Neytendablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 22
Heimilið í réttu Ijósi
í
Húseigendur sem hafa í hyggju að setja upp lýs-
ingu í garðinum hjá sér þurfa að huga að ýmsu
í því samhengi og ættu að leita til rafverktaka um
val lampa og frágang þeirra:
1. Mikilvægt er að lampar
séu ýmist jarðtengdir,
með tvöfaldri einangrun
eða smáspennu.
2. Lampar sem ætlast er til
að stungið sé niður í jarð-
veginn með rafleiðslur
ofanjarðar eru ekki bann-
aðir, en teljast óheppilegir
og bjóða heim hættum,
nema á þeim sé smá-
spenna, 6, 12 eða 24 volt.
3. Öruggast er að setja upp
fasta lampa. Rafstrengur
er þá grafinn í jörðu sam-
kvæmt reglum um lagn-
ingu jarðstrengja og
frágang þeirra.
4. Við staðarval lampa er
hyggilegt að taka mið af
helstu vind- og veðurátt-
um. Lampi á bersvæði
þarf að vera mun betur
búinn gagnvart vatnsveðri
en sá sem hefur skjól af
vegg, girðingu eða trjám.
5. Lampar til útinotkunar eru
mismunandi þéttir og
merktir samkvæmt því.
Lampar úr málmi standast
illa sjávarseltu. Sitthvað
fleira þarf að athuga.
Veljið því lampa með
tilliti til aðstæðna.
Mikilvœgt er að velja úti-
lampa með tilliti til að-
stœðna.
perunnar geta auðveldlega kveikt í, til
dæmis eldfimum vökvum.
Svipað má segja um jólaljósaseríur
sem menn setja á svalahandrið eða undir
þakskegg um jólaleytið. Ef glerkúla peru
brotnar, standa spennuhafa vírendar út úr
sökkli perunnar. Börn og fullorðnir geta
auðveldlega snert vírana af svölum þar
sem þau eru innan seilingar. Af því gæti
hlotist banaslys.
Takið lampa ávallt úr sambandi eða
slökkvið á þeim áður en skipt er um
peru. Ef glerkúla glóperunnar er brotin,
notið ávallt einangraða töng eða þurra,
þykka tusku til að ná brotnu perunni úr.
Annars er næstum öruggt að þið skerist
illa.
Hyljið aldrei lampa eða perur til að
deyfa ljósið, til dæmis í svefnherbergjum
eða á göngum. Það getur valdið ofhitnun,
skemmdum og jafnvel íkveikju.
■ Halógenperur
Halógenperur hafa þann ókost að þær
NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU
hitna afar mikið. Varast ber að snerta
glerhluta halógenperu með fingrunum
eða láta hana koma við hörund, hvort
sem hún er heit eða köld. Gífurlegur hiti
perunnar bræðir fituhúð af hörundinu inn
í glerið og það getur sprungið. Þetta á
lfka við halógenbflperur, sem eru orðnar
mjög algengar.
Vegna hins feiknalega hita á yfirborði
halógenperu stafar af henni mikil bruna-
hætta, ekki einungis í nálægð brennan-
legra efna, heldur líka ef peran splundr-
ast. Brotin geta þeyst um allt og kveikt í
teppum, húsgögnum og öðru slíku brenn-
anlegu eða brennt og skilið eftir brunaför
á gólfdúki, parketti eða öðru tré. Eftir
því sem peran er stærri í W, því meiri
hætta stafar af henni. Þess vegna er skylt
að hafa hlíf úr kvarsgleri framan við stór-
ar halógenperur. Til viðmiðunar má segja
að svona kvarsglerhlíf verði að vera
framan við allar pípulaga halógenperur,
sem hafa straumsnertur á báðum endum.
Stranglega er varað við því að taka
þetta hlífðargler í burtu eða kaupa lampa
erlendis sem ekki hafa svona hlífðargler.
Raffangaprófun Rafmagnseftirlits ríkis-
ins bannaði innflutning þess háttar lampa
áður en starfsemi hennar var lögð niður.
■ Flöktandi flúrpípur
Við lok endingartíma flúrpípna tekur
ljósið að flökta. Það kviknar á perunni,
en slokknar aftur. Stundum glóir pípan
aðeins til endanna. Þegar svo er komið,
þarf að skipta strax um pípu. Ef ekki eru
tök á því, slökkvið þá á Jampanum eða
snúið pípunni, svo að flöktið hætti.
Flöktandi flúrpípa getur skemmt straum-
festuna og ræsinn, auk þess sem straum-
festan getur ofhitnað áður.
Til álita kemur hvort ekki eigi að hafa
þá reglu að skipta um ræsi um leið og
skipt er um pípu. Ræsar eru ódýrir og
lélegur ræsir getur stytt endingartíma
pípunnar.
Landssamband lögreglumanna,
Grettisgötu 89
Lúxus hnífar - Verslun Björns
Jóhannessonar, Laugavegi 85
Ólafur Þorsteinsson & Co,
Vatnagörðum 4
Pústþjónusta BJB,
Helluhrauni 6 & Sigtúni 3
Rafiðnaðarsambandið,
Háaleitisbraut 68
Raflagnavinnustofa Sigurðar
Ingvarssonar,
Heiðartúni 2, Garði
Skóhöllin hf.,
Reykjavíkurvegi 50
Skóverslunin Skæði,
Kringlunni 8-12
Sparisjóðurinn í Keflavík,
Tjarnargötu 12-14, Keflavík
Starfsmannafélag
A ustur-Skaftafellssýslu,
Silfurbraut 33, Höfn
Starfsmannafélag
Dala- og Snæfellssýslu,
Nestúni 3, Stykkishólmi
Starfsmannafélag Dalvíkur-
bæjar, Hólavegi 3, Dalvík
Starfsmannafélag Garðabæjar,
Sveinatungu v/Vífilstaðaveg
Starfsmannafélag Kópavogs,
Digranesvegi 12
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar, Grettisgötu 89
Starfsmannafélag rikisstofnana,
Grettisgötu 89
Starfsmannafélag
Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1
Starfsmannafélag
Sauðárkróksbæjar,
Grundarstíg 30, Sauðárkróki
Starfsmannafélag
Sjónvarpsins, Laugavegi 176
Varðan hf., Grettisgötu 2
Verkakvennafélagið Framsókn,
Skipholti 50a
Verkakvennafélagið Framtíðin,
Strandgötu 11
Verkalýðsfélag
Austur-Húnvetninga,
Þverbraut 1, Blönduósi
Verkalýðsfélag Hólmavíkur,
Hafnarbraut 33, Hólmavík
Verkalýðsfélag Patreksfjarðar,
Bjarkargötu 7, Patreksfirði
Verkalýðsfélagið Ársæll,
Kárastíg 10, Hofsósi
22
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993