Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1943, Qupperneq 161
ÞINGTÍÐINDI
137
að segja frá hendi ritara okkar deildar.
Það er ekki af leti eða trassaskap að
hann fékk mér ekki skýrslu; heldur
fyrst og fremst sagðist hann ekki geta
utbúið skýrslu þar sem ekkert var starf-
að á iiðnu sumri, og í öðru lagi vegna
lasleika nú upp á siðkastið.
Nú til þess að eg standi hér ekki sem
einhver strandarglópur, þá reyni eg að
gefa einhverja óverulega skýringu á
afstöðu okkar í deildinni “Snæfell”,
nefnilega að ekkert var gert.
1 fyrsta lagi var óvanalega stirð tíð
hjá okkur sem víðar. Við bændur vor-
Um í vandræðum að ná saman fóðri
vegna votviðris. Þegar góð stund gafst,
Þá urðum við að hafa okkur alla við.
Svo batnaði ekki þegar uppskera og
Þresking byrjaði. Margir voru að
þreskja í snjó. Vinnuhjálp var ómögu-
^egt að fá svo alt gekk svo seint. Svo
Var talsverður lasleiki og sérstaklega
hjá forseta deildarinnar, Birni Hinriks-
s°n, þar sem- þau hjón voru með veika
áóttur sína hér í Winnipeg um 3 mán-
aða tíma; þá er það skiljanlegt að hann
gat ekki haft hugan á neinu öðru.
°kkur þótti mjög leiðinlegt að geta
ekki heimsótt deildina “Iðunn” i Leslie;
Það var fylliiega ákveðið að fara vestur,
en vegna ofangreindra ástæða var okk-
Ur Það ómögulegt. Við höfðum sannar-
ega ánægju og skemtun af komu þeirra
^ okkar eins og erindreki okkar í fyrra
efir eflaust skýrt frá.
Við erum máske sofandi, en alls ekki
auð, þð fá séum og eg treysti því að við
v°knum með vorinu og tökum þá til
starfa af bestu getu.
syo að lokum, fyrir hönd deildarinn-
ar Snæfell”, þökkum við forseta Þjóð-
æknisfélagsins, Dr. Beck, fyrir hans á-
u8a og hjálpsemi einnig í okkar deild.
2 þakka ykkur fyrir.
Thor Marvin
Skýrsla ritara "Fróns" — 1942
^ Deiiðin hefir starfað með svipuðum
setti og undanfarin ár. Bókasafnið
^efir verið starfrækt við allgóða aðsókn.
y ega hafa verið pantaðar frá íslandi
1 H 60—70 nýjar bækur, en vegna
erfiðra samgangna tekur alt slikt leng-
ur en áður var.
Deildin hefif haldið fimm opna
skemtifundi, auk “Frónsmótsins”, sem
haldið var í sambandi við Þjóðræknis-
þingið. Þessir skemtifundir hafa verið
vel sóttir og sumir mjög fjölsóttir. Á
þessum fundum hefir skemt margt ungt
fólk með söng og hljóðfæraslætti; ræð-
ur hafa verið fluttar, þar á meðal af
námsfólki frá íslandi, og þótt alt hin
besta skemtun.
“Frónsmótið” fór fram með svipuðum
hætti og áður hefir tíðkast; var það
afar fjölsótt, svo að til vandræða horfði
með húsrúm fyrir mannfjöldann, sem
var um 530 manns.
Á tveimur skemtifundum deildarinnar
voru tekin samskot til styrktar Rauða-
krossinum, námu þau $35.72, og var
samþykt að veita fé úr deildarsjóði svo
upphæðin yrði $100.00.
Stjórnarnefnd deildarinnar hefir hald-
ið 13 fundi á starfsárinu, og hafa þeir
yfirleitt verið vel sóttir af nefndar-
mönnum. Einn nefndarmanna, Tryggvi
Oleson, flutti búferlum úr bænum á
miðju starfsárinu, og naut hans því ekki
við eftir það.
Þess ber að geta hér, að forsetinn,
Soffonías Thorkelsson, vann að því svo
að segja einn að útvega fólk til þátt-
töku í skemtiskrám á öllum skemti-
fundum, sýndi hann þar sína alþektu
þrautseigju og árvekni. Á hann fyrir
þetta skildar þakkir og virðing deild-
arinnar og annara, sem skemtananna
nutu.
—Winnipeg, 16. des. 1942.
Ásgeir Guðjohnsen
Fjórmálaskýrsla "Fróns" 1942
Inntektir:
30. nóv. 1941, peningar í sjóði....$ 37.27
Meðlimagjöld i “Fróni” ...... 180.00
Inntektir á Frónsmóti ....... 439.40
Fyrir seldar bækur ............ 4.65
Samskot fyrir Red Cross ...... 35.72
Tekjur alls ................$697.04
Útgjöld:
Bókavarðar laun ..............$ 42.00
Fundarsalsleiga .............. 50.00