Unga Ísland - 01.10.1938, Blaðsíða 5
UNGA
ÍSLAND
XXXIII. ÁRG. 8. HEFTI OKT. 1938
mgve
ir.
„En hátt á eldhrauni upp
þar sem ennþá hún Oxará rennur
ofan í Almannagjá
Alþingi feðranna stóð“.
Þessa vísu kann hvert mannsbarn
á landinu, veit hver hefir kveðið hana
og hvaða stað er átt við. Eitthvað
hlýtur nú að vera sérstakt við hvoru-
tveggja, manninn og staðinn, sem nær
slíkri hylli.
Jónas Hallgrímsson ætla ég ekki að
ræða um hér, en fara aftur á móti fá-
einum orðum um frægasta staðinn á
landi hér: Þingvelli við Öxará.
Inn á milli heiðanna og fjallanna upp
af Suðurlandsundirlendinu er dalur
mikill, er nær allt upp að jöklum. All-
ur norðurhluti hans er mjög fylltur
hraunum, er runnið hafa frá ýmsum
g'osstöðvum og er þar Skjaldbreiður
langstærst, enda lokar hann dalnum
að nokkru. f norðurhluta dalsins er
Þingvallavatn, djúpt og víðáttumikið.
Við norðurenda þess eru Þingvellir eins
og allir vita, en flestir bæir í Þing-
vallasveitinni standa fram með því
að austan og vestan. Flesta langar til
að koma til Þingvalla einhverntíma á
æfinni. Enda koma þangað þúsundir
manna á ári hverju, innlendir og út-
lendir. En livað er nú allur þessi fjöldi
að vilja þangað ? yrði nú ef til vill ein-
hverjum á að spyrja. Og svarið myndi
verða eitthvað á þessa leið: Að sjá
þann stað, er Alþingi var háð á í meir
en 800 ár, sjá Almannagjá, Öxarárfoss
og gömul mannvirki. Ef þú, lesari góð-
ur, hefir komið þar, muntu samsinna
því og þú munt líka verða mér sam-
mála, er ég tel það flestum ofvaxið, að
lýst þeim stað svo að verulegu gagni
megi verða fyrir ókunnuga. Og þó þú
hafir komið þar og hafir verið til
lengri dvalar — og haldir kannske að
þú sért orðinn þaulkunnugur Þingvöll-
um, þá skulum við nú leggja upp á
nýjan leik og vita hvort við verðum
nokkurs vísari. Við skulum gera ráð
fyrir að við séum í sumarleyfi. Við
hittum umsjónarmanninn í Þingvalla-
bænum — bærinn var byggður fyrir
Alþingishátíðina 1930 — og fáum hjá
honum leyfi til að tjalda. Líklega vísar
hann okkur á tjaldstað austur í hraun-
inu. Við ætlum nefnilega að búa í tjaldi
og vera sjálfum okkur nógir. Það er
frjálsara, skemmtilegra og ódýrara. Á
leiðinni austur túnið göngum við fram
hjá dálítilli tjörn. Hún er nærri kringl-
ótt, bratt niður að henni og vatnið