Neytendablaðið - 01.04.1998, Side 18
Gæða- og markaðskönnun
kosta þær 1.990-2.450 kr. í
þessum flokki er ein önnur og
er það „vinnuþjarkur" til
ákveðinna verkefna að sögn
seljanda, enda miklu dýrari.
Borvélar með rafhlöðum
(rafhlöðuvélar) eru vinsælustu-
heimilisvélarnar, enda hand-
hægar. Þessar borvélar kosta á
bilinu 6.200-29.185 kr. Raf-
hlaða fylgir með, en ef kaupa
á aðra getur verð hennar skipt
máli um hvað heildarpakkinn
kostar. Að hluta fer verð eftir
styrkleika sem gefinn er upp í
voltum, en margt fleira ræður
ferðinni. I lægsta flokknum er
vél með 8 volt, en sú öflug-
asta er 18 volt. Einnig eru
framleiddar 7,2 volta vélar,
sem og öflugri tegundir með
hamri, en þær fundust ekki
hér. Vélar alll upp í 9,6 volt
geta verið slakar á stein.
Borvélar með rafhöggi,
eða höggborvélar eins og
flestir kalla þær, eru vinsælar
bæði hjá heimilum og iðnað-
armönnum. Þessar vélar kosta
á bilinu 2.990-22.408 kr. Afl
vélanna er gefið upp í wöttum
og er á bilinu 380-750 wött.
Þó er ein vélin, Kinzo 25 C
12, talsvert aflmeiri eða með
1050 wött. Þessar borvélar
hafa að hámarki 3.000 snún-
inga á mfnútu og er þeim ætl-
að að bora í flestar gerðir
efna, svo sem við, málm,
plast og stein. Hægt er að taka
höggin af ef fyrirstaða er ekki
mikil, en höggin hjálpa hins
vegar á harðan stein. Höggin
eru þó ekki kraftmeiri en svo
að þrýsta þarf fast á borvélina
ef steinninn er mjög harður. I
gæðakönnuninni er árangur
vélanna góður bæði við borun
og að skrúfa skrúfur.
Borvélar með lofthöggi er
nýjasta gerð borvéla. Þessar
vélar eru kallaðar á ensku „el-
ectro-pneumatic” borvélar.
Orðið „pneumatic“ er komið
af gríska orðinu um loft. I
stað rafhögga framleiða þess-
ar vélar lofthögg með þrýsti-
lofti. Loftþrýstingurinn gerir
að verkum að vélin sér sjálf
um átakið, sá sem borar þarf
því ekki að þrýsta eins fast á
vélina. Snúningshraði þessara
véla er minni en á vélum með
rafhöggi og högg á mínútu
eru færri. Þessar vélar eru þær
dýrustu og kosta á bilinu
19.435-33.280 kr. Afl vél-
anna er gefið upp í wöttum og
er á bilinu 500-750 wött. Ef
þú borar ekki þess meira í
stein er venjuleg höggborvél
með rafmagnshögg nægjan-
leg, enda kostar hún oftast
minna og getur þar munað
talsverðu.. I gæðakönnuninni
er ein „pneumatic“-höggbor-
vél frábrugðin öðrum, Skil
1750, en hamarshöggin koma
frá fjöður, mjög sterkri og
spenntri. Þetta dregur úr afli
höggsins, en vélin reyndist
jafngóð í gæðakönnuninni og
aðrar í þessum flokki.
Eiginleikar
Sumar borvélar eru með tvær
hraðastillingar (gíra), en
krafturinn er meiri á minni
hraða og vélin verður betri til
að bora í tré og stál án höggs.
Allar rafhlöðuvélarnar eru
með stiglausa hraðastillingu
sem og flestar höggvélarnar.
Þá stjórnar þú hraðanum eftir
því hve fast þú þrýstir á rof-
ann. Þetta getur hentað vel, til
dæmis ef bora á nett göt og
einnig ef efnið sem borað er í
er stökkt. Bakkgír er hentugur
til að skrúfa skrúfur í og úr.
Hann er á öllum rafhlöðubor-
vélum og á sumum höggbor-
vélum.
Með sumum borvélum
fylgir „stoppari“ sem er lítil
járnstöng sem hægt er að festa
ofan á borvélina (þó ekki raf-
hlöðuborvéium). Með þessu
móti er hægt að hal'a dýpt á
holunni nákvæma.
