Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 16

Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 16
Vinsælir drykkir Orkudrykkir er heiti notað yfir drykki sem neytt er til að verða fyrir einhvers konar örvandi áhrifum. Oftast er um að ræða svala- eða gosdrykki með sykri, bragð- og litarefnum, sýru og sýrustill- um, bindiefnum o.fl. Þeir eru sumsé að flestu leyti eins og venjulegir gosdrykkir nema hvað í þessa drykki er bætt örvandi efnum eins og koffíni, ginsengi, gvarana (sem í er koffín) eða tárín (amínósýra). Þessir drykkir eru orðnir æði vinsælir meðal ungs fólks, því markaðssetning- unni er beint að íþróttafólki eða athafna- sömu ungu fólki á öllum aldri. Nidurstödur rannsókna I blaði dönsku neytendasamtakanna Tænk+Test í apríl var fjallað um 20 teg- undir orkudrykkja. Fimmtán þeirra voru taldir óhæfir sem íþróttadrykkir vegna mikils magns koffíns og sykurs. Hérlendis eru reglurnar eilítið öðruvísi og má telja að hér séu ekki ólöglegir orkudrykkir seldir í verslunum. Það er þó athyglis- vert sem danskir sérfræðingar segja um orkudrykki. Gitte Laub Hansen, doktor í næringarfræði, segir að „í stað þess að líkaminn taki strax til sín vatnið sem hann vantar er maginn fullur af vatni, því líkaminn getur ekki nýtt sér vatnið strax vegna mikils sykurs". Og enn segir Gitte; „Það er rétt að mikið koffín hefur áhrif, en aukaverkanir eru ekki góðar, aukinn hjartsláttur, þornun (dehydrering) og koffínfíkn. - Það vantar ekki orku, þvert á móti; ætlunin hlýtur að vera að brenna orku við íþróttaiðkun, er það ekki?" spyr danski næringarfræðingurinn. Danski sérfræðingahópurinn sem gerði könnunina tók að sér að prófa drykkina. „Gott og vel sögðu menn, ef auglýsingar lofa aukinni getu og meiri orku, þá ligg- ur beinast við að reyna á það!" Danirnir notuðu tvenns konar próf fyrir tvo hópa fólks. Annar hópurinn fékk drykki án orkuefna og hinn orkudrykki úr verslun. Eitt prófið var að leggja saman allar töl- ur sem gáfu 10 í talnarunu og var mæld lengdin eftir 21/2 mínútu. Hitt prófið var að raða saman myndum eftir ákveðnum lyklum og var einnig talið saman eftir 21/2 mínútu. Þannig voru nemendur í Tækniskólanum í Ballerup prófaðir, með og án orkudrykkja. I stuttu máli var niðurstaðan sú að orkudrykkir juku ekki einbeitinguna, þvert á móti stóðu þeir sig verr sem þá höfðu drukkið! Nokkrir orkudrykkir skoðaðir Farið var í nokkrar verslanir, beðið um orkudrykki og þeir keyptir. Skoðað var innihald og umbúðamerkingar. í töflunni er síðan borið saman lítraverð og inni- haldsefni í 100 ml og skoðuð loforðin sem auglýst eru. Gæta skal þess að hér er ekki verið að skoða íþróttadrykki, sem eru með um helmingi minna sykurmagn eða um 6%, innihalda sölt en engin örv- andi efni. Þetta eru allt aðrir drykkir. Þó voru þeir seldir okkur sem orkudrykkir í verslunum! Til samanburðar bættum við í töfluna kóki og vatni. Vatnið er best Það mætti segja að þetta sé góð mark- aðssetning, að telja okkur trú um að gosdrykkirnir sem alltaf er verið að vara við - séu einstaklega orkuríkir - einmitt það sem vantar! Takið einnig eftir því að kókið er ódýrast (eftir vatninu). Kók er að vísu ekki orkudrykkur samkvæmt skilgreiningu Hollustuverndar heldur gosdrykkur, en þó er það mjög orkuríkt og inniheldur koffín. Mætti þess vegna telja vel sykrað og sterkt kaffi ágætis „orkudrykk". Til að fyrirbyggja allan misskilning skulu lesendur minntir á að þrúgusykur eða ávaxtasykur er sykur engu að síður. Sykur er ekki hollari þótt hann heiti ávaxtasykur. Þessi „hvíta lygi" hefur tíðkast hérlendis nokkuð lengi. Þessvegna er enginn greinarmunur gerð- ur á sykri í töflunni. Lokaorð Megingagnrýni á þessa drykki er að þeir auki sykurneyslu barna og unglinga og stuðli að offitu á unga aldri. Orkuna eigi að brenna með hreyfingu, en óþarft að auka orkuneysluna. Einnig er gagnrýnt að unglingar og börn fái ótæpilegt koffín- magn, en svipað magn getur verið í orku- drykkjum og í bolla af sterku kaffi. Bent hefur verið á að koffínmagn í meira en 2-3 kaffibollum á dag geti valdið streitu- einkennum. Og nú hefur sú gagnrýni bæst við frá dönsku neytendasamtökun- um að loforð framleiðenda um jákvæð áfhrif orkudrykkja geti verið vafasöm. Er vatnið nokkuð að fara úr tísku? 16 NEVTENDABLAÐIÐ 1. TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.