Neytendablaðið - 01.04.1998, Page 23
Neytendur um allan heim
Tímamót í neytendarétti innan ESB
Evrópusamtök neytenda
(BEUC) lýsa því yfir að
tímamót hafi orðið í neyt-
endarétti eftir að Evrópuþing-
ið samþykkti 10. mars sl. nýja
stefnumótun vegna ábyrgðar á
gölluðum vörum seldum inn-
an Evrópusambandsins
(ESB). Framkvæmdastjórn
þess hafði lagt fyrir þingið til-
lögur um aukinn neytendarétt
og samræmingu á honum inn-
an svæðisins, en þingmenn
gengu í mörgum atriðum
lengra með samþykkt breyt-
ingatillagna. Alls greiddu 320
þingmenn samþykktinni at-
kvæði, 128 voru á móti og 59
sátu hjá.
í ályktuninni felst meðal
annars að ábyrgð á vöru sem
ESB-neytendum er seld í ein-
hverju aðildarlandanna verður
í gildi þegar heim er komið.
BEUC fagnar sérstaklega
þeirri ákvörðun að framleið-
endum sem hafa allt ESB að
markaðssvæði er gert skylt að
hafa í öllum löndum þess full-
trúa sem taka á móti kvörtun-
um neytenda. Samkvæmt
skoðanakönnunum í Bretlandi
Alþjóðareglur
Aþingi Alþjóðasamtaka
neytenda, sem haldið var
í nóvember, komu fram mikl-
ar áhyggjur af vinnu innan
Codex Alimentarius sem er
undirstofnun Sameinuðu
þjóðanna og setur allar leik-
reglur um matvæli. Bent var á
nefna 52% neytenda hættuna
á gallaðri vöru sem eina orsök
þess að versla ekki erlendis.
Jim Murrey, framkvæmda-
stjóri BEUC, sagði að þingið
hefði nú veitt neytendum
„vegabréf ‘ að sameinuðum
markaði ESB og tryggt
grundvallarréttindi þeirra.
BEUC er líka ánægt með
að þingmenn skyldu styðja
ýmsar aðrar tillögur fram-
kvæmdanefndarinnar sem lúta
að neytendavernd, þrátt fyrir
miklar tilraunir þrýstihópa
iðnaðarins til að milda ákvæði
þeirra. Þingmenn samþykktu
til dæmis að komi gallar í ljós
á vöru innan sex mánaða frá
kaupum sé sönnunarbyrðin
hjá seljandanum, hann þurfi
að sýna fram á að hún hafi
verið gallalaus en kaupandinn
ekki að sanna að hún hafi ver-
ið gölluð. Sömuleiðis verður
lögleidd ábyrgð seljanda á
notuðum vörum. BEUC telur
það líka til bóta að nú verður
það á valdi neytandans en
ekki seljandans hvort gölluð
vara er endurgreidd eða önnur
sambærileg afhent í staðinn.
að mikið ójafnvægi ríkti á
fundum þar sem allar ákvarð-
anir eru teknar. Þannig er 100
fulltrúum frá ýmsum fram-
leiðendahópum boðið, en að-
eins einum fulltrúa neytenda,
frá Alþjóðasamtökum neyt-
enda. Miðað við þá öru þróun
Hins vegar er BEUC óánægt
með að þingið dró úr upp-
runalegum tilögum fram-
kvæmdanefndarinnar. Hún
hafði lagt til að neytandanum
hefði rétt til að kjósa á milli
viðgerðar, nýrrar vöru, afslátt-
ar eða endurgreiðslu. Þingið
samþykkti á hinn bóginn að
að takmarka rétt neytandans
aðeins við endurgreiðslu eða
skipti.
