Neytendablaðið - 01.04.1998, Page 11
Orkukostnaður
Með betri tœkni, stýringum, lagna- og einangrunarefiii og vandaðri hönnun má að meðaltali nýta orku á heimilum mun betur en
nú er gert. Þetta ber að hafa í huga þegar ráðist er í endurbœttur á eldra húsnœði.
Lækkun orkukostnaðar heimila
egar verið er að bera
saman orkureikninga
heimila kemur í ljós að margt
liggur að baki mismunandi
verði. Mismunur getur tengst
tæknilegum atriðum, náttúru
og veðurfari, smekk eða við-
skiptaumhverfi.
Hvert heimili um sig hefur
alltaf einhverja möguleika á
að lækka orkureikninginn.
Leiðimar em margar og mis-
árangursríkar en öllum fylgir
nokkur fómarkostnaður.
Neytendur sem fylgjast með
orkunotkuninni reglulega eiga
auðveldara með að ná árangri
í sparnaði en þeir sem láta
orkusalann alfarið sjá um að
fylgjast með orkumælinum.
Æskilegt er að bregðast strax
við ef orkunotkun eykst
óvænt. í sumum tilvikum
kann að vera nauðsynlegt að
leita aðstoðar sérfræðinga eða
viðkomandi orkuveitu við
greiningu vandamála en oft
liggur skýringin ljóst fyrir.
Gera má ráð fyrir að kröfur
um gott innirými og umhverfi
aukist á komandi árum þannig
að meðalorkunotkun heimila
vaxi fremur en hitt enn um
sinn. í því þarf ekki að felast
sóun ef tekst að virkja þekk-
ingu hér á landi á eðli og nýt-
ingu orku á sem hagkvæmast-
an hátt fyrir heimili við ís-
lenskar aðstæður.
í fyrsta lagi má lækka
kostnað með því að spara
orku. Slíkt er mögulegt, ann-
aðhvort með betri nýtingu eða
með því að notendur minnki
við sig orku. í öðru lagi er
mögulegt að seljendur lækki
orkuverð til neytenda, bæði
með hagkvæmari rekstri orku-
veitna og meiri hagkvæmni í
fjárfestingum í orkukerfum.
Farsælast er að leita sem
flestra leiða í því skyni að
minnka heildarkostnað við að
mæta orkuþörf neytenda.
Orkusparnaður
Heimilin geta hvert um sig
ráðið miklu um notkun orku
eins og aðra neyslu sína. Að-
gát í orkunotkun fylgir sömu
lögmálum og gilda almennt í
rekstri heimilisins. í spamað-
araðgerðum þarf að fara með
gát. Þótt orkureikningurinn
lækki mun annar kostnaður
geta hækkað, beint og óbeint.
Nauðsynlegt er því að hafa
heildarútkomuna í huga þegar
valin eru heppilegustu úrræð-
in til sparnaðar. Almenn um-
gengnisatriði eins og hitastig í
húsum, loftskipti í íbúðum,
notkun baðvatns og vatns til
þvotta eru liðir sem hafa áhrif
á orkuþörf heimilisins. Hægt
er að ná umtalsverðum orku-
spamaði með því að lækka
hitastig innanhúss um nokkrar
gráður eða loka hluta húsnæð-
is yfir kaldasta árstímann.
Orku við matseld og vatns-
notkun má spara umtalsvert
Eftir Sigríði Á.
Ásgrímsdóttur
verkfræðing
með útsjónarsemi í vinnutil-
högun.
Betri nýting orku
Þar sem framboð af umhverf-
isvænni orku til húshitunar
hefur verið nægt hérlendis
hafa stjómvöld ekki rekið
jafnmikinn áróður fyrir orku-
spamaði og í öðmm löndum.
íslenskir byggingamenn hafa
þó í ríkara mæli reist hús með
tilliti til varmataps og spar-
neytnari tæki hafa komið á
markaðinn hér eins og annars
staðar. Þannig nýtist orka á
heimilum betur nú en áður.
Hins vegar hefur rými hús-
næðis á hvem íbúa aukist hér
á landi og notkun orku til
samræmis við það.
Með enn betri tækni, stýr-
ingum, lagna- og einangrun-
arefni og vandaðri hönnun má
að meðaltali nýta orku á
heimilum mun betur en nú er
gert. í nýju íbúðarhúsnæði em
forsendur um nýtingu allt aðr-
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998
11