Neytendablaðið - 01.05.1993, Qupperneq 32
Miðstöðvarryksugur eru algengar
víða etlendis. Þœr eru gœddar ýmsum
kostum umfram hinar hefðbundnu
ryksugur. Mynd: Svein Erik Dahl
/Samfoto.
Eitthvað fyrir okkur?
Ryksugur sem kalla mætti miðstöðvarryksugur
(sentralstövsugere) eða innbyggðar ryksugur eru
algengar á heimilum víða erlendis. Þær eru taldar hafa
marga kosti umfram hinar hefðbundnu ryksugur sem
algengastar eru á hérlendum heimilum. Einkum er talið
að miðstöðvarryksugur myndu henta astma- og ofnæmis-
sjúklingum. í Noregi eru ryksugur af þessu tagi mun
hagstæðari en hinar dýrustu meðal hefðbundinna
ryksuga, að sögn norska neytendablaðsins.
Miðstöðvarryksugur eru þeirrar gerðar
að hinum vélræna hluta er komið fyrir
til frambúðar í húsinu, til að mynda í
kjallara, í bílskúr eða í geymslu.
Leiðslur eru lagðar í húsið eða íbúðina,
inn í veggi eða utan á þá, þannig að ná
megi til hvers króks og kima með laus-
um börkum sem tengdir eru við kerfið.
Algengt er að inntak fyrir þá sé á
tveimur til þremur stöðum í íbúðinni.
Þetta fyrirkomulag hefur þann kost
meðal annarra að ekki þarf að draga á
eftir sér þunga ryksugu yfir þröskulda,
utan í veggi og dyrakarma.
Óhreinindin fara svo um leiðslur og
síur, en útblásturinn er leiddur út úr
húsinu. Ryksugur af þessu tagi eru
lausar við þann leiða ósið hefðbund-
inna ryksuga að þyrla upp fínu ryki og
blása frá sér óhreinu lofti. í gæðakönn-
unum hefur komið í ljós að margar
hefðbundnar ryksugur hafa þennan
galla. Þetta á ekki við innbyggðu
ryksugurnar og því eru þær taldar
heppilegar fyrir þá sem eru viðkvæmir
fyrir óhreinindum í loftinu.
í umfjöllun norska neytendablaðsins
Forbrukerrapporten (2/93) kemur fram
að nokkuð auðvelt sé að leggja
ryksugukerfi af þessu tagi í gömul hús
og ný, jafnvel svo að margir geti gert
það upp á eigin spýtur. Meðal helstu
kosta miðstöðvarryksuga eru:
AUtblásturinn er leiddur
út úr húsinu.
ALoftið verður hreinna,
sjaldnar þarf að þurrka af.
AMinni hávaði.
A Einföld og auðveld í notkun.
AMaður sleppur við að halda á og
draga á eftir sér ryksuguna. Fer
betur með húsgögn og innréttingar.
ALítið viðhald.
ALágur rekstrarkostnaður.
AMikil ending.
AMeð aukaútbúnaði má soga upp
vatn, hreinsa teppi, þvo gólf, pússa
gólf og fleira.
Ryksugur af þessari gerð hafa hins
vegar þá ókosti meðal annarra að stofn-
kostnaður er frekar mikill og að erfitt
getur reynst að koma þeim fyrir í eldri
húsum.
Miðstöðvarryksugur eru ekki nýtt
fyrirbæri. í norska blaðinu kemur fram
að þeirri fyrstu þessarar tegundar hafi
verið komið fyrir í höll Bretadrottning-
ar, Buckingham Palace, í lok síðustu
aldar. í Finnlandi og Kanada eru mið-
stöðvarryksugur settar í 90 prósent
allra nýrra húsa, 83 prósent í Banda-
ríkjunum. í Evrópu seljast 60 þúsund
slíkar ryksugur ár hvert.
SMA mælir ekki með örbylgjumeðferð
Framleiðandi þurrmjólkur af gerðinni SMA kveðst ekki geta mælt
með notkun örbylgjuofna við upphitun þurrmjólkur af öryggisá-
stæðum. Framleiðandi annarrar tegundar segir hins vegar að
notkun örbylgjuofna sé í lagi að því gefnu að varúðar sé gætt.
í kjölfar umfjöllunar um þurrmjólk í
síðasta blaði var blaðinu bent á þær
hættur sem geta fylgt notkun örbylgju-
ofna við hreinsun og upphitun pela. I
ljós kom að í hinum enska texta á um-
búðum SMA er varað við notkun ör-
bylgjuofna en miði með íslenskum
leiðbeiningum hafði verið límdur yfir
ensku leiðbeiningarnar. Slíka viðvörun
er ekki að finna á hinum tegundunum.
Hins vegar mælir enginn framleiðandi
beinlínis með notkun örbylgjuofna.
Leiðbeiningar miðast ávallt við að pel-
ar séu hreinsaðir í sjóðandi vatni og að
mjólkinni sé blandað saman við vatn
sem áður hefur verið hitað upp.
Ástæða þess að framleiðandi SMA
mælir ekki með notkun örbylgjuofna er
tvíþætt. Annars vegar er hætta á að
mjólkin sjóði, en við það tapar hún
næringargildi. Hin ástæðan er sú að
mjólkin hitnar misjafnlega mikið í ör-
bylgjuofni. Þá er hætta á að hluti
mjólkurinn sé brennandi heitur. Því er
nauðsynlegt að hrista pelann vel eftir
að hann hefur verið hitaður í örbylgju-
ofni og reyna síðan á handarbaki hvort
hitinn er hæfilegur fyrir bamið.
Enn fremur er vert að hafa í huga í
þessu sambandi að ekki eru allir pelar
ætlaðir fyrir örbylgjuofna. Þvf er nauð-
synlegt að kynna sér vel leiðbeiningar
og varnaðarorð á umbúðum.