BEUC er einnig ósátt við
að í lögunum er ákvæði um
að neytendur missi rétt sinn
um valfrelsi milli endur-
sem á sér stað á matvælasvið-
inu er slíkt með öllu óásættan-
legt. Meðal neytendasamtaka
hefur talsvert verið rætt um
þær skyldur stjómvalda í ein-
stökum löndum til að gæta
þess að neytendasjónarmið
séu ekki síður tryggð en fram-
greiðslu eða skipta geri þeir
ekki viðvart um galla vömnn-
ar innan mánaðar frá kaup-
degi, eða innan mánaðar frá
því þeir „ættu að hafa upp-
götvað gallann". Fram-
kvæmdastjóri BEUC bendir á
að kaupi menn t.d. skíði sé
óvíst hvort rétturinn gildi í
mánuð frá kaupum eða í mán-
uð eftir að skíðatíðin hefst.
Engu að síður sé hér um ótví-
ræð tímamót að ræða varð-
andi vöruábyrgð og neytenda-
rétt.
leiðendasjónarmið á þessum
vettvangi. Þetta geti stjórn-
völd gert með því að tryggja
neytendaþátttöku í sendinefnd
lands síns.
Þegar haft er í huga hve
mikilvæg matvælaframleiðsl-
an er fyrir okkur Islendinga,
og áhersla okkar mikil á hrein
og heilnæm matvæli, er
áhugaleysi íslenskra stjórn-
valda gagnvart starfi Codex
Alimentarius illskiljanlegt.
Nefna má sem dæmi að þrátt
fyrir yfirlýsingar um mikil-
vægi þess að halda hormón-
um í burtu við framleiðslu
landbúnaðarvöru sendu ís-
lensk stjórnvöld ekki fulltrúa
á fund þar sem Bandaríkja-
mönnum tókst með naumum
meirihluta að knýja fram að
löglegt sé að nota nokkrar
tegundir kjöthormóna lil að
örva vaxtarhraða dýra.
Neytendum ber hagur af samkeppni í símaþjónustu
Asíðasta aðalfundi Neyt-
endasamtaka Evrópu
(BEUC) var fagnað auknu
frelsi og samkeppni í síma-
þjónustu en lögð áhersla á að
taka beri tillit til hagsmuna
neytenda og að þeir eigi að
hagnast af þeim breytingum
sem nú eiga sér stað. Full-
komið frelsi í sölu á þessari
þjónustu gekk í gildi um síð-
ustu áramót.
BEUC hefur áhyggjur af
því að sum ríki virðast ætla að
reyna að koma sér undan að
uppfylla nauðsynleg skilyrði.
Til þess að tryggja öllum
neytendum grundvallarþjón-
ustu leggja samtökin áherslu á
að á markaðnum verði skil-
greind almenn þjónustuskil-
yrði, og settar um þau skýrar
reglur, sem geti breyst í takt
við tímann eftir hagsmunum
neytenda. Samtökin vilja líka
að mótað verði stjórntæki til
að setja þak á verðlagningu,
svo hægt sé að koma í veg
fyrir óhóflegar hækkanir á
svæðisbundnum þjónustu-
gjöldum á fyrstu árum hinnar
nýju tilhögunar, en þar hafa
símafélögin einmitt einokun-
ar- eða fákeppnisaðstöðu. Þau
álíta að fylgja verði ákveðn-
um lögmálum um þjónustu til
þess að tryggja neytendum
aðgang að upplýsingasamfé-
laginu samfara þróuninni á
sviði síma- og sjónvarpstækn-
innar.
Það er því víðar en hér á
landi sem neytendur hafa
áhyggjur af þróun símareikn-
inga sinna.
Reyking-
ar auka
tíðaverki
Áhættan á tíðaverkjum eykst þrefallt hjá þeim konum sem
reykt hafa fleiri en tíu sígarettur í tíu ár samkvæmt ítalskri
rannsókn. Ástæðan er að öllum líkindum þrengingar á
æðum, þannig að blóðstreymið minnkar.
um matvæli, framleiðendur hafa vinninginnn
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998
23