Neytendablaðið - 01.04.1998, Síða 4
Kvörtunarþjónustan
Dómur í máli Innbús ehf.
13. tbl. Neytendablaðsins
1997 var sagt frá máli sem
kona lenti í við bólstrunarfyrir-
tækið Innbú ehf. Hún hafði
keypt sér efni erlendis til yfir-
dekkingar á sófa með fjórum
pullum. Leitaði hún tilboðs í
vinnu við yfirdekkinguna hjá
Innbúi í Keflavík. Samkvæmt
tilboði átti verkið að taka 18
klst. x 1.300 kr. og skyldi vera
lokið í byrjun nóvember 1996.
Pullumar úr sófanum átti að
yfirdekkja á verkstæðinu en
sófagrindina á heimili konunn-
ar. Verkinu var ekki lokið á
umsömdum tíma, en henni var
lofað að því yrði lokið fyrir jól.
Þolinmæði konunnar var á
þrotum í febrúar 1997 og vildi
hún hætta við, enda var konan
ítrekað búin að ýta á eftir verk-
inu og liðnir vom fjórir mán-
uðir frá því að verkinu átti að
vera lokið. Konan vildi sækja
efnið og pullumar og fór fram
á að fá pullumar til baka í upp-
runalegu ástandi. Henni var
sagt að búið væri að vinna
þriðjung verksins, en verkstæð-
ið hefði týnt helmingi áklæðis-
ins. Innbú óskaði eftir því að fá
að klára verkið og bauð henni
afslátt frá upprunalegu verði
vegna týnda efnisins og að
verkinu yrði lokið fyrir viku-
lok, ef hún útvegaði meira efni.
Nokkmm dögum síðar eða
þegar Innbú óskaði eftir því að
hún kostaði flutning á
sófagrindinni á verkstæðið
vildi konan enn hætta við verk-
ið. Innbú tilkynnti þá konunni
að hún gæti ekki fengið pull-
umar til baka nema hún greiddi
fyrir þá vinnu sem unnin hefði
verið.
Vegna vanefnda Innbús
neitaði konan að greiða og 10
mánuðum síðar fékk konan
innheimtubréf frá lögmanni
Innbús upp á 18.000 krónur og
að auki 10.000 krónur í þókn-
un til lögmannsins og þegar
hún greiddi ekki kröfuna var
henni stefnt fyrir héraðsdóm.
Dómur héraðsdóms
Hinn 28. janúar var kveðinn
upp dómur í málinu. I forsend-
um dómsins segir að dráttur
hafi orðið á því að Innbú hæfist
handa og hafi konan þá átt
tveggja kosta völ, hún gat rift
samningi og krafið Innbú um
skaðabætur eða samið við Inn-
bú á ný, sem hún hafi gert.
Dómurinn kemst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að konan hafi
ekki fært sönnur á að gerður
hafi verið nýr samningur held-
ur hafi upphaflegt tilboð frá því
í september verið endumýjað í
febrúar 1997, með breytingu í
samræmi við afsláttartilboð
Innbús, þ.e. að greiða 5 tíma
fyrir yfirdekkingu pullanna og
síðan 2-3 tíma í viðbót fyrir yf-
irdekkingu sófagrindarinnar.
Sófagrindin var aldrei yfirdekkt
og komst dómurinn að þeirri
niðurstöðu að konan skyldi
greiða fyrir 5 tíma vinnu sam-
tals kr. 9.894 kr. með virðis-
aukaskatti og viðbótarefni. Auk
þessa skyldi konan greiða Inn-
búi 50.000 kr. í málskostnað.
Álit Neytendablaðsins
Við dóminn er ýmislegt að at-
huga. Dómarinn kemst að
þeirri niðurstöðu að verksamn-
ingurinn frá þvi í september
1996 hafi verið endumýjaður í
febrúar 1997, með þeirri breyt-
ingu einni að konan skyldi að-
eins greiða fyrir 5 tíma vinnu,
samanber afsláttartilboð Inn-
bús. Dómarinn lítur hins vegar
framhjá því að ein af forsend-
um konunnar fyrir því að Inn-
bú lyki verkinu var að hún
þyrfti ekki að koma sófagrind-
inni á verkstæðið á eigin kostn-
að, enda var í upphaflega til-
boðinu gert ráð fyrir því að
sófagrindin yrði yfirdekkt á
heimili konunnar. Nokkmm
dögum síðar kom hins vegar í
Ijós að Innbú ætlaði konunni
að koma sófagrindinni á verk-
stæðið á eigin kostnað, konan
neitaði þessu og sagðist vilja
hætta við og fá pullumar til
baka. Með þessari yfirlýsingu
hafnaði konan því í raun að
endumýja upphaflega verk-
samninginn og rifti honum
vegna vanefnda Innbús. Það
vekur furðu að dómarinn líti
framhjá þessari staðreynd og
fallist á sjónarmið fyrirtækisins
í einu og öllu, þrátt fyrir að það
hafi átt sökina á því að verkið
dróst verulega, og auk þess
týnt efni frá konunni.
