Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 3
^V/Leiðbeininga-
/ þjónustan
Neytendasamtökin fá
fjölmargar kvartanir
vegna fatnaðar sem
skemmst hefur í þvotti.
Við birtum þvottamerk-
in með skýringum.
Að mínum
/ dómi
Mörður Árnason,
stjórnarmaður í NS,
fjallar um skuldasöfn-
un íslenskra heimila
og hugleiðir orsakir,
afleiðingar og
úrbætur.
Neytenda-
/ bréfið
Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri setur hlutina í
forgangsröð í bréfi til
neytenda. Er hægt að
vera í öllu?
Skuldasöfnun heimilanna
íslensk heimili hafa safnaö
gríðarlegum skuldum á undan-
förnum áratug eða svo og þykir
Ijóst að margir eigi erfitt með að
standa við skuldbindingar sínar.
Við greinum frá staðreyndun-
um, gerum grein fyrir helstu
orsökum og bendum á leiðir til
úrbóta. Gefum jafnframt nokkur
ráð þeim sem vilja láta
skynsemina ráða.
5-11
Betra líf með minna umleikis
Hörður Bergmann fræðslufulltrúi og þjóðfélagsrýnir
fjallar um skuldaskil í vistkreppu. Er unnt að lifa
betra lífi með minna umleikis? Ekki bara unnt,
segir Hörður, heldur nauðsynlegt, því vexti eru
takmörk sett.
16-18
Ríkttillit til neytenda
Mjög verður litið til sjónarmiða neytenda við fram-
kvæmd samkeppnislaga, segir Georg Ólafsson, for-
stjóri hinnar nýju Samkeppnisstofnunar. Hvaða
þýðingu hafa lögin fyrir neytendur?
24-25
Með öryggið að leiðarljósi
Bergur Jónsson fjallar um öryggi lampa í fjórðu
greininni í röðinni Heimilið í réttu Ijósi.
20-22
Neytendablaðið
* mm mm . jT r
i fjorutiu ar
Neytendablaðið sem nú hefur göngu
sína, mun birta allt, sem neytend-
um má að gagni koma án nokkurs ann-
ars tillits. En að sjálfsögðu verður vand-
að þannig til blaðsins, að neytendur
megi treysta því, sem þar birtist.
I ofanskráðum orðum er fólgin
stefnuyfirlýsing þeirra sem stóðu að út-
gáfu fyrsta tölublaðs Neytendablaðsins
fyrir réttum fjörutíu árum. Þeir sem svo
skrifuðu höfðu þá nýverið stofnað Neyt-
endasamtök Reykjavíkur og nefndu
málgagn sitt Neytendablaðið. Þetta var
í júní 1953.
Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Samfélagið hefur tekið stakka-
skiptum og er nú kennt við neyslu um-
fram nokkuð annað. Neytendablaðið
hefurtekið miklum breytingum síðan
Sveinn Ásgeirsson ritstýrði fyrsta tölu-
blaðinu, bæði hvað snertir efni og útlit.
Umfang þess og útgáfutíðni hefur
einnig aukist í takt við aukinn styrk
samtakanna sem að því standa. Nú er
svo komið að blaðið fer inn á stóran
hluta heimila í landinu.
Efni þess endurspeglar viðfangsefni
og veruleika neytenda á ýmsum tímum.
Þannig fjallaði helsta fréttin í fyrsta tölu-
blaðinu um það fyrsta stefnumál Neyt-
endasamtaka Reykjavíkur að af-
greiðslutíma yrði breytt með tilliti til
neytendanna. Þá þótti það ekki sjálf-
sagt fremur en svo margt annað að
miða afgreiðslutíma við þarfir þeirra
sem keyptu vöru og þjónustu. í þessu
40 ára afmælisblaði ber hins vegar
mest á umfjöllun um skuldasöfnun ís-
lenskra heimila.
Hvað sem líður breytingum á efni og
útliti blaðsins í gegnum fjóra áratugi má
fullyrða að stefnuyfirlýsing frumherj-
anna standi óhögguð: Blaðið birtir það
sem getur komið neytendum að gagni,
án tillits til annarra sjónarmiða. Þeir
sem að blaðinu standa hverju sinni
hafa það markmið að vanda svo til
þess að neytendur megi treysta því
sem þar birtist. Það er svo lesendanna
að dæma um hvernig til tekst hverju
sinni.
Garðar
Guðjónsson
veltir vöngum
Tímarit Neytendasamtakanna. Skúlagötu 26,101 Reykjavík, S. 625000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Garðar Guðjónsson. Ritnefnd: Mörður Árnason, formaður, Raggý Guðjónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir.
Myndir: Einar Ólason Útlit: Garðar Guðjónsson Prófarkalesari: Hildur Finnsdóttir Umbrot: Blaðasmiðjan.
Filmuvinna og prentun: Prentsmiðja Frjálsrar fjölmiðlunar. Litgreiningar: Litróf Pökkun: Bjarkarás Upp-
lag: 27.000. Blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 1750 krónur og
gerist viðkomandi þá um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að nota efni úr Neytenda-
blaðinu í öðrum fjölmiðlum, ef heimildar er getið. Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að nota í aug-
lýsingum og við sölu, nema skriflegt leyfi ritstjóra liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á umhverfisvænan
pappír.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993
3