Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 12

Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 12
Skilareglur Fara hikandi að dæmi Hagkaupa Verslanir sem eiga aðild að Félagi sérvöruversl- ana innan Kaupmannasamtakanna hafa komið sér saman um reglur um skil á ógölluðum vörum. Reglurnar ganga þó ekki jafn langt og þær sem Hagkaup hafa starfað eftir um skeið. Magnús E. Finnsson, fram- kvæmdastjóri Kaupmanna- samtakanna, segir í samtali við Neytendablaðið að hér sé um frjálsar vinnureglur að ræða og að sjónarmið kaup- manna hafi verið mjög mis- jöfn. - Einhverjir hafa þegar til- einkað sér þessar reglur og það er til góðs að mínu mati. Eg er talsmaður þess að menn reyni að leysa mál í samræmi við þessar reglur. Eg geri ráð fyrir að þeir sem hyggjast fara eftir þessum reglum setji upp áberandi til- kynningu um það í verslun- inni, svo fólk geti kynnt sér reglurnar áður en kaup eru gerð, segir Magnús. í nóvember síðast liðnum tóku Hagkaup í notkun skrif- legar skilareglur sem kynntar eru viðskiptavinum áður en viðskiptin fara fram. Aður voru reglur um skil á ógöll- uðum vörum mjög á reiki, enda háðar geðþótta kaup- manna. Um skil á gölluðum vörum gilda hins vegar ákvæði kaupalaga. ■ Inneignarnótur Eins og kom fram í Neyt- endablaðiriu í október fögn- uðu Neytendasamtökin til- komu reglnanna, enda fengu samtökin þær til umsagnar. Jóhannes Gunnarsson, for- maður NS, kvaðst vona að aðrar verslanir færu að for- dæmi Hagkaupa. 12 Ljóst er að reglur Félags sérvöruverslana eru byggðai á reglum Hagkaupa en þær ganga ekki eins langt. Þanni endurgreiða Hagkaup and- virði þeirrar vöru sem skilað er en Félag sérvöruverslana vill halda sig við inneign- arnótur. Innan félagsins eru einkum gjafavöruverslanir, skóbúðir, fataverslanir og snyrtivöruverslanir en gert er ráð fyrir að reglurnar muni einnig gilda um aðra. Regl- urnar eru sem hér segir: ■ Ógallaðar vörur „Vilji viðskiptavinur skila ógölluðum vörum sem hann hefur keypt í verslun þá gilda eftirfarandi reglur: a. Fatnaður og aðrar sér- vörur Að því gefnu að um ónotaða og óskemmda vöru sé að ræða þá má viðskipta- vinur skila vörunni og fá inn- eignarnólu, enda framvísar hann kassakvittun til stað- festingar á kaupunum. Skil verða að fara fram innan 30 daga. Ef viðskiptavinur getur ekki lagt fram kassakvittun, en viðkomandi hlutur er greinilega keyptur í viðkom- andi verslun og ennþá til sölu í versluninni, þá getur versl- unarstjóri eða staðgengill hans gefið út inneignarnótu á nafn viðskiptavinarins gegn framvísun skilríkis með mynd. Vörum sem seldar hafa verið á útsölu eða á Þjónustuhorn tímabundnum tilboðum er eingöngu hægt að skipta meðan á útsölu eða tíma- bundnu tilboði stendur, gegn framvísun kassakvittunar. Inneignarnótu verður að nýta að fullu til vörukaupa. Þó má muna allt að 500 krón- um á upphæð inneignarnót- unnar og keyptum vörum og verður sá mismunur greiddur út í peningum við kassann. Sé um bók að ræða verður eingöngu unnt að fá bækur fyrir inneignarnótuna. Vilji viðskiptavinur skila vöru sem í upphafi var greidd með inneignarnótu fær hann í staðinn aðra inneignarnótu, en ekki peninga. Ekki er unnt að skila nær- fötum og undirfötum. Slíkt er þó heimilt í undantekningar- tilvikum, enda bersýnilegt að varan sé ónotuð. b. Matvörur Af öryggisástæðum er ekki unnt að skila matvörum og hreinlætisvörum. ■ Gallaðar vörur Vilji viðskiptavinur skila gölluðum vörum, hvort sem um er að ræða matvörur, Hagkaup riðu á vaðið með skýrum, skriflegum reglum um skil á ógölluðum vörum. Nú eru aðrir að fylgja í kjöl- farið en hafa ekki treyst sér til að ganga jafn langt og Hagkaup. hreinlætisvörur eða aðrar vörur og ljóst er að um galla er að ræða en ekki skemmd af völdum viðskiptavinarins eða eðlilegt slit, þá afhendir viðkomandi verslun sömu vöru óskemmda eða peninga, enda leggi viðskiptavinurinn fram kassakvittun til staðfest- ingar á kaupunum. Tekið skal fram að sömu reglur gilda ef varan er greidd með greiðslukorti eða peningum.” Neytendur eru hvattir til þess að spyrjast fyrir um það í verslunum hvort þessar reglur gildi þar eða einhverj- ar aðrar. Eins og sjá má í reglunum er mikilvægt að taka nótu eða kassakvittun til þess að geta fært sönnur á að varan hafi verið keypt í við- komandi verslun. NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.