Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Qupperneq 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007
Þuríður Kúld. Benedikt Þ. Gröndal var tekinn í fóstur
af móðursystur sinni Þuríði Kúld og manni liennar
Eiríki Kúld þegar hann var tveggja ára og ólst hann
upp hjá þeim.
í lok erfiljóðanna er „Eftirmáli“ og læt ég hann
fylgja hér með:
Eftirmál vid erflljóð
(1900)
Ó, mikla vald, sem myndar örlög vor
svo myrk og hulin, líkt og anda spor!
Mig vantar skilning til að skilja sárin
og skarpleik til að meta harmatárin.
Hve strangir virðast Drottins vísu dómar!
Hve dapurlegt og sviplegt kallið hljómar!
Hve eyðilegur er nú staður sá,
þar átti ég Jyrrum hjartansvini þrjá!
Ei skal þó, Drottinn mögla móti þér.
Mildur vinur dauðinn raunar er.
Lífið heimtar þrek í sárum þrautum.
Þungamiðja? Er trúin lífs á brautum.
Og trú mín er: ég afturfœ að sjá
í eilífðinni vini mína þrjá.
Amma giftist 16 ára
Þorvaldur faðir afa kvæntist aftur 1872 Kristínu
Jónsdóttur og átti með henni þrjú börn, Árna, mennta-
skólakennara á Akureyri, Jón, síðar prest á Stað á
Reykjanesi, og Valborgu Elísabetu, húsfreyju að
Auðshaugi á Barðaströnd. Til gamans má geta þess
að sá sem hafði hönd í bagga með þessu hjónabandi
Þorvaldar langafa var Friðrik Eggerts í Akureyjum á
Breiðafirði.
Kristín Jónsdóttir verður ekkja 1884 þegar Þor-
valdurdeyr. Húngiftist 1897 séraBjarnaSímonarsyni,
en hann sat á Brjánslæk þar til hann lést 1930. Vegna
þessara tengsla hafði afi minn ítök á Brjánslæk.
Árið 1890 er barnaskóli stofnaður í Ólafsvík
og 1895 fær afi starf skólastjóra við hann. Gengdi
hann því starfí til 1905. Á þessum skólastjóraárum
kynntist hann foreldrum Sigurlaugar ömmu minnar,
sæmdarhjónunum Guðmundi Guðmundssyni og
Sigríði Bjarnadóttur í Efstabæ. Vinátta tekst með
hjónunum og afa. Þá var amma nemandi í barna-
skólanum. Hún var fædd 10. október 1885 á Flatey á
Breiðafirði og var 15 árum yngri en afi.
Ekki tókst mér að finna neinar heimildir í Ólafsvík
varðandi foreldra ömmu. Foreldrar hennar voru bæði
Snæfellingar í báðar ættir. Guðmundur var sjómaður
og hafði smábúskap meðfram. Hann var einnig
laginn vefari að sögn, en í þá daga var vefnaður
mestmegnis í höndum karla.
Afi býður þeim Guðmundi og Sigríði að hann
skuli koma Sigurlaugu dóttur þeirra til Brjánslækjar
til náms í hannyrðum og fleiru. Það verður úr og
þegar hún snýr heim aftur þá giftast þau afi og amma
á aðfangadag 1901. Þá er amma mín aðeins 16 ára.
Fyrsta bam þeirra er Valborg Elísabet fædd 1902 og
ári seinna fæðist Sigurður Guðmundur.
Ammamín varein af þessum hljóðlátu húsmæðrum,
sem aldrei féll verk úr hendi. Henni fórst hússtjórnin
alltaf vel og fjölskyldan var stór. Faðir hennar og
Ólafur bróðir hennar flytja til þeirra, svo og systirin
Sigríður þegar móðir þeirra, Sigríður deyr 1903.
Skrifari í Reykjavík
Árið 1905 hætti afi störfum við barnaskólann og þá
tóku hjónin sig upp og fluttu til Norðfjarðar. Með
þeim í för var Sigríður systir ömmu og bömin tvö.
Á Norðfirði var mikil vélbátaútgerð og hugðist afi
taka þátt í þeirri útgerð. En eftir þeim heimildum sem
ég hef fengið í Neskaupstað varð ekkert úr því. Á
Norðfirði var um þessar mundir verið að leggja drög
að barnaskóla og var afi fenginn til þess að hrinda
stofnun hans af stað. Skólinn stóð þó ekki nema
hálft árið, því húsnæðisekla háði því að framhald
yrði í bili.
Þá var ekkert annað að gera en að fara til Reykja-
víkur. Afa hafði boðist staða skrifara hjá sýslu-
manninum í Reykjavík svo að þau taka sig upp með
bömin þrjú, því Eiríkur fæddist á Norðfirði. Sigríður
systir ömmu, fór ekki með þeim, því að hún hafði þá
kynnst verðandi eiginmanni sínum, Friðriki, og fór
með honum til Vestmannaeyja og settist þar að.
Eftir að þau hjónin fluttust til Reykjavíkur og
afi settist á skrifstofustól, hafði hann fleiri tækifæri
til þess að yrkja erfiljóð, afmælisljóð og fleira þess
háttar til þess að drýgja tekjumar. Honum leiddist
ákaflega innisetan og þráði hann að komast út
og upp í sveit, þá sérstaklega til heimaslóðanna á
Snæfellsnesi.
http://www.ætt.is
20
aett@aett.is