Allar borvélar aðrar en raf-
hlöðuvélarnar eru með takka
til að læsa vélinni á ákveðn-
um hraða (Lock-on-takki).
Þessi takki er oftast vinstra
megin, sem er óþægilegt fyrir
örvhenta. Black & Decker
KD 564 RE, Black & Decker
KD 664 RE, Black & Decker
KD661, MetaboSbE 550
R+L og Metabo BHE 6021
SL+L eru með þennan takka á
handfangi neðanverðu. Á
Black & Decker KD 795 CRE
er með takkann ofan á hand-
fangi.
Þyngd vélanna skiptir
einnig máli, enda lýjandi að
nota lengi þunga vél. Borvél-
arnar sem við fundum eru á
bilinu 1-3,2 kg og eru raf-
hlöðuvélarnar alla jafna
léttastar en vélar með loft-
höggi þær þyngstu.
Patróna
Gerð patróna er þrenns konar.
Flestir þekkja patrónur sem
eru hertar rheð þartilgerðum
lykli. Gallinn er þó sá að lyk-
illinn getur auðveldlega týnst.
Á borvélum með rafhöggi eru
sumar vélarnar með sjálfherð-
andi patrónu og er bornum þá
stungið í og hert með rofanum
og allar rafhlöðuvélar eru
með slíka patrónu nema
BoschPSR 12 VEogTip
20312. SDS+ er ný patróna
fyrir flestar tegundir borvéla
sem eru með lofthöggi. Á
borunum eru raufar og þeir
eru settir í með einu handtaki.
SDS+ borar passa ekki í aðrar
gerðir borvéla.
Ábyrgðartími,
leiöbeiningar, taska
Ábyrgðartfmi er í öllum til-
vikum í samræmi við lög eða
eitt ár, nema á Black &
Decker- og Wagner-vélum
sem hafa tveggja ára ábyrgð.
Leiðbeiningar eru á ensku
nema hjá Húsasmiðjunni með
Hitachi-borvélum, en þar má
fá bækling með upplýsingum
um borvélar og fleira, auk
nytsamra upplýsinga.
I töflu er tekið fram hvort
taska undir borvélina er inni-
falin í verði og er það oftast
svo. Ef kaupa þarf töskur sér-
staklega eru þær mismunandi
og misdýrar. Þær ódýrustu
kosta 1.250 kr. í Heildsölu-
versluninni en eru seldar á
hæsta verði í Sindra á 3.700
kr.
Seljendur og framleiðsluland
Markaðskönnunin var gerð á höfuðborgarsvæðinu. í öllum
tilvikum selja innflytjendur beint til neytenda. Auk þess selja
fleiri sömu merki.
Vörumerki
Adam
AEG
Agojama
Atlas Copco
Bosch
Black & Decker
Cromag Profi
Einhell
Electronic
Hilti
Hitachi
Kinzo
Kress
Lematec
Makita
Metabo
Pekles
Rhino
Rodeo
Skil
Tip
Wagner
Innflytjendur
Heildsöluverslunin
Br. Ormsson
Heildsölulagerinn
Br. Ormsson
Bosch verkstæðið
Sindri1
Heildsölulagerinn
Byko3
Heildsöluverslunin
Hilti
Húsasmiðjan
Heildsölulagerinn
Húsasmiðjan
Bílanaust
Þór4
Bílanaust
Heildsölulagerinn
Heildsöluverslunin
Verkfæralagerinn
Fálkinn6
Heildsöluverslunin
Verkfæralagerinn
Framleiðslul.
Frakkland
Þýskaland
Kína
Þýskaland
Sviss
England, Kína2
Danmörk
Þýskaland
Frakkland
Liechtenstein
Japan
Kína
Þýskaland
Kína
England
Þýskaland
Kína
Frakkland
Asía
Holland5
Kína
Kína
1 Einnig seldar í Byggt og búið, Byko og Verkfæralagernurn.
2 Höggvélar (raf- og lofthögg) eru allar framleiddar i Englandi.
Flestar vélarnar með rafhlöðum eru framleiddar í Kína.
3 Einnig seldar í Byggt og búið.
4 Einnig seldar í Byko.
5 Rafmagnsborvélarnar eru framleiddar í Bandaríkjunum.
6 Einnig seldar í Verkfæralagernum.
18
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998