Unga Ísland - 01.10.1938, Qupperneq 6

Unga Ísland - 01.10.1938, Qupperneq 6
Lög'berg. Ármannsfell í baksýn. hyldjúpt, blágrænt og tært eins og í öllum gjám hérna. Þetta er Skötutjörn. Um nafnið er þessi þjóðsaga: Einu sinni fyrir löngu var gjá, er lá undir búrgólfið á prestssetrinu. Ef rennt var færi í gjána veiddist silung- ur, en álög voru það, að ekki mátti veiða meira í senn en sem svaraði nógu í eina máltíð handa öllu heimilisfólkinu. Var þess og vandlega gætt. Nú kom þar að, að prestaskipti urðu og var nýi presturinn ákaflega ágjarn. Dregur hann nú upp silung úr gjánni í búr- gólfinu og er hann hefir veitt nóg i máltíð, rennir hann enn. Kemur þá á öngulinn skata og var hún með níu höl- um. Verður klerki allfelmt við; þrífur skötuna, hleypur sem fætur toga aust- ur túnið og kastar henni í tjörnina. Seinna átti skatan að hafa veiðst suð- ur á Reykjanesi. En eftir þetta tók fyrir alla veiði í búrgjánni og hefndist presti þannig fyrir ágirnd sína. Þegar við erum búnir að koma okk- ur fyrir í tjaldi okkar skulum við fara að litast um. Fyrir suðvestan okkur gengur allmikið nes út í vatnið. Það heitir Lambhagi. Fyrir garði afar- fornum sést, þvert yfir hann ofanverð- an. Hafa lömb verið geymd í nesinu ef til vill eftir fráfærur á vorin. Fram með ströndinni eru víða litlir hólmar og sker, vogar og víkur, sem spegla birkihríslur og klettaborgir, þegar logn er og bjart. Ef við höldum austur með vatninu komum við bráðlega að

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.