem til er) kr. 1000.- Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins, Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga kl. 17:00 til 19:00. Einnig má panta þau í síma 697 6223 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett.is eða gudfragn@ mr.is NæstifundurÆttfræðifélagsinsverðurhaldinnfimmtudaginn 29. mars,kl. 20:30 íhúsiÞjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð Reykjavík. Dagskrá: Árni Indriðason sagnfræðingur og menntaskólakennari flytur fyrirlestur um Reyni- staðarbræður. Árni, sem er skagfirskrar ættar, hefur um langt skeið reynt að kynna sér nokkuð þá hjátrú sem tengist fólki af Reynistaðarætt og tengslum hennar við örlög þeirra bræðra. Kaffi JÉ Í & í Fyrirspurnir, umræður og önnur mál Fimmtudaginn 26. apríl, flytur Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur fyrirlestur sem hún kallar: Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur-sjálfsævisaga alþýðukonu eða kímnisaga af flóni. Saga Guðrúnar, sem var fædd 1759, er sennilega elsta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu sem varðveitt er hér á landi. Fundurinn hefst kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð Reykjavík.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.