Neytendablaðið - 01.04.1998, Qupperneq 5
Buddan og umhverfið
Bíll í sátt við
buddu og náttúru
Það er hægt að spara sér verulegt fé
með vistvænum akstri án þess að
skipta um bíi. Vegna ytri aðstæðna getur
hver ökumaður hérlendis lagt hlutfalls-
lega meira af mörkum til umhverfismála
en víðast erlendis með skynsamlegum
akstri og viðhaldi bflsins. I svölu lofts-
lagi er mun meiri hætta á óþarfa mengun
og eldsneytiskostnaði en í hlýju. Einka-
bflar blása líklega frá sér 15-20% þess
koltvísýrings sem myndast hérlendis
vegna eldsneytisbrennslu og bílaum-
ferðin í heild um 30%. Hér eru leiðbein-
irigar um hvernig reka má bílinn á skyn-
samlegri hátt og draga úr men^un.
Við síðustu áramót voru á Islandi
rúmlega 175 þúsund ökutæki. Fólksbíl-
um hér hefur tjölgað um rúmlega 16 þús-
und á síðustu tveimur árum, sem jafn-
gildir um 14%, en ökutækjum í heild
fjölgaði um 16%. Árið 1997 voru fluttir
inn rúmlega 10 þúsund nýir fólksbflar
sem var nær 26% aukning frá 1996. Inn-
flytjendur segja að salan hafi flust meira
úr fólksbílum yfir í jeppa. Óvenju mikill
innflutningur var á bíluin 1986-88 og nú
er komið að endurnýjun þeirra, svo búast
má við auknum innflutningi áfram. Það
er að mörgu leyti hagstætt fyrir umhverf-
ið, því nýju bílarnir menga minna en þeir
gömlu.
Um síðustu áramót voru samþykkt lög
á alþingi um að rafbflar og bflar sem
menga nær ekkert skuli undanþegnir inn-
flutningsgjöldum. Rafmagnsveita
Reykjavíkur flutti inn Peugeot-rafbfl til
sýninga í mars og fá kaupendur slíkra
bíla á veitusvæðinu ókeypis rafmagn í
eitt ár. Hins vegar hefur enn ekkert verið
gert til að örva kaup almennings á öðrum
sérstaklega vistvænum bílum sem hafa
verið að koma á markaðinn. Og sölu-
menn bifreiðaumboðanna segja sjaldgæft
að kaupendur hafi umhverfisverndar-
markmið að leiðarljósi þegar þeir velja
sérnýja bíla. Innan „vetnisnefndarinnar"
á vegum iðnaðarráðherra hefur verið rætt
um að Islendingar skipi sér í forystusveit
Ólafur H.
Torfason tók saman
í þessum efnum með því að fella niður
vörugjöld og bifreiðaskatt á vistvænum
bílum og tilraunabílum sem menga ekk-
ert, að minnsta kosti tímabundið.
Loftmengun af völdum bfla er að
aukast á jörðinni í heild því þeim fjölgar
stöðimt. F.ins op í flestum öðrum lönd-
aðilar eldsneytis setja í það hreinsiefni
sem fjarlægja óhreinindi og sót eða draga
úr því. Einfaldasta leiðin til að draga úr
hættulegum útblæstri er að aka minna
eða fleiri í senn, ganga, hjóla eða nota
strætisvagna þegar unnt er. Reykjavíkur-
horp hefur Innt sitt af mörknm með knun-
N EYTEN DAB LAÐIÐ - apríl 1998
5