Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Page 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007
Eiríkur Þ. Einarsson formaður Ættfræðifélagsins:
Ættfræðifélagið - aðalfundur
Skýrsla stjórnar:
Eftir síðasta aðalfundi var stjóm Ættfræðifélagsins
þannig skipuð:
Formaður: Eiríkur Þ. Einarsson,
Varaformaður: Hörður Einarsson,
Ritari: Anna K. Kristjánsdóttir,
Gjaldkeri: Olgeir Möller
Meðstjórnandi: Anna Guðrún Hafsteinsdóttir
í varastjórn voru: Ólafur Pálsson og Valdimar Már
Pétursson.
Stjómin hélt 9 bókaða fundi á árinu.
Eins og gengur í félögum, þá koma stjómarmenn
og fara. Að þessu sinni eru það þau Anna K.
Kristjánsdóttir og Olgeir Möller sem eiga skv.
lögum að ganga úr stjórn félagsins og Valdimar Már
Pétursson úr varastjórn, en öll eru þau kosinn er til
tveggja ára. Allir fráfarandi stjórnarmenn gefa kost
á sér til áframhaldandi stjórnarsetu nema Anna K.
Kristjánsdóttir. Eg vil þakka henni frábær störf á
undanförnum árum, en þó að hún fari nú úr stjóm
njótum við starfskrafta hennar vonandi áfram í öðrum
störfum.
Skuldlausir félagsmenn um síðustu áramót voru
um 500, heiðursfélagar em 9 og erlendir félagar 6.
Nokkrir nýir félagar bættust í hópinn á árinu og alltaf
látast einhverjir í svo stóru og gömlu félagi sem Ætt-
fræðifélagið er. Vil ég biðja fundarmenn um að rísa úr
sætum og minnast þannig þeirra látnu. - Takk fyrir.
Fjárhagur félagsins stendur nokkuð styrkum stoð-
um. Hér á eftir gerir gjaldkeri grein fyrir reikningum
félagsins.
Ný hcimasíða
Félagsfundir voru haldnir mánaðarlega yfir
vetrarmánuðina. Meðal fyrirlesara voru Erla Hulda
Haraldsdóttir sagnfræðingur, Hjalti Pálsson ritstjóri,
Ólafur Oddsson menntaskólakennari og dr. Sturla
Friðriksson. A félagsfundi mættu að jafnaði 15-30
manns og voru fundir haldnir í þessum fundarsal hér
í Þjóðskjalasafninu. Við þökkum safninu kærlega
fyrir gott samstarf, en við höfum ekki þurft að greiða
fyrir afnot af salnum. Kristinn Kristjánsson hefur séð
um veitingar á flestum félagsfundum. Eru honum hér
með þökkuð frábær störf.
A árinu voru gefin út fjögur tölublöð af Fréttabréfi
Ættfræðifélagsins með fjölbreyttu efni. Ritstjóri
Fréttabréfsins undanfarin ár hefur verið Guðfinna
Ragnarsdóttir, en ritnefndina skipa, auk Guðfinnu,
Ólafur H. Óskarsson og Ragnar Böðvarsson.
Abyrgðarmaður er formaður félagsins, Eiríkur Þ.
Einarsson. Unnið er að skönnun fréttabréfsins og
væntanlega fara þau elstu á heimasíðu félagsins nú
þegar hún hefur verið endumýjuð.
Manntölin á bókamarkað
A bókamarkaði í Perlunni í febrúar á sl. ári var ákveð-
ið að bjóða manntölin til sölu og gafst það nokkuð vel.
Manntöl seldust fyrir á annað hundrað þúsund. Áfram
verða manntöl boðin til sölu á bókamarkaðnum.
Opið hús er á skrifstofu félagsins í Ármúla
19, 2. hæð, einu sinni í viku, á miðvikudögum,
yfir vetrartímann, frá byrjun september og fram í
maí. Á Opið hús koma um 8-10 manns á hverjum
miðvikudegi. Stjómarmenn og aðrir félagsmenn hafa
skipst á að sjá um Opið hús.
Á Opnu húsi geta félagsmenn litið í bækur, spjall.
að og fræðst um leyndardóma ættfræðinnar. Ætt-
fræðifélagið á marga hauka í horni sem hafa félagið
jafnan í huga og færa því bókagjafir. Meðal gefenda
á árinu var Hjalti Pálsson ritstjóri hjá Sögufélagi
Skagfirðinga og niðjar Ingibjargar Olgu Hjaltadóttur
sem gáfu ættfræðibækur úr bókasafni hennar.
Ættfræðifélagið er að láta gera nýja heimasíðu, en
heimasíðan hefur því miður ekki verið virk að undan-
fömu. Unnið hefur verið að endurhönnun á síðunni
og var hún opnuð í dag á léninu aett.is.
Enn er unnið með Þjóðskjalasafni að undirbúningi
að yfirlestri á manntölum sem til em tölvuskráð hjá
safninu. Nokkrir sjálfboðaliðar skráðu sig á sínum
tíma til að vinna þetta verk og er vonast til að þetta
verkefni getið nú hafist.
Útgáfustarf Ættfræðifélagsins
Þó ekki hafi komið út neitt af manntölum á undan-
fömum árum erum við ekki alveg af baki dottin.
Enn er unnið að undirbúningi að útgáfu næstu binda
af manntali 1910 í samvinnu við Erfðafræðinefnd.
Ætlunin er að vinna ritið á svipaðan hátt og fyrri
bindi en þau koma ekki endilega út í réttri bindaröð,
heldur eftir því hvernig verkið vinnst. Getur því
15. bindi komið á undan 10. bindi ef verkið vinnst
þannig. Áætlað er að Manntalið 1910 verði alls 16-
17 bindi ef ákveðið verður að gefa það út í prentuðu
formi, sem við stefnum að, en það getur líka verið
að það verði einungis gefið út sem tölvudiskur eða
sett á Intemetið. Það fer algerlega eftir kostnaði og
fjármögnun á verkinu og hvernig unnt er að vinna
það á sem hagkvæmastan hátt.
Að lokum vil ég þakka samstarfsmönnum mínum
í stjóm frábært samstarf og þolinmæði á árinu og býð
þau sem kjörin verða til stjómarstarfa þegar þar að
kemur í dagskránni hér á eftir velkomin til starfa.
http://www.ætt.is
22
aett@aett.is