Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 15
Banka
logo
Sparibanki íslands
Maestro
RAFRÆN VIDSKIPTI • ELECTRONIC USE ONLY
► KAUPKORT ►HRAÐBANKAKORT ►TÉKKAÁBYRGÐARKORT
J
Sér- merki GUÐMUNDUR G. GUÐMUNDSSON Kennitala 123456-1789 Tékkaábyrgöarnúmer 1234-567890
UNDIRSKRIFT / AUTHORI2ED SIGNATURE
Kortiö má sá einn nota sem þaö er gefiö út á, i samrœmi viö
gildandi reglur. Finnandi er beöinn aö skila þvl til næsta útibús.
If the card is found please return itto the nearest bank or Gildirút ^0/Q0
EUROCARDICELANDTel. 354-1 -685490 Fax: 354-1 -6BS554 Expires end of l
Litmynd
tu færslugjalda
-Ég tel til dæmis að líkur
séu á að tekin verði upp
færslugjöld af tékkum, debet-
kortum og kreditkortum. Hins
vegar tel ég líklegt að verslan-
ir og þjónustuaðilar muni taka
á sig hluta kostnaðar vegna
debetkorta, enda hafa þeir hag
af tilkomu kortanna, segir
Halldór.
Magnús E. Finnsson,
framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtakanna, segist ekki
sannfærður um hag kaup-
manna af notkun debetkorta
og segir kaupmenn ekki
reiðubúna að taka á sig kostn-
að vegna þeirra.
- Við lítum ekki svo á að
það sé banka og kortafyrir-
tækja að ákveða þetta, heldur
hljóti menn að þurfa að semja
um hluti sem þessa. Upphaf-
lega var okkur tilkynnt að lík-
lega myndi kostnaður lenda á
okkur sem nemur um helm-
ingi þess kostnaðar sem við
þurfum að greiða vegna notk-
unar kreditkorta. Við sögðum
strax að það kæmi ekki til
greina. Við vitum ekki hver
niðurstaðan verður, en ef við
eigum að greiða kostnað
vegna debetkorta mun það
leiða til beinnar hækkunar
vöruverðs, segir Magnús.
Hann segir kaupmenn ekki
hafa sannfærst um þann hag
sem ætlað er að þeir muni
hafa af debetkortum.
- Við höfum ekki tryggingu
fyrir því að tékkar hverfi úr
notkun. Við höfum heldur
ekki tryggingu gegn misnotk-
un debetkorta. Spurningunni
um öryggi hefur ekki verið
svarað, segir Magnús.
Neytendasamtökin og
Kaupmannasamtökin hafa átt
samleið í umræðunni um
hverjum beri að greiða kostn-
að vegna notkunar greiðslu-
korta.
- Stefna okkar hefur verið
sú að verðleggja eigi þjónustu
í samræmi við kostnað og að
þeir sem noti þjónustuna eigi
að greiða fyrir hana. Við höf-
um til dæmis gagnrýnt mjög
þá staðreynd að kostnaði
vegna notkunar kreditkorta sé
veitt út í almennt verðlag og
lendi þar með jafnt á þeim
sem nota kort og hinum, sem
ekki nota þau, segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna við Neyt-
endablaðið.
Fe rðaskr ifstof u r
auglýsa réttverð!
Flugvallarskattar eru innifaldir. Flugvallar-
skattur, innritunargjald og forfallagjald
er innifalið í verði.
Þessi langþráðu lykilorð
fóru að sjást í auglýsingum
sumra ferðaskrifstofa í
blöðunum í apríl. I mörg ár
hafa íslenskar ferðaskrif-
stofur viðhaft þá blekkingu
í auglýsingum sínum að
undanskilja frá verðinu
ýmis gjöld og skatta sem
neytendum er gert að borga
en nú hafa ferðaskrifstofur
innan Félags íslenskra
ferðaskrifstofa ákveðið að
geta um raunverulegt verð í
auglýsingum sínum. Enn
má þó sjá auglýsingar þar
sem ferðaskrifstofur hafa
gamla háttinn á og láta hjá
líða að geta um verulegan
hluta verðsins.
- Félagsfundur sam-
þykkti í febrúar að hér eftir
skuli öll gjöld innifalin í því
verði sem kemur fram í
auglýsingum. Einnig liggur
fyrir samkomulag við Flug-
leiðir um að hafa sama hátt-
inn á. I verðskrám verður
gjaldanna þó eftir sem áður
getið aukalega, segir Karl
Sigurhjartarson, fram-
kvæmdastjóri Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa
(FÍF), í samtali við Neyt-
endablaðið um þessa ný-
breytni ferðaskrifstofanna.
Neytendasamtökin hafa
um árabil gagnrýnt þann sið
ferðaskrifstofa að auglýsa
ekki rétt verð. Innan FIF eru
13 ferðaskrifstofur en
nokkrar eru utan félagsins.
Heimsferðir eru þeirra á
meðal en Neytendasamtök-
in sáu sig nýlega knúin til
að skrifa Samkeppnisstofn-
un vegna auglýsingar frá
þeirri ferðaskrifstofu þar eð
veittar voru rangar upplýs-
ingar um verð. Meðal ann-
ars var ýmissa gjalda ekki
getið. í framhaldi af því
lagði Samkeppnisstofnun
fyrir Heimsferðir að birta
viðkomandi auglýsingu
ekki aftur.
Karl Sigurhjartarson seg-
ir mikilvægt að samstaða
haldist meðal ferðaskrifstof-
anna um hinn nýja sið.
- Ég geri mér vonir um
að þessi samþykkt sé til
frambúðar. En byrji ein-
hverjir að hlaupa út undan
sér er hætt við að samstaðan
hrynji fljótt, segir Karl við
Neytendablaðið.
Ferðaskrifslofur innan FÍF og Flugleiðir hafa ákveðið að
geta um rétt verð í auglýsingum sínum hér eftir. Aður var
sá siður landlœgur að undanskilja verulegan hluta verðs-
ins. Mynd: Garðar.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993
15