Neytendablaðið - 01.04.1998, Blaðsíða 2
Sjálfskuldar- Sólarlampar
ábyrgðir Alþjóðaheilbrigðis-
hafa verið mjög algeng- stofnunin vararvið
ar hérálandi. Núáað notkun sólarlampa og
fækka þeim og tryggja hvetur neytendur að
jafnframt stöðu ábyrgð- takmarka að minnsta
armanna betur. kosti mjög sólböð í sól-
arlömpum.
Buddan og n ’
umhverfið
Flestum finnst rekstur einkabílsins
dýr og jafnframt er Ijóst að hann er
talsvert skaðræði við umhverfið.
Neytendablaðið hefur skoðað
hvernig við getum haft bíllinn í sem
bestri í sátt við budduna okkar og
um leið við umhverfið.
5-8
Fúkkalyfin
íslendingar eiga Norð-
urlandamet í notkun
fúkkalyfja, en mikil
notkun þessara lyfja
getur komið okkur í koll
síðar.
Allt um borvélar
Borvélar eru ekki bara fyrir iðnaðarmanninn. Fjölmörg heimili telja
nauðsynlegt að hafa slíkan grip á heimilinu. Neytendablaðið hefur
kannað borvélamarkaðinn og jafnframt gæði margra þeirra tegunda
sem fluttareru hingað inn.
17-22
Lækkum orkukostnaðinn
Neytendablaðið hefur skoðað orkukostnað heimilanna og bendir á leiðir
til að lækka þennan kostnað.
11-13
Dómur í máli Innbús
í þriðja tölublaði Neytendablaðsins sögðum við frá undarlegum við-
skiptaháttum Innbús ehf. Nú hefur héraðsdómur kveðið upp sinn dóm
og er ekki sammála blaðinu.
4
Verðmerkingar
verða að vera skýrar
Góðar og greinilegar verðmerkingar hjá selj-
endum vöru og þjónustu skipta mjög miklu
máli við að tryggja gott verðskyn hjá neytendum
og til að þeir geti veitt markaðnum það aðhald
sem nauðsynlegt er. Þess vegna er í sam-
keppnislögum meðal annars að finna ákvæði
um að samkeppnisyfirvöld geti sett víðtækar
reglur um verðmerkingar og aðrar mikilvægar
upplýsingar.
Eins og fram kemur í Neytendablaðinu núna
í markaðskönnun á borvélum er Ijóst að verslan-
ir verðmerkja á mismunandi máta, sumar með
staðgreiðsluverði, aðrar með afborgunarverði og
enn aðrar með hvorutveggja laginu. Auk þess er
misjafnt hvaða verð gildir eftir því hvaða
greiðslumiðill er notaður. Þannig líta sumar
verslanir á greiðslu með kreditkorti sem stað-
greiðslu, en aðrar verslanir gera það ekki. Upp-
lýsingar um það síðarnefnda koma hins vegar
ekki alltaf fram á sölustöðum. Nýlegur úrskurður
samkeppnisráðs um skilmála greiðslukortafyrir-
tækja virðist ætla að gera verðfrumskóginn enn
erfiðari fyrir neytandann. í þessum úrskurði er
greiðslukortafyrirtækjunum bannað að hafa í
skilmálum sínum ákvæði þar sem segir að selj-
endur sem taka á móti kreditkortum megi ekki
mismuna þeim sem greiðir með korti og þeim
sem staðgreiðir. Einstaka seljendur hafa tekið
upp mismunandi verð eftir því hvaða greiðslu-
miðill er notaður, en neytandinn er ekki látinn
vita um það. Auk þess virðast sumir taka óeðli-
lega hátt gjald af þeim sem greiðir með korti, að
minnsta kosti miðað við þann kostnað sem þeir
hafa af kortunum.
Nýlega sendu ASÍ, BSRB og Neytendasam-
tökin frá sér fréttatilkynningu þar sem bent var á
„að verðmerkingum sé mjög ábótavant hér á
landi. Þetta á við um flestar tegundir verslunar
og þjónustu, en kvartanir vegna skorts á mæli-
einingaverði og verðskrám við ýmiss konar
þjónustuviðskipti eru áberandi." Kvörtunarþjón-
usta Neytendasamtakanna getur staðfest að oft
er ósamræmi milli hilluverðmerkingar og þess
verðs sem viðskiptavinurinn er látinn greiða við
kassa.
Neytandinn á heimtingu að verðupplýsingar
séu ávallt skýrar og hann á ekki að velkjast í
vafa um hvaða verð hann á að greiða hverju
sinni. Og eins og fram kemur í upphafi skiptir
þetta að auki miklu máli til að neytandinn geti
veitt markaðnum það aðhald sem verður að
vera fyrir hendi. Því beinir Neytendablaðið þeim
eindregnu tilmælum til samkeppnisyfirvalda í
Ijósi þess sem hér hefur komið fram, að reglur
um verðmerkingar verði hertar jafnframt því sem
tryggt verði að þær séu skýrar. Jafnframt minnir
blaðið á að mikilvægt er að samkeppnisyfirvöld
tryggi að seljendur vöru og þjónustu fari að
þessum reglum. Jóhannes Gunnarsson
Tímarit Neytendasamtakanna, Skúlagötu 26, 101 Reykjavík, s. 562 5000. Netfang:
neytenda@itn.is og heimasíða á Internetinu: http://www.itn.is/neytenda Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Jóhannes Gunnarsson. Myndir: Einar Ólason. Prófarkalesari: Hildur Finnsdóttir. Um-
brot: Blaðasmiðjan. Prentun: isafoldarprentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 19.500. Blað-
ið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.400 krónur og gerist
viðkomandi þá um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að nota efni úr Neytenda-
blaðinu í öðrum fjölmiðlum, sé heimildar getið. Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að
nota í auglýsingum og við sölu, nema skriflegt leyfi ritstjóra liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á
umhverfisvænan pappír.
2
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998