Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 20

Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 20
Heimilið í réttu Ijósi Með öryggið að leiðarljósi Aríöandi er að við leiðum hugann að því hvaða hættur geta stafað af lömpum á heimilinu eða vinnustaðnum og reynum að draga úr hættu á tjóni og slysum. Hér verður fjallað um hina tæknilegu hlið málsins, en ekki má gleyma því öryggi sem fólgið er í því að hafa rétta lýsingu á réttum stað. Það bíður nánari umfjöllunar. Lampar geta orðið hættulegir af tveimur ástæðum aðallega: Avið það að snerta leiðandi hluta bilaðs lampa (snerti- hætta) geta menn orðið fyrir raflosti Ahitamyndun í lampa eða frá honum getur valdið bruna- hættu. Vandaður lampi, sem not- Varasamir lampar ÆT Astæða er til að vara sér- staklega við svokölluð- um klemmulömpum. Það eru lampar sem ætlaðir eru til að klemma á hillur, rúm- gafla eða aðra staði. Þeir geta losnað, til dæmis ef sofandi maður eða barn slær til þeirra, fallið niður í rúm- ið og kveikt í sængurfötum. Slíkt atvik hefur orðið hér á landi. Móðir heyrði þá þeg- ar sonur hennar fór á bað- herbergið um nótt. Skömmu síðar ákvað hún að huga að drengnum og uppgötvaði þá sér til skelfíngar að klemmulampi við rúm hans hafði fallið í rúmdýnuna. Mikill reykur var í herberg- inu. Mikla mildi má telja að ekki fór verr. Einnig ber að varast að kaupa lampa í brúðulíki eða aðra lampa sem freista til leiks. Þess háttar lampar eru bannaðir hér á landi, enda hættan augljós ef bam er með þannig leikfang í hönd- unum eða hjá sér uppi í rúmi. aður er á eðlilegan hátt, eins og framleiðandi hans mælir fyrir um, er sjaldan hættuleg- ur. Því má hins vegar ekki gleyma að bilun getur orðið í öllum lömpum eins og öðrum rafbúnaði og raftækjum (raf- föngum). Misnotkun lampa, notkun við óeðlilegar aðstæð- ur, rangur frágangur og rangar gerðir eða stærðir af pemm geta fljótlega leitt til hættu- ástands. Lampar gegna margvíslegu hlutverki og eru því fjarska- lega breytilegir í útliti, mis- munandi í útfærslu og nota ýmsar gerðir ljósgjafa. Efniviður lampa er ekki mælikvarði á það hve öruggur lampinn er, heldur miklu fremur hvemig hann er gerður af framleiðandans hálfu. Nauðsynlegt er að kaupand- inn velji lampa sem hæfir því hlutverki sem honum er ætl- að, að frágangur sé réttur og að fylgt sé ákveðnum grund- vallarreglum við notkun lampans. ■ Jarðtenging Staðlar og reglugerðir gera ráð fyrir að lampar séu ýmist jarðtengdir, búnir tvöfaldri einangrun eða notuð við þá smáspenna (t.d. 6,12 eða 24 volt,V). Þegar lampar eru að miklu eða mestu leyti úr málmi eða málmhlutar lampans geta orð- ið spennuhafa við bilun, á að jarðtengja þá. Jarðtenging tryggir að verði bilun í lamp- anum leiði jarðtengitaugin bilunarstrauminn til jarðar. Manni, sem kemst í snertingu við bilaðan lampa sem er jarðtengdur, er ekki hætta búin. Sé lekastraumsrofi í við- komandi raflögn skynjar hann bilunina um leið og hún verð- ur ogTýfur straumrásina að lampanum þegar í stað. Jarðtenging lampa og ann- arra raffanga er ávallt gerð með raftaug með einangrun í gulum og grænum lit. Varast skal að nota þannig merkta raftaug til annarra nota en jarðtengingar. Það gæti orðið lífshættulegt, því að gert er ráð fyrir að taug með þessum litum gegni aðeins einu hlut- verki og sé spennulaus. Hafa þarf í huga að jarðtenginguna má ekki slíta í sundur neins staðar í raflögninni. Jarðtaugar eru ekki alltaf í raflögnum húsa, einkum gam- alla, 25 ára og eldri. Þar sem svo er ástatt, er full ástæða til að hugsa um að láta endur- nýja og endurbæta raflögnina, meðal annars með leka- straumsliðum. Einnig ber að gæta þess að jarðtengitaug sé í millitaugum (,,framlengingarsnúrum“) eða í aðtaugum fjöltengla sem notaðir eru til að tengja lampann við tengil í vegg ef hann er of langt í burtu. ■ Tvöföld einangrun Tvöföld einangrun lampa og annarra raffanga er gefin til kynna með sérstöku merki, femingi innan í öðrum fern- ingi. Tvöföld einangrun er ákveðin aðgerð framleiðanda við smíði lampans, sem hindr- ar að bilunarstraumur komist í málmhluta hans, verði bilun í lampanum. Bilunarstaðurinn er með þessu móti einangrað- ur og bilunin getur ekki breiðst út eða valdið notand- anum skaða. Margir telja að tvöföld einangrun sé besta lausnin til að koma í veg fyrir snertihættu. Víst er að tvöfalt einangr- aðir lampar koma að góðu gagni þar sem jarðtengdir tenglar eru ekki í húsum. ■ Smáspenna Þriðja leiðin til að koma í veg fyrir snertihættu er að nota rafspennu sem er nógu lág til að valda ekki slysum þó að maður komist í snertingu við hana. Spenna í raflögnum húsa er um 230 volt. Hún er hættuleg við snertingu. Spenna sem er undir 50 volt- um er hins vegar talin hættu- laus við snertingu. Nú vill svo til að lampar með svonefndum halógenper- um nota oft spennu undir 50 voltum, til dæmis 6, 12 eða 24 volt. Sú spenna er fengin með því að nota spennubreyti, sem venjulega er hluti lampans. Lampinn er tengdur við 230 volta rafkerfi hússins, en ljósgjafinn fær ekki hærri spennu en til dæmis 12 volt. Á það skal þó minnt að 230 volta spenna er á þeim hlutum lampans sem liggja milli tengils í vegg eða tengi- staðar í tengidós og viðkom- andi spennubreytis. Rofar og aðtaugar eru því oftast með 230 volta spennu. Ef lampi er að mestu leyti úr einangrandi efni, til dæmis úr tré, plasti, gleri eða pappír, þarf ekki að jarðtengja hann. Á hinn bóginn verður að jarð- tengja lampa sem eru að hluta til eða mestöllu leyti úr málmi, eins og áður er sagt. Margir gamlir lampar úr málmi eru án jarðtengingar og ættu eigendur þeirra að hugleiða hvort ekki sé ástæða til að laga þá að nútímakröf- um um öryggi eða taka þá úr notkun ella. Bannað er að smíða eða flytja til landsins málmlampa sem ekki eru gerðir fyrir jarð- 20 NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.