Vikan - 21.01.1982, Blaðsíða 35
Fjölskyldumál
Svef n og draumar barna
:: VxT.xxTxvxT:
iilll
■ '
frj"’hen8i heldur getur hat
uD prn að8ang að ímyndu
fuDorftnUm' Bæð‘ hjá bÖr'
að h- nUm 8etur frjálsi ;
oft f‘num örökréttu, skipulags
úr Urf>°önu hugsunum í drat
biav Um Sem að öðrum kosl
Kae'nstaklinginn.
raumar og martraðir ba
kUnþægileg reynsla og atbui
koriyA haia grætt böm að de
sl ' ram > vondum draumu:
j ^ Udraumargetajafnvelko
ákvgllrðð' ^artraðir geta verit
nuni tlmabilum og þær þ
Börmerhja að eitthvað sé að
hafa gjarnan mjög
imyndunarafl og það getur komið fram
í draumum, vakið hræðslu og valdið
martröð. Ef börn dreymir hins vegar æ
ofan 1 æ mjög illa og þau virðast hrædd
og óhamingjusöm er rétt að leita
hjálpar. Tiðar martraðir geta verið tákn
um geðræna erfiðleika og endurspeglað
erfiðleika I nánasta umhverfi barnsins.
Svefntíminn
Ef barn vaknar oft upp og virðist vera
hrætt og tryllt er hægt að reyna að hafa
áhrif á að þessir atburðir endurtaki sig
með því að undirbúa svefntímann. Það
er til dæmis hægt að verja barn gegn þvi
að ræða um erfið mál áður en það
sofnar. Skammir, árekstrar og ógnanir
rétt fyrir svefn geta orsakað slæma
drauma. Samtöl og erjur milli foreldra,
sem barn skilur ef til vill ekki, skapar oft
óöryggi og veldur svefntruflunum. Börn
sofa yfirleitt betur ef þau hafa það á til-
finningunni að þau hafi verið góð börn,
að foreldrarnir elski þau og að allt hafi
gengið vel yfir daginn. Lestur ógn-
vekjandi ævintýra eða sagna getur haft i
för með sér slæma drauma og martraðir
og er því ekki rétt að lesa slikt ef barn
hefur tilhneigingu til að fá slæma
drauma eða martraðir. Æsingakenndar
sjónvarpsútsendingar og myndir sem
vekja hræðslu geta auðveldlega komið
fram í svefntruflunum hjá börnum.
Sjónvarpsefni eins og Tommi og Jenni,
sem einkennist af miklum hávaða, látum
og oft ofbeldi, er ekki vel til þess fallið
að sýna rétt fyrir svefn barna. Rólegt
efni, eins og til dæmis múminálfarnir, er
miklu betur til þess fallið að róa börn og
láta þau slaka á rétt fyrir svefn. Einttig
má ætla að myndbandabylgjan hafi
mikil áhrif á svefn barna. Foreldrar geta
ef til vill oft fengið stundarfrið á meðan
barnið horfir á spennandi efni I mynd-
bandstæki en það verða hins vegar
sennilega margir sem taka það aftur út I
ýmiss konar svefntruflunum.
Það má telja fullvist að foreldrar geti
haft mikil áhrif á ýmiss konar svefn-
truflar.ir hjá börnum en það er rétt að
nefna að slæmar svefntruflanir geta
verið tákn um dýpri sálræn vandamál
semkrefjastaðstoðarsérfróðra.
3. tbl. Vikan 35