Neytendablaðið - 01.05.1993, Page 11
Neytendasamtökin
Milljón í mínus í vöggugjöf
að dynja á okkur sífelld vandamál í
dagblöðunum og fréttatímunum: rekstr-
argmndvöllur atvinnuveganna, fjárlagahall-
inn, ofijárfestingin í sjávarútvegi, hagræð-
ingarvandi í landbúnaði, ástandið í byggð-
unum...
Einhvem veginn er svo lítill munur á
þeim ábúðarmiklu bústólpum sem barma
sér yfir þessum vandamálum að manni
finnst stundum að þetta hljóti allt að vera
sama vandamálið. En það virðist skipta
miklu hvað vandamálið heitir. Það vanda-
mál sem heitir hallæri í atvinnulífi var til
dæmis reynt að leysa fyrir skömmu með því
að láta almenning borga skatt fyrir fyrirtæk-
in. Og það vandamál sem heitir óhagstæð
gengisþróun í sjávarútvegi var nokkru fyrr
reynt að leysa með því að tæma sjóð sem í
var lagt á góðærisárum í staðinn fyrir að
hækka kaup.
Sá vandi sem nú er kynntur í Neytenda-
blaðinu um skuldasöfnun heimilanna er
ekki splunkunýr, þótt hann hafi ágerst veru-
lega síðustu ár. Hann er heldur engan veg-
inn ótengdur öðrum samfélagsmeinum.
Hann er hinsvegar óvenjulegur að því leyti
að það er stutt síðan hann fékk nafn, - og
enn eru stjómmálamenn og almannaspek-
ingar ekki famir að finna lausnir. Kannski
vegna þess að það ýta ekki á eftir neinir
áhyggjufullir stjórar og fræðingar, og engir
rekendur eða veitendur til að ota að hljóð-
nemum. En þetta mál verður samt að kom-
ast á dagskrá.
Skuldastaða heimilanna á íslandi jafn-
gildir nú því að hvert mannsbarn hafi fengið
í vöggugjöf milljón í mínus. Og á okkar
tímum samdráttar og atvinnuleysis em fjöl-
margar fjölskyldur að kikna undan skuldum
sínum. Margar em hættar að sjá glætu í
myrkrinu, sumar springa í sundur.
Við þeirri stöðu sem nú er lýst frá mörg-
Mörður Árnason
um hliðum hér í blaðinu er engin töfralausn.
Enginn verðjöfnunarsjóður. Ekkert trygg-
ingagjaldsfiff. Þetta er nefnilega sjálf sam-
félagsundirstaðan, - „við sem borgum” get-
um ekki lengur borgað.
Neytendasamtökin hafa þó bent á nokkur
úrræði til frambúðar. Þau benda á fræðslu
og ráðgjöf, bæði í skólakerfinu og fyrir þá
sem nú reyna að fóta sig. Þau leggja áherslu
á að lánastofnanir teygi ekki viðskiptamenn
sína fram af hengiflugingu heldur aðstoði
þá með sameiginlegu mati á greiðslugetu og
lánsíjárþörf. Þau leggja einnig áherslu á að
stjómvöld splundri ekki í sífellu íjárhags-
áætlunum heimilanna með fyrirvaralitlum
umbyltingum í skattakerfi og húsnæðismál-
um. Þá hafa Neytendasamtökin kynnt hug-
myndir að nýjum lögum um skipulega
greiðsluaðlögun fyrir þá sem verst standa, -
ígildi þess fyrir einstaklinginn eða fjölskyld-
una sem í atvinnulífinu heitir greiðslustöðv-
un og nauðasamningar.
Þetta eru nokkur úrræði sem vísa til
framtíðar. En auðvitað er líka mikilvægt að
rýna í þá stjómmálaspeki og efnahagsstjóm
sem hefur leitt íslensk heimili í þessa raun.
Ekki síst hljóta þær staðreyndir sem
kynntar em hér í blaðinu að bjóða til íhug-
unar um þá vestrænu og íslensku hegðun
sem sífellt heimtar meira og hleður upp
skuldum. Er þessi síeyðsla og sóun í sam-
ræmi við það verðmætamat og lífssýn sem
við viljum skila til næstu kynslóða? Emm
við í raun og veru ósammála sjálfum okkur
í neyslukappinu? Kannski það sé rétt að
leggja eyrun við þegar einn af gleggstu
gagnrýnendum íslenskrar samtíðar spyr
annarsstaðar í þessu Neytendablaði hvort
ekki sé hægt að gera hvorttveggja í senn:
hafa minna umleikis - og lifa betra lífi.
