Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 10

Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 10
Skuldum vafin Norðmenn stokka spilin upp á nýtt Stór hluti norskra heimila lifði hátt á uppgangs- tímum 9. áratugarins, safnaði miklum skuldum og á við svipaðan vanda að glíma og íslensk heim- ili. Munurinn er þó sá að Norðmenn hafa brugðist við vandanum með ýmsum hætti. Per Anders Stal- heim, forstjóri norska neytendaráðsins, segir að nú verði norskir neytendur að stokka spilin upp á nýtt. Stalheim lýsti ástandinu heima fyrir á fundi Neytenda- samtakanna um fjárhagsvanda heimilanna: „Efnahagur Norðmanna Neytendablaðið ráðleggur: AFærið heimilisbókhald - það veitir ómetanlega yfir- sýn. ASetjið ykkur raunhæf mark- mið, byggð á raunveruleg- um tekjum og útgjöldum. ATakið aldrei lán án þess að hafa nákvæmt mat á greiðslugetu. Miðið greiðslugetu við dagvinnu- laun og vanreiknið hana fremur en hitt. Leitið að- stoðar. AKynnið ykkur lánskjör - þau eru misjöfn. AMetið vandlega hvort við- komandi hlutur réttlætir lántöku - lán eru dýr! AReiknið út meðal greiðslu- byrði af lánum og jafnið greiðslubyrðina með því að leggja þá upphæð til hliðar mánaðarlega. ALeggið fyrir vegna endur- nýjunar heimilistækja og viðhalds húseigna - þannig má komast hjá fjármagns- kostnaði. AHugsið ykkur vandlega um áður en þið ábyrgist lán annarra. AFjármálin eru á ábyrgð allr- ar fjölskyldunnar - ræðið málin. ALeitið aðstoðar í tíma ef fjármálin stefna í óefni - því fyrr, því auðveldara er að bregðast við vandanum. breyttist mikið á 9. áratugn- um. Hin gömlu stjórntæki virkuðu ekki lengur. Mark- aðsöflin tóku við stjórn. Hús- næðiskerfið var leyst úr viðj- um. Því næst var frjálsræði á fjármagnsmarkaði aukið. Þensla jókst, verðlag og vextir hækkuðu. Síðan byrjaði að halla undan fæti. Verð á olíu féll. Það hefur mikil áhrif á norskan efnahag. Breytingar voru gerðar á skattakerfinu og vaxtabætur lækkaðar. Laun hækkuðu lítið. Raunvextir hækkuðu verulega. Skattar sveitarfélaga hækkuðu. At- vinnuleysi jókst hratt og náði óvenjulega háu stigi á norsk- an mælikvarða. Verðlag hefur verið mjög stöðugt á undan- förnum tveimur árum. Skatta- reglum var breytt enn á ný árið 1992. Efnahagsstefnan á 9. áratugnum hefur gjörbreytt leikreglunum. Aður „borgaði” sig að taka lán. Nú borgar sig að spara. Heimilin verða að stokka spilin upp á nýtt.” Allt þetta ættu íslendingar að kannast við. Stalheim dró saman þrjár meginorsakir fyrir vanda heimilanna: ▲ Breytingar í efna- hagsmálum. A Tekjumissir (atvinnuleysi, skilnaður, veikindi). ▲ Skipulagsleysi og skortur á yfirsýn í fjármálum heimil- anna. Hann gerði jafnframt grein fyrir þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til og Neytendasamtökin telja að Is- PerAnders Stalheim, for- stjóri norska neytendaráðs- ins, var gestur á opnum fundi Neytendasamtakanna um fjárhagsvanda heimilanna, sem haldinn var í tilefni 15. mars og 40 ára afmœlis Neyt- endasamtakanna. lendingar geti dregið mikil- vægan lærdóm af: ▲ Ráðgjöf og samningar við lánardrottna. ▲ Lög um greiðsluaðlögun. ▲ Endurskipulagning húsnæðislána. ▲ Fyrirbyggjandi ráðgjöf og upplýsingar til að hindra að fólk lendi í vandræðum. Ráðgjöf og námskeið í boði Víða er hægt að leita eftir aðstoð og ráðgjöf í sam- bandi við fjármál heimilisins, auk þess sem mjög hef- ur færst í vöxt að boðið sé upp á námskeið fyrir þá sem vilja auka hagkvæmni og öryggi í rekstri heimilisins. Neyt- endasamtökin hvetja félagsmenn sína eindregið til þess að nýta sér þjónustu af þessu tagi, telji þeir sig hafa þörf fyrir hana. Neytendasamtökin hafa um skeið boðið upp á námskeið um hagsýni í heimilisrekstri, þar sem meðal annars er stuðst við Heimilisbókhald samtakanna. Námskeiðið stendur eina kvöldstund og kostar 1.000 krónur fyrir félagsmenn, 2.000 krónur fyr- ir aðra. Innifalið er Heimilis- bókhald og önnur gögn. Leið- beinandi er Sólrún Halldórs- dóttir. Tilkynna verður þátt- töku í síma 625000. Neytendasamtökin hafa einnig boðið upp á fjárhags- ráðgjöf fyrir félagsmenn sína. Nokkrir tugir heimila hafa þegar notið slíkrar ráðgjafar. Verðbréfamarkaður Is- landsbanka (VÍB) heldur tveggja kvölda námskeið. Námskeiðsgjald er 6.900 krónur. Innifalið í því eru þau gögn sem til þarf, meðal ann- ars Fjármálahandbók VIB. Nánari upplýsingar hjá VÍB. Bankarnir bjóða allir við- skiptavinum sínum upp á ráð- gjöf og leiðbeiningar og á slík þjónusta að vera fyrir hendi í öllum útibúum. Reglan er sú að neytendur greiði ekki fyrir slíka þjónustu í sínum við- skiptabanka. Ráðgjafar bank- anna geta veitt almennar leið- beiningar og ráð, reiknað út greiðslugetu vegna lántöku, veitt upplýsingar um þjónustu bankans, lánskjör og fleira. Þeir geta einnig leiðbeint fólki í erfiðleikum um hvernig það geti leitað lausna á vanda sfn- um. Einnig er nokkuð um að bankarnir hafi gefið út rit sem geta komið að gagni við rekst- ur heimilisins. Lesendum er bent á að leita nánari upplýs- inga um þjónustu síns banka. 10 NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.