Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Side 24
FRÉTTABRÉF
^^TTFRÆÐ IFÉ L AG SIN S
Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is Netfang: aett@aett.is
Þjóðskjalasafn íslands
Safnið er opið:
Mánudaga
Þriðjudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
Föstudaga
kl. 10:00-18:00
kl. 10:00 - 19:00
kl. 10:00-18:00
kl. 10:00-18:00
kl. 10:00-16:00
Afgreitt verður daglega úr
skjalageymslum kl. 10.30,
13.30 og 15.30
Opið hús
Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá
kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð.
Allir eru velkomnir með spurningar og
svör, áhuga og gott skap. Þar er margt
spjallað og alltaf heitt á könnunni.
Nýtið ykkur bókasafnið, það vex stöðugt!
Komið og kíkið í nýjar ættfræðibækur.
STÓRLÆKKAÐ VERÐ Á
MANNTÖLUM
Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í
takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin. Mörg
hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið hefur
verið að stórlækka verðin á manntölunum svo allir
geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki við ætt-
fræðirannsóknir.
Tilvalið að gefa börnunum eða góðum vinum í afmælis-
gjöf!
Verðskráin lítur svona út:
Manntal 1910
1. bindi: V-Skaftafellssýsla, kr. 1000.-
2. bindi: Árnessýsla, kr. 2000,-
3. bindi: Rangárvallasýsla: 2000,-
4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, kr. 2000,-
5. bindi: Reykjavík 1 og 2, kr. 8000,-
Manntal 1845
1.-3. bindi, kr. 1000.- hvert bindi
Manntal 1816
6. hefti: kr. 500,- (allt sem til er)
Manntal 1801:
3. bindi: Norður- og Austuramt (allt sem til er) kr.
1000.-
Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins,
Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga kl.
17:00 til 19:00. Einnig má panta þau í síma 697 6223 eða
í tölvupósti á netföngunum aett@aett.is eða gudfragn@
mr.is
NæstifundurÆttfræðifélagsinsverðurhaldinnfimmtudaginn 29. mars,kl. 20:30 íhúsiÞjóðskjalasafnsins
að Laugavegi 162, 2. hæð Reykjavík.
Dagskrá: Árni Indriðason sagnfræðingur og menntaskólakennari flytur fyrirlestur um Reyni-
staðarbræður. Árni, sem er skagfirskrar ættar, hefur um langt skeið reynt að kynna sér nokkuð þá hjátrú
sem tengist fólki af Reynistaðarætt og tengslum hennar við örlög þeirra bræðra.
Kaffi JÉ Í & í
Fyrirspurnir, umræður og önnur mál
Fimmtudaginn 26. apríl, flytur Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur fyrirlestur sem hún kallar:
Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur-sjálfsævisaga alþýðukonu eða kímnisaga af flóni. Saga Guðrúnar,
sem var fædd 1759, er sennilega elsta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu sem varðveitt er hér á landi.
Fundurinn hefst kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð Reykjavík.