Mörður Arnason íslenskufræðingur er
stjórnarmaður í NS ogformaður
ritnefiidar Neytendablaðsins.
NEYTENDAFELOGIN -1ÞINA ÞAGU
Neytendafélag
höfuðborgarsvæðisins
Skúlagötu 26, 101 Reykjavík,
opið virka daga kl. 9-16,
s. 62 5000. Formaður Jón
Magnússon.
Neytendafélag Akraness
Formaður Asdís Ragnarsdóttir,
Furugrund 17, s. 11932.
Neytendafélag Borgarfjarðar
Formaður Ragnheiður Jó-
hannsdóttir.Fálkakletti 10,
Borgarnesi, s. 71713.
Neytendafélag Grundarfjarðar
Formaður Matthildur
Guðmundsdóttir,
Grundargötu 23,
s. 86715.
Neytendafélag Stykkishólms
Formaður Hrafnhildur
Hallvarðsdóttir,
Tjarnarási 17,
s. 81290.
Neytendafélag Dalasýslu
Formaður Guðrún
Konný Pálmadóttir.Lækjar-
hvammi 9, Búðardal,
s. 41190.
Neytendafélag Isafjarðar
og nágrennis
Formaður Aðalheiður
Steinsdóttir, Tangagötu
15, 400 ísafirði, s. 94-4141.
Neytendafélag Skagafjarðar
Formaður Birna Guðjónsdóttir,
Öldustíg 4,Sauðárkróki,
s. 35254.
Neytendafélag Akureyrar
og nágrennis
Glerárgötu 20, pósthólf 825,
Akureyri. Opið kl. 9-13 virka
daga, símatími kl. 11-13,
s.11336, símbréf 11332.
Formaður Vilhjálmur I. Árnason.
Neytendafélag Húsavíkur
Formaður Pálína Hjartardóttir,
Garðarsbraut 2, s. 42082.
Neytendafélag Seyðisfjarðar
Formaður Guðný Jónsdóttir,
Suðurgötu 2, s. 21444.
Neytendafélag Norðfjarðar
Formaður Elma
Guðmundsdóttir, Mýrargötu 29,
s. 71532.
Neytendafélag Fljótsdalshéraðs
Formaður Oddrún
Sigurðardóttir, Laufási 12,
Egilsstöðum, s. 11183.
Neytendafélag
Austur-Skaftafellssýslu
Formaður Herdís Tryggvadóttir,
s. 81781.Starfsmaður Hjördís
Þóra Sigurþórsdóttir.opið kl.
13-17 virka daga, sími 81501.
Neytendafélag Suðurlands
Eyrarvegi 29, Selfossi. Opið
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
10-12, s. 22970. Formaður Val-
gerður Fried, Hjarðarholti 6,
s. 21566. Starfsmaður Halldóra
Jónsdóttir.
Neytendafélag Suðurnesja
Hafnargötu 90, pósthólf 315,
Keflavík. Opið þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13-16,
s.15234. Formaður Drífa
Sigfúsdóttir, Hamragarði 2,
Keflavík, s. 13764. Starfsmaður
Guðbjörg Ásgeirsdóttir.
Stjórn Neytenda-
samtakanna
Jóhannes Gunnarsson,
formaður
Þuríður Jónsdóttir,
varaformaður
Ingveldur Fjeldsted,
gjaldkeri
Raggý Guðjónsdóttir,
ritari
Aðalheiður Steinsdóttir
Drífa Sigfúsdóttir
Gissur Pétursson
Guðrún Jónsdóttir
Mörður Árnason
Steindór Karvelsson
Vilhjálmur I. Árnason
Þorlákur H. Helgason
Neytendasamtökin eru landssamtök neytendafélaga sem eru starfandi
víða um land. Þeim sem ekki eiga kost á þjónustu neytendafélags í sínu
héraði er bent á að leita til skrifstofu Neytendasamtakanna að Skúla-
götu 26 í Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga klukkan 9-16,
sími 62 5000.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993
11