Ekki var gerður nákvæmur
skriflegur verksamningur milli
aðila, hvorki í september né
febrúar, og því var óljóst hvað
aðilum hafði samist um sín á
milli. Dómsmálið snerist því í
raun um það hvað dómarinn
taldi sannað og hvað ekki og
hafa dómarar almennt mjög
frjálsar hendur við þetta mat. í
málinu hafnaði dómarinn öll-
um röksemdum konunnar og
lét hana að auki greiða Innbúi
50.000 krónur í málskostnað.
Neytendablaðið undrast
sönnunarmat dómarans og að
hann skyldi láta konuna greiða
Innbúi málskostnað, en vegna
þess að fjárhæðin sem um er
deilt nær ekki þeirri lágmarks-
fjárhæð sem gerð er að skilyrði
fyrir áfrýjun til Hæstaréttar
getur konan ekki áfrýjað þess-
um dómi til Hæstaréttar.
Upplýsingaskylda bílasala
Inóvember í haust tók í gildi
reglugerð um upplýsinga-
skyldu bflasala í viðskiptum
með notuð ökutæki. Ymsar
skyldur eru lagðar á bflasala
samkvæmt reglugerðinni og
ber þeim meðal annars að afla
upplýsinga og gagna frá selj-
anda bifreiðar áður en sala fer
fram. Nú eru allir bflasalar
skyldugir til að nota stöðluð
kaupsamningseyðublöð í bfla-
viðskiptum með notaða bfla.
Þetta er til mikilla hagsbóta
fyrir neytendur því þannig er
tryggt að þeir fá allar nauðsyn-
legar upplýsingar sem þurfa að
liggja fyrir áður en gengið er
frá kaupum eða sölu á bfl. Þær
kvartanir sem borist hafa til
Neytendasamtakanna vegna
bflaviðskipta benda til þess að
nokkuð misjafnt sé hvort bfla-
salar afii þeirra upplýsinga og
gagna sem þeim ber lögum
samkvæmt en nú á samræmt
eyðublað að bæta úr þessum
vanköntum.
Ástandslýsing og
ástandsskoðun
Á kaupsamningseyðublaðinu
eiga að koma fram almennar
upplýsingar um bifreiðina, svo
sem akstursnotkun, hvort opin-
ber gjöld hafa verið greidd og
hveijir em fylgihlutir bflsins.
Einnig á seljandi að gera grein
fyrir ástandi bfls með því að
fylla út þartilgert eyðublað.
Bflasali skal láta kaupanda vita
að hann geti auk þess látið
óháðan aðila ástandsskoða bfl-
inn og hefur það aukist að
menn nýti sér þann rétt. Ýmis
gögn þurfa að fylgja við sölu á
bfl, svo sem vottorð úr öku-
tækjaskrá sem sýnir hver sé
eigandi bflsins, skrá yfir fyrri
eigendur, upplýsingar um
tjónaferil bflsins, veðbandayf-
irlit sem segir hvort veð hvflir
á bflnum og ástandslýsing selj-
anda.
Gjaldskrá bílasala
Bflasala ber að gera grein fyrir
gjaldskrá sinni með áberandi
hætti þar sem fram kemur hver
sé söluþóknun bflasala fyrir
beina sölu og bifreiðaskipti.
Bflasali á að leiðbeina við-
skiptamanni sínum um hvert
hann geti leitað ef upp koma
vandamál vegna bflaviðskipt-
anna og geta Neytendasamtök-
in veitt félagsmönnum sínum
upplýsingar um rétt þeirra.
Bflasalar sem selja notuð
ökutæki verða að hafa leyfi en
nú eru 62 aðilar á landinu öllu
sem hafa slík leyfi. Lögreglu-
stjórar hafa eftirlit með því að
bflasalar fari að þeim lögum og
reglum sem hér hefur verið
fjallað um.
4
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998