Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 5

Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 5
Skuldum vafin Guðmundur og Guðrún ganga hikandi inn á skrifstofu hagfræðings Neytendasamtakanna; Guðmundur með plastpoka í annarri hendi, möppu í hinni. i þeim erfólgið “heimilisbókhald” þeirra hjóna, vandi þeirra og erindi til hagfræðingsins. Þau hafa ágætar tekjur, þótt þær hafi heldur dregist saman á undanförnum misserum. Þau hafa hins vegar ekki látið sitt eftir liggja í neyslu- og húseignarsamfélaginu. Hafa verið á skuldafylliríi um langt skeið, haldin þeirri þjóðtrú að lán sé lán. Til að bæta gráu ofan á svart hafa stjórnvöld komið aftan að þeim með skatta- hækkunum, lækkun barnabóta og vaxtabóta. Nú segja timburmennirnir til sín. Þau hafa glatað allri yfirsýn yfir fjármál sín. Ógreiddir reikningar hlaðast upp. Þau eru komin í vanskil, skortir þekkingu og fjárhagslegan aga og þurfa á ráðgjöf og hjálp að halda. Þau eru reiðubúin að takast á við vandann. Hjónakornin eiga sér fyrirmynd í þeim fjölda fólks sem borið hefur vanda sinn upp við Neytendasamtökin. Þau eiga sér vafalaust miklu fleiri þjáningarsystkin meðal samlanda sinna. Þau eiga það að minnsta kosti sameiginlegt með mjög mörgum íslenskum neytendum að hafa tekið lán umfram það sem tekjurnar leyfa. Hversu margir sitja í sömu skuldasúp- unni og eru lentir eða eru í þann veginn að lenda í verulegum vandræðum? Það veit enginn með vissu. Engin rannsókn hefur verið gerð á umfangi greiðsluerfið- leika og ástæðum þeirra. Þó er ljóst af þeim upplýsingum sem fyrir liggja að margir eru í vanda. Skuldastaðan er hins vegar nokkuð ljós: Skuldir heimilanna nema tæplega einni miljón króna á hvert mannsbarn. Á árunum 1981 til 1992 jukust skuldir heimilanna úr rúmlega 60 miljörðum króna í 226 miljarða. Aukningin nemur 377 af hundraði. Skuldir heimilanna námu 14prósent- um af landsframleiðslu árið 1980 en voru 53,5 prósent af landsframleiðslu í lok árs 1990. Aukningin er fjórföld, en þess verður að gæta að landsframleiðsla hefur dregist saman. Neytendasamtökin hafa nú á fertugasta starfsári sínu ákveðið að gera það að for- gangsmáli í starfi sínu að stuðla að því að sem flestir geti komið fjármálum sínum á réttan kjöl, að fundin verði lausn á vanda þeirra illa settu, en þó allra helst að kom- ið verði í veg fyrir að enn fleiri safni svo miklum skuldum að til vandræða horfi. Lausnarorðin íþessu sambandi eru eftirfarandi: ▲ Fyrirbyggjandi aðgerðir ▲ Ráðgjöf ▲ Greiðslumat ▲ Greiðsluaðlögun Skuldavandinn verður vitaskuld ekki leystur nema neytendur séu reiðubúnir að slá af. Sú virðist vera raunin, ef marka má samtöl Neytendablaðsins við starfsmenn banka. - Við höfum orðið vör við mjög já- kvæðar breytingar. Fólk virðist gefa sér meiri tíma nú en áður, það spyr meira um vexti og kostnað og það er gætnara. Fólk er að gera sér grein fyrir því að lán er enginn greiði, það er þjónusta sem kostar sitt, segir Jafet Olafsson, útibússtjóri hjá stærsta útibúi Islandsbanka. Ingveldur Ingólfsdóttir, þjónustufull- trúi í Fandsbankanum, hefur svipaða sögu að segja: - Mér finnst að orðið hafi ákveðin hug- arfarsbreyting hjá fólki á síðustu mánuð- um. Það sýnir meiri fyrirhyggju. Gott dæmi um breytinguna er sú staðreynd að áður spurði fólk nánast ekki um vexti á lánum. Nú spyr fólk meira um þetta. Mjög mikilvægt er að fólk sé tilbúið að setjast niður og athuga í hvað launin fara og leggja spilin á borðið, til dæmis þegar greiðslugeta er könnuð. Eg held að lækk- un verðbólgu og aukinn stöðugleiki í samfélaginu hafi ráðið miklu um að fólk gefur okkur nú betri upplýsingar um fjár- mál sín og gerir raunhæfari áætlanir. Fyr- irhyggja og ráðdeild þurfa að vera í fyrir- rúmi í fjármálum heimilanna og verða það vonandi, segir Ingveldur við Neyt- endablaðið. lslensk heimili skulda tœplega miljón á hvert mannsbarn. Skuldirnar hafa aukist gríðarlega á undanförnum áratug og Ijóst er að margir eiga erfitt með að standa undirfjárskuldbindingum sínum. Nánari umfjöllun um skuldasöfnun heimilanna á næstu síðum NEYTENDABLAÐIÐ - Mai 1993 5

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.