Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 21
telur að núgildandi kerfi komi í veg fyrir
heilbrigða samkeppni verkstæða og sé
neytendum ekki í hag. Athuganir hafa
sýnt að gæði þjónustunnar eru ekki meiri
á verkstæðum sem hafa stimpil framleið-
enda en hins vegar er hún þar að jafnaði
rnun dýrari.
• Framleiðendur geti ekki skyldað bif-
reiðasala til að sýna, selja og panta
tilteknar (jafnvel allar) gerðir af bílum
frá sér. Núna er staðan sú að bílasalar
eru oft þvingaðir til að auglýsa og selja
bíla sem henta ekki neytendum á sölu-
svæðinu. Þetta er umtalsvert kappsmál
framleiðenda en algerlega á skjön við
hagsmuni neytenda.
• Framleiðendum sé bannað að nota
þjófavarnarkerfi bíla eða annan búnað
til að koma í veg fyrir að verkstæði sem
ekki hafa leyfi frá þeim geti gert við bíl-
ana. Að minnsta kosti verður að vera
hægt að aftengja slíkan búnað ef nauð-
synlegt reynist að gera við bílinn þar sem
hann er staddur.
ítarlegri umfjöllun um gæði bíla er á heima-
síðu Neytendasamtakanna, www.ns.is.
Fiat Stilo 1.9 jTD 115 fékk hæstu
einkunnina, 4 af 5 mögulegum, í
flokki lítilla fjölskyldubíla. Hann
fékkst hér á 2,1 millj. kr.
Daihatshu Cuore fékk góða
einkunn fyrir nýtingu eldsneytis.
Hann fæst hér á rúma eina m.kr.
sjálfskiptur en tæpa milljón bein-
skiptur hjá Brimborg hf.
FLÖSKUM EKKI k ÞESSU...
HöLDUM LANOINU KREINU. HIRflUM ALLT GLER.
VlNÝBÚÐ
www.vinbud.is
NEYTENDABLAÐIÐ1. TBL. 2003 21