Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 17

Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 17
ileikis hvers konar hugsjónaástæð- um, samkennd með þeim sem búa við vaxandi þrengingar og ömurlegar framtíðarhorfur. Heldur vegna eigin hags- muna, til að eiga von um / sæmilega framtíð. I ■ Hvað vinnst með minni neyslu? Ef að er gáð vinnst margt með því að draga sem mest úr neyslu sinni. Þá duga minni tekjur og ekki þarf að eyða eins miklum tíma á vinnu- markaði. Þar vinna flestir undir annarra stjórn og afar margir eru í einhæfum störf- um sem gefa takmarkaða samskipta- og þroskakosti. Utan vinnumarkaðarins notum við hins vegar tímann eftir eigin höfði. Það hlýtur að vera keppikefli flestra að fá meiri tíma til eigin nota, tíma til samskipta við þá sem þeir kæra sig einkum um. Við vilj- um gjarnan fá meiri tíma til starfa sem við höfum ánægju af, kjósum sjálf og ráðum sjálf. Tíma til sjálfsnáms, íþróttaiðkana og annarrar tómstundaiðju. Minni neyslu fylgir einnig margs konar samfélagslegur ávinningur. Tími, sem áður var eytt á vinnumarkaði, í umferðinni og í verslunum, getur nýst til þarfari verka. Foreldrar geta nýtt hann til að sinna fyrrverandi lyklabörn- um og þar með styrkist upp- ■ eldi þeirra sem landið erfa og hæfni þeirra til að takast á við lífsvanda sinn. Ef annað for- eldrið stundar vinnu heima við í stað þess að sækja leiði- gjarna láglaunavinnu á vinnu- markaði dregur úr bílaumferð og því fylgir orkusparnaður, minni mengun og minni slysahætta. Sé dregið úr markaðsstúss- inu getur alþýðlegt menning- arstarf fengið aukið svigrúm; hvort sem það felst í handa- vinnu, garðrækt eða sjálfs- rækt; kórsöng, leshring eða öðru sem fólk gerir í félagi. Er hcegt að spara tíma með því að eiga og reka bíl? Nei, svarar greina rhöfundur. Hins vegar gœtu margir bœtt tveimur mánuðum við sumar- fríið sitt og keypt ut- anlandsferð að auki fyrir þaðfé sem spar- ast við að leggja bíln- um. Verður þetta ekki einhverjum dœmi um að unnt sé að lifa betra lífi með því að hafa minna umleikis? ■ Atvinnukostnaður Fleira veldur því að tímabært er orðið að hugsa sinn gang. Það sæmir ekki að halda áfram að krefjast þjónustu af því opinbera án þess að greiða hana. Það er siðlaust að skilja um tíunda hluta ríkisútgjald- anna eftir ógreiddan og ætla eftirkomendum okkar að glíma við skuldimar sem safnast upp með því að hafa um 10 miljarða halla á ríkis- sjóði á ári. Raunar er þegar farið að greiða svipaða upp- hæð í vexti af lánunum sem hvfla á ríkissjóði svo engra gjafa er að vænta úr þeirri átt til að létta þjóðinni lífið. Þvert á móti er komið að skulda- skilum. Erfið staða rfleissjóðs veld- ur því rneðal annars að ríkis- stjómin, sem hefur þann meg- in metnað að lækka skatta, hefur neyðst til að hækka þá. Hækkun beinna staðgreiddra skatta á launþegum um síð- ustu áramót upp í 41,37 pró- sent af launum ofan skattleys- ismarka þrengir auðvitað neyslusvigrúmið. Slíkur skatt- ur hlýtur að vekja efasemdir um hvort það borgi sig að eyða tímanum á vinnumark- aði eftir að búið er að vinna fyrir kaupi að skattleysis- mörkum. Sé kostnaður við að komast í vinnu þar og annar kostnaðar af að stunda hana tekinn með í dæmið má ætla að ekki verði eftir nema ein króna af hverjunt tveimur sem maður fær í laun umfram rúmlega 57 þúsund á mánuði. Þetta þýðir að sá sem ætlar að kaupa eitthvað fyrir það kaup verður að vinna tvöfalt lengri tíma en ella til að eiga fyrir því sem kaupa skal. Til þess að geta keypt fyrir 20 þúsund krónur verður að vinna fyrir 40 þúsundum. Getur það talist hagkvæm tímanotkun? ■ Einkabíllinn Sé manni ekki sama í hvað tíminn fer skiptir miklu að skoða hvað hangir á spýtunni þegar tekjurnar eru notaðar. Mörgum þykir mikið að borga 40 prósent í skatt af peningum sem þeir vinna sér inn en hafa ekki hugmynd um að þeir eru að borga 70 prósent til rfkisins þegar keypt er bensín. Margir átta sig að líkindum ekki á því að núorðið er rekst- ur einkabfls orðinn næstum jafn gildur liður í útgjöldum vísitölufjölskyldunnar og matur og drykkur. Það segir nýjasta neyslukönnun Hagstofunnar. Og útreikning- ar Félags íslenskra bifreiða- eigenda sýna að það kostar meira en 400 þúsund krónur á ári að reka þriggja ára meðal- bfl sem ekið er 15 þúsund kíló- metra, séu afskriftir og fjár- magnskostnaður höfð með í dæminu eins og vera ber. Því er í raun ekki hægt að spara tíma með því að reka bfl. „Það er orðið tímabært að endurskoða vænt- ingar sínar og kröfur. Ekki bara af einhvers konar hugsjónaástæðum, samkennd með þeim sem búa við vaxandi þrengingar og ömurlegar framtíðarhorfur. Heldur vegna eigin hagsmuna, til að eiga von um sæmilega framtíð.“ NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993 